Samtíðin - 01.03.1942, Side 21

Samtíðin - 01.03.1942, Side 21
SAMTÍÐIN 17 Þannig er þá raðað á kvöldin, leik- sýningar í tveini samkomuhúsum og fundirnir í því þriðja, og oft er fullt á öllum stöðunum.Um, miðnætti liefst svo dansinn og stendur til morguns. Þar leikur Lúðrasveit Sauðárkróks stund og svo taka harmonikusnilling- arnir við og grammófónninn. Dans- að er i tveim húsum og veitir ekki af. Hefur mér verið sagt, að þar sé svo fullt, að enginn þurfi að revna að lireyfa sig sjálfur. Músikkin setur ein- hvern veginn alla þvöguna af stað, og svo hreyfa menn fæturna eitthvað til málamynda, eða til að lialda jafnvæg- inu. Sama parið dansar alla nóttina saman og stundum nótt eftir nótt. Eitt par veit ég um, sem dansaði í 18 klukkutíma saman í þreinur atrenn- um. Þetta þykir kurteisi nú á dögum. Hygg ég, að orð Tómasar megi heim- færa upp á þetta fvrirbrigði mann- lífsins, og að þessar samlokur „elski meira á einni sæluviku, en öðrum, tókst í löngu hjónabandi.“ Fjarri fer því, að þótt búið sé að minnast þessara meginþátta sýslu- fundarvikunnar, þá sé allt talið. Oft- ast reka ýmsar aðrar skemmtanir hver aðra, allt frá liádegi til kvölds. Þá eru tombólur, bíó, karlakórasöng- ur, einsöngvar, listdansar, bæði ein- dansar og hópdansar barna, leikfimi- sýningar og gamanvísur. Um allt þetta mætti margt segja. Ivarlakórar hafa lengi starfað í Skagafirði. Mun nú vera um aldar- fjórðungur siðan Bændakórinn var stofnaður. Eftir að hann leið undir lok, hóf Karlakórinn Heimir starf sitl frammi í sveitunum og Karlakór Sauðárkróks hér í þorpinu. Um tíma starfaði þriðji kórinn í Hofsós og umhverfi lians. Lúðrasveil hefur starfað á Sauðárkróki í meira en 10 ár. Eins og allir vita, sem kunnir eru söng og hljómlistarlífi yfirleitt, kost- ar alll slíkt mikla æfingu og stórar fórnir tíma og fjármuna. Sama er að segja um leikstarfsemi. Sauðárkróksbúar hafa ekki ánægj- una eina af sýslufundinum og gesla- komunni í sambandi við hann. Leik- irnir, sem sýndir eru, liafa kostað mörg æfingakvöld þrevttra verzlun- armanna, húsmæðra og annarra starfenda kauptúnsins vikurnar næstu á undan. Ivórarnir hafa æft sig allan veturinn og sá þeirra, sem starfar í sveitinni, hefur orðið að kalla söngkrafta sina langar leiðir ti! æfinga, og svo þegar þeir eru komnir saman, er ekki um annað að tala en æfa sig í 6 klukkutíma samfleytt og ganga á svefntímann, því að ekki er um annað að ræða en hefja aftur störf að morgni við hílakstur, skepnuhirðingu eða annað, 1 Karla- kórnum Heimi eru félagarnir úr 5 eða jafnvel 6 hreppum sýslunnar og er því ekki fvrir þá alla í næsta hús á æfingu að fara. Danska lyfsalafrúin, sem æfir leikfimi harnanna og dans ungu stúlknanna og dansar sjálf eindans, hefur orðið að fórna tíma frá hús- móðurstörfum sínum. Og þegar sarni maðurinn hefur stjórn bæði lúðra- sveitarinnar og karlakórsins og er leikstjóri og leikari og hefur auk þess stjórn kirkjukórsins og er kirkjuorg- anisti, þá má nærri geta, að hann veit, livað liann á að gera við frítíma

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.