Samtíðin - 01.03.1942, Page 24
SAMTÍÐIX
20
um og málað myndir af bændunum
fyrir fáeinar krónur. Læknirinn
mælti eflir andartaksþögn: — Það
er alveg sjálfsagt að verða við til-
mælum yðar! Ég hef ekki gleymt seg-
ulnum.
Ekki óraði Samuel Morse þá fyrir
l>ví, að meinlaus sjónhverfingasýn-
ing á póstskipinu Sully, sem var á
leið til New York árið 1832, mundi
verða til þess að hreyta honum úr
frægum málara í heimsfrægan upp-
fyndingamann.
Dr. Jackson kom með skeifu úr
mjúku járni og vafði málmþræði ut-
an um Iiana. Því næsl tengdi hann
þráðinn við lítinn rafgevmi og hleypti
straumi á hann. 1 sama hili varð járn-
ið segulmagnað og dró að sér nokkra
nagla, sem lágu á borðinu. Læknir-
inn tók nú strauminn aftur af þræð-
inum, og við það varð járnið aftur
jafn magnlaust og áður. Hér var að-
eins um einfalda tilraun að ræða, en
í augum listamannsins Morse var
]>essi tilraun hvorki meira né minna
en lykill að nýrri veröld. Því lengur
sem hann hugsaði um hana, þeim
mun sannfærðari varð hann um það,
að nota mætti rafsegulinn til þess að
vinna maigfalt meira gagn en að
tína upp fáeina nagla og skemmta
fólki. í stað þess að nota nagla ráð-
gerði hann að nota mjóan járnstíl,
sem hægt væri að lyfta, en láta því
næst falla og merkja við það punkta
og strik á pappirsræmu, er rynni und-
ir endann á rafseglinum. Punktarnir
og strikin áttu að tákna vissa stafi
í stafrófinu.
Það, sem eftir var ferðarinnar,
sat Morse dag eftir dag í káetu sinni
Geir Stefánsson & Co. hf.
Urnboðs- og heildverzlun.
Austurslræti 1.
Reykjavík.
ALLS KONAR
VEFNAÐARV ÖRUR. —
ALLT TIL FATA.
Sími 1999 — P. O. Box 551.
Skipasmíði — Dráttarbraut
við Bakkastíg, Reykjavík
Símar: 2879 og 4779.
Látið okkur gera við skip yðar.
Við munum gera yður ánægða.