Samtíðin - 01.03.1942, Qupperneq 19

Samtíðin - 01.03.1942, Qupperneq 19
SAMTÍÐIN 15 ið er allvel birgt af hundum, og hafa þeir eftirlit með bilaumferðinni. Einu sinni rakst ég á klárinn minn inni á barnaleikvellinum. Hann var að rísa upp af værum næturblundi, hróðugur yfir þvi, að hafa getað stol- izt þangað inn um nóttina. Þessir ferfættu vinir eiga ef til vill ekki við menningarsnið bæjarlífsins, en ekki get ég neitað því, að gaman er að mæta þeim, og þeir setja sinn svip á þorpið okkar. Þetta er nú um dýralífið að segja. Þú mætir líka fólki, sem er að fara til vinnu sinnar; konur fara inn í garða eða inn á tún, blómarósirnar fara dúðaðar til vinnu í frystihúsinu, og úti á bryggju eru sjómennirnir að koma að. Þar eru kasir af fiski. Inni í skúrnnum eru lóðir beittar og stokkaðar. Yfir þorpinu gnæfir Tindastóll, en út til fjarðarins rísa þær upp, Drangey og Málmey, í eilífu tillmgalífi við Þórðarhöfða og dregur ekki saman með þeim. Þannig er þetta friðsæla þorp, nema hvað það skiptir um ham eftir árstíðum og svo skiptir það um. svip einu sinni á ári í nokkra daga og nokkrar nætur. Þá heitir sæluvika. Skólarnir hætta störfum, híbýli manna fjdlast af gestum, götulífið er likast og í stórborg, ös í búðum, skrautritaðar auglýsingar eru festar upp í búðareluggum og á öðrum á- berandi stöðum. Blöð eru að vísu ekki seld á götunum, en í þeirra stað eru seldir fiölritaðir pésar, ýmist gamanvísur eða annað andlegt sæl- gæti, drengir skjótast með auglýsing- nr í húsin, til þess að allir geti fylgzt með þvi, sem er að gerast. Barna- skólabjölhmni er hringt í ákafa um enidilanga götuna, því að tombóla á að liefjast í barnskólanum. Svo má búast við því, að andinn komi yfir Runólf prédikara, og þá tekur hann sér stöðu þar sem fjölfarnast er, veif- ar biblíunni og hefur upp sina miklu raust og vistar allan söfnuðinn í helvíti. Heyrist sterk rödd hans um endilangt þorpið, enda er hann þá vís til að færa sig þannig, að enginn afkimi verði útundan. Yið, sem eigum hér heima, þekkj- um Runólf, og þó er eins og sópi fyrst að honum, þegar liann er kom- inn inn í miðja ös sýslufunidarvik- unnar. Annars er eins og allt sé í upp- námi hér þessa daga. Við, sem þykj- umst góð að geta hýst einn eða tvo næturgesti, ef á liggur, höfum þá nú ef til vill 6 eða 8, og dæmi veit ég til þess, að fólk, sem vakað hefur á balli alla nóttina, fer að hátta að morgni í rúm skikkanlegra borgara, þegar þeir ldæða sig. Stundum eru menn líka í j)ví ástandi, að |)eir rekast eklci svo mjög í því, hvar jieir velta út af. Þetta gengur á ýmsu. Hvað er nú þetta, sem fólk sækist svo mjög í, bæði Skagfirðingar og aðrir? Fvrst er að nefna sjálfan sýslu- fundinn. Utan um liann hefur allt hitt hnoðazt, enda er hann að kafna í umbúðunum. Komið hefur meira að segia til orða, að hafa sýslufundar- viku án sýslufunidar, en hefur ekki enn verið framkvæmt. Sæluvikan er tengd sýslufundinum, enda liófst hún þannig, að tekin var upp sú ný- breytni fyrir um 60 árum síðan, að

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.