Heilbrigðismál - 01.10.2005, Qupperneq 20
Ómar Óskarsson
ÉG Á AUÐVELT MEÐ aö setja mig í spor fólks, líklega vegna þess aö ég læt ekki setja að mér
beiskju eða reiði. Ef ég verð vör við slíkt ýti ég því frá mér og geri eitthvað annað.
Hvað drífur þig áfram? Þú virðist vera meira
upptekin núna en í embætti forseta fslands?
„Það er heilmikið til í því. Ég á góðan vin
sem spyr mig reglulega hvort ég ætli ekki
að fara að setjast í helgan stein. Ég segi
honum að koma með steininn. Ég er ávallt
full af eldmóði og nálgast viðfangsefni, sem
ég vil koma í höfn, af krafti og einurð. Ég
fæ hugsýnir um ákveðna hluti sem ég vil
koma til leiðar og hefst þá strax handa. Ég
tel að menn hjá Sameinuðu þjóðunum hafi
áttað sig á þessu þegar ég var beðin um að
vera tungumálasendiherra þeirra, formaður
siðanefndar og fleira. Það er ekki öllum gefið
að koma auga á hið ósýnilega, sem ekki er
orðið. Þeir sem búa yfir þeirri náðargáfu takast
á við það sem öðrum þykir ómögulegt. En svo
verður það mögulegt af því að það er unnið
að því af einurð. Ég lifi við þau sérréttindi i
útlöndum að þar er aldrei spurt hversu gömul
ég sé. Þar er bara sagt: Komdu! Hér heima er
alltaf verið að minna mig á það að ég varð 75
ára í ár en ég var alveg búin að gleyma því.
Fólk er stöðugt að bjóða mér sæti þegar það
veit á hvaða aldri ég er. Slíkt er óþarfi."
Vigdís er sérlega meðvituð um heilbrigða
lífshætti og gefur eldmóður hennar og
drifkraftur það til kynna. „Allir vita að það
er mikilvægt að rækta sjálfan sig, hreyfa sig
vel en jafnframt hvíla sig. Ég anda að mér
náttúrunni daglega og afla mér lífsorku með
því að stunda Qi-gong, sem eru kínverskar
öndunar- og hugleiðsluæfingar. Þá skiptir
jákvæðni og væntumþykja gifurlega miklu
máli. Mér þykir afskaplega vænt um fólk, ég
elska ekki eingöngu börn. Ég á auðvelt með
að setja mig í spor fólks, líklega vegna þess að
ég læt ekki setja að mér beiskju eða reiði. Ef
ég verð vör við slíkt ýti ég því frá mér og geri
eitthvað annað. Þar koma skáldsögur og Ijóð
við sögu sem besta meðalið. Góðar bækur
færa mig yfir í aðra veröld. Að svo búnu stíg
ég út úr þeirri veröld og hef aðra lífssýn."
Áttu einhverja ósk, þjóðinni til heilla? *’
„Að hún haldi áfram að muna hver hún er
og verndi okkar yndislega tungumál. Ef hún
gerir það ekki er hún búin að týna sjálfri sér í
þjóðahafið. Við verðum að vernda okkur sem
þjóð og þær dásamlega stórkostlegu gjafir
sem kynslóðirnar á undan hafa látið okkur (
té, í bókmenntum, hugsunum, verklagni og
mannkostum. Og koma því áfram til þeirra
sem munu erfa landið." <
Þorgrímur Þráinsson ræddi við Vigdísi.
ALLIR VITA að það er mikilvægt að rækta sjálfan sig, hreyfa sig vel
en jafnframt hvíla sig. Ég anda að mér náttúrunni daglega og afla mér
lífsorku með því að stunda Qi-gong.
20