Samtíðin - 01.09.1942, Síða 8
4
SAMTlÐIN
„Háskólabókasafnið á að verða lyfti-
stöng íslenzkra vísindaiðkana,“
segir dr. Einar OI. Sveinsson, forstöðumaður þess
EG ÆTLA að
biðja Jesend-
ur Samtíðarinnar
að slu-eppa með
mér suður í Há-
skóla og fræðast
nokkuð um liið
nýja bókasafn,
Einar Ól. Sveinsson sein nn er tekið
að starfrækja inn-
an vébanda þessarar æðstu mennta-
slofnunar þjóðar vorrar.
Vér hittum forstöðumann safns-
ins, dr. Einar Ól. Sveinsson, í liinu
virðulega anddyri Háskólans, og er
bann fús til þess að fræða oss um
allt það helzta, sem segja má um
safnið, á þessu stigi málsins. Dr.
Einar opnar dyr að vesturálmu liúss-
ins, inn úr miðju anddyrinu, beint
undir hrjóstlíkaninu af Jóni Sig-
urðssyni, og við oss blasir vistlegur
lestrarsalur. Þarna eru tiltækileg-
ar nauðsynlegustu handbækur i
þeim vísindagreinum, sem kenndar
eru i Háskólanum. Hér er hátt und-
ir loft, eins og vera ber. Yfir inn-
göngudyrunum er brjóstlíkan úr eir
af prófessor Finni Jónssyni, hinurn
mikla velgerðamanni þessa safns,
og snúa þeir Jón Sigurðsson bökum
saman sinn hvorum megin veggjar.
Veggir Iestrarsalsins eru að neð-
an þiljaðir grænlitaðri eik, og skap-
ar sá Iitur hlýleik og ró, svo að gest-
irnir kunna brátt vel við sig og kom-
ast í fræðimannsskap, fjarri ys og
þys höfuðstaðarins. Hér eru sæli
fyrir 32 menn, og segir bókavörð-
ur, að síðastliðinn vetur bafi livert
sæti í salnum oft verið skipað.
Úr suðausturhorni salsins eru dyr
inn í lítið herbergi, sem ætlað er
fræðimönnum og öðrum, er einkum
þarfnast næðis. Þar eru húsgögn
öll í gulum lit. Inn úr norðvestur-
horni salsins er tímaritageymsla, en
inn úr sunnanverðum salnum stúka
bókavarðar. Inn úr miðjum salnum
eru dyr að bókageymslum safnsins.
Þær eru á tveim hæðum hússins,
en inn af þeim er varðveitt hið
mikla bókasafn, sem dr. Benedikt
S. Þórarinsson gaf Háskólanum.
Eftir að ég hafði litazt um í sala-
kynnum safnsins, átti ég eftirfar-
andi tal við forstöðumann þess:
— Hvernig er í stuttu máli for-
saga þessa bókasafns?
— Áður en Háskóli íslands var
stofnaður, árið 1911, áttu þeir skól-
ar, sem þá runnu inn í stofnunina,
einkum prestaskólinn og lagaskól-
inn, talsvert af bókum. Eftir stofn-
un Háskólans erfðu deildir hans
þennan bókakost, og síðan héldu
þær auðvitað áfram bókakaupun-
um smátt og smátt, eftir efnum og
ástæðum. Þá hafa Háskólanum bor-
izt bókagjafir úr ýmsum áttum. Þar