Heilbrigðismál - 01.10.2005, Page 34
HEILSUMOLAR
TVÖFÖLDUN
Á FJÖRUTÍU ÁRUM
Nýgengi krabbameins í brjóstum
hefur meira en tvöfaldast á
síðustu fjörutíu árum, samkvæmt
upplýsingum frá Krabbameinsskrá
Krabbameinsfélagsins, og er þá miðað
við alla aldurshópa (frá 1955-1963
til 1994-2003). Aukningin í heild er
129% á þessu tímabili, eða rúmlega
3% að meðaltali á ári. Á aldrinum
SÖNGKONURNAR
HAFA ÁHRIF
Ástralska söngkonan Kylie Minouge
greindist með brjóstakrabbamein
í maí 2005, 37 ára að aldri. Nýjustu
fréttir herma að meðferðin hafi
gengið vel og að umræðan hafa
ýtt við mörgum konum að fara í
brjóstamyndatöku.
Önnur áströlsk söngkona og
leikkona, Olivia Newton-John,
undir fimmtugu er aukningin 67%,
frá fimmtugu til sjötugs 196% og eftir
sjötugt 90%.
Lífshorfur kvenna sem greinast með
sjúkdóminn fyrir fimmtugt eru jafn
góðar og þeirra sem eldri eru.
FRÆÐSLUMYND
UM ALGENGT MEIN
Krabbameinsfélag Reykjavíkur,
stuðningshópurinn Góðir hálsar og
lyfjafyrirtækið AstraZenica hafa gefið
út fræðslumynd um krabbamein í
blöðruhálskirtli, sem er algengasta
krabbamein íslenskra karla.
Þetta er dönsk mynd sem hægt
verður að fá á almenningsbókasöfnum,
hjá þjónustumiðstöðvum Krabbameins-
félagsins og víðar. Fræðslumyndin er
bæðí til sem myndband og mynddiskur.
Sjúklíngar og aðstandendur geta
fengið fræðslumyndina lánaða heim,
til að kynna sér staðreyndir um
sjúkdóminn og viðbrögð við honum.
greindist með þennan sjúkdóm
sumarið 1992, en þá var hún
43 ára. Síðustu ár hefur Olivia beitt
sér fyrir fræðslu um sjúkdóminn
og ábendingum um sjálfsskoðun
brjósta.
Sagt var frá því í janúar 2003 að
bandaríska söngkonan Anastacia
væri með brjóstakrabbamein, en
hún var þá 29 ára. Eftir að meðferð
lauk tók hún aftur til við sönginn
og hefur gefið út plötur og verið á
hljómleikaferðalagi. í samvinnu við
Estée Lauder hefur hún stofnað sjóð
sem á að hvetja ungar konur til að
bera heilsu sína fyrir brjósti.
Þess má geta að ár hvert greinast
að meðaltali innan við tíu
íslenskar konur undir fertugu með
brjóstakrabbamein, en um þrjátíu á
aldrinum milli fertugs og fimmtugs.
„HAFÐU HREYFINGU DAGLEGA"
í Nonnasafni á Akureyri eru sýndar tólf heilbrigðisreglur sem Sigríður Jónsdóttir, móðir Jóns Sveinssonar,
Nonna, lagði börnum sínum á síðari hluta nítjándu aldar. Flestar þeirra eru enn i fullu gildi.
• Þvoðu þér daglega um
allan kroppinn úr köldu vatni og
nuddaðu skinnið svo hiti hlaupi í
og blóðið hlaupi út undír skinnið.
• Hafðu alltaf ullarföt við kroppinn
og klæddu þig svo vel að þér verði
ekki kalt.
• Borðaðu ekki mikinn mat og aldrei
á milli máltíða. Hafðu litla máltíð á
kvöldin og ekki feita.
• Hafðu hreyfingu daglega og fáðu
þér frískt loft.
• Drekktu einn bolla af kaffi eða
tei, og ekki sterkt, með máltíð og
drekktu vatn með mat og endranær
þegar þig þyrstir. Það er hollt.
• Hátta snemma á kvöldin og far
snemma á fætur.
• Hafðu létt og þunn rúmföt og
undirsæng að mýkt sem grösug jörð.
• Ligg á hægri hlið. Það er þægilegra
fyrir magann.
• Sriú höfðinu í norður.
Segulstraumur frá norðri verkar þá
best á taugarafmagnsstrauminn.
• Byrjaðu ekki andlega áreynslu fyrr
en eftir eina klukkustund frá því þú
hefur borðað.
• Borðaðu mikinn kálmat. Kál er hollt.
• Borðaðu tóstað brauð, það er
hollara, og drekktu vatn af tóstuðu
brauði sem legið hefur niðri í
vatninu.
34