Samtíðin - 01.03.1942, Qupperneq 20

Samtíðin - 01.03.1942, Qupperneq 20
16 SAMTÍÐIN stofnað var til leiksýninga um sýslu- fundinn. Mun danskur kaupmaður, sem var hér þá, Ludvig Popp að nafni, hafa staðið fyrir þeim. Yar leikið í pakkhúsi, eins og siður var víða um landð á þeim árum, og var byrjað á Narfa. Siðan kom Skugga- Sveinn, sem sýndur hefur verið hér afar oft, og svo ýmsir aðrir og ýmis konar leikir. Er oflast leikið á tveim stöðum samtimis, og eru einar 10 sýningar yfir vikuna, eða jafnvel fleiri. Stundum hefur komið upp mikil keppni milli leikfloltkanna. Þannig var Jeppi á Fjalli sýndur í tveim húsum samtímis fyrir nokkr- um árum síðan, en leikliúsgestir gengu á milli leikhúsanna til að sjá á hvorum staðnum væri betur leikið. Annað, sem fvlgt hefur sýslufund- inum alllengi, eru málfundirnir. Er langt síðan farið var að flytja fræð- andi erindi um eitt og annað í sýslu- fundarvikunni, en árið 1918 var stofnað félag til að standa fyrir slík- um erindaflutningi og umræðum um ýmis nytjamál. Það hét Framfarafé- lag og átti, eins og nafnið bendir til, að liefja umræður um ýmis málefni, er til framfara mættu verða fyrir land og lýð. Það hafði siðan fundi i tvö eða þrjú kvöld í sýslufundarvik- unni og fékk ræðumenn ýmist innan héraðs eða utan, ýmist bændur, kenn- ara eða aðra emhættismenn. Eins liafa ræðuefni verið fjölhreytileg og margs konar sjónarmið þeirra, sem þátt tóku í umræðunum. Voru fund- ir þessir oft fjölmennir og fjörugir, og andlegar skylmingar sumra eldri mannanna eru enn i minnum liafð- ar, og er nú farinn að koma á þær þjóðsagnablærinn, sem alþýða manna hér á landi á ævinlega hless- unarlegar gnægtir af. Mér er enn í minni fyrsti fundur- inn, sem ég var á. Það var veturinn 1933. fíg var þá á Höskuldsstöðum og var fenginn norður, því að þannig er jafnan leitað lil nýrra manna. Ég hafði ekki fyrr lokið erindi mínu en upp i pontuna ruddist Gunnar Bene- diktsson, fyrverandi prestur og skáld m. m., og var þá staddur þarna. Hann héll fram einliverri merkilegri speki, sem þá gekk meðal kommúnista, eins og t. d. þeirri, að Rússar mundu aldrei fara í strið og öðru álíka raun- hæfu. En þegar hann hafði lokið spádómum sínum, stóð upp gamall maður, hár og grannur og mikilúð- legur og hvítskeggjaður og skegg- prúður og kvaddi sér hljóðs, og ég fann, að allir hjuggust við einhverju góðu. Þetta var séra Arnór i Hvammi. Hann var ekki myrkur í máli, og ég man, að hann minntist á menn, sem gætu ]iað helzt, að gera kröfur, en á hvern? Gjaldþrola rikissjóð, sem liéldi þeim þó uppi, þessum mann- görmum, svo að þeir kæmust norður í land kjaftandi, Ijúgandi og svíkj- andi. Margir töluðu, og var fjör og líf i tuskunum og fundarsalurinn al- skipaður. Framfarafélaginu héldu rnjög uppi síðustu árin tveir menn, þeir Jónas Kristjánsson læknir og Pétur Sig- hvats símstjóri. En þegar Pétur dó og Jónas fluttist hurt, arfleiddi félag- ið Sýsluhókasafnið að sjóði sínum, með því sldlyrði, að safnstjórinn héldi uppi fundum með líku sniði og áður.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.