Samtíðin - 01.09.1942, Page 13
SAMTÍÐIN
9
MERKIR SAMTÍÐARMENN
F'r. Hallgrímsson
E. Powell
Síra. Friðrik Hallg-rímsson dómprófastur er fæddur í Reykjavík
9. júní 1872. Foreldrar: Hallgrímur Sveinsson dómkirkjuprestur,
síðar biskup, og kona hans, Elina M. B. Fevejle, yfirlæknis i
Khöfn. Friðrik Hallgrímsson varð stúdent vorið 1891 og hóf
haustið eftir guðfræðinám við Khafnarháskóla, en lauk því árið
1897. Kenndi næstu 2 ár við ýmsa skóla í Rvik, en vígðist jafn-
framt 12. okt. 1898 til prestsþjónustu við holdsveikraspítalann
í Laugarnesi, sem þá tók til starfa. Þjónaði Útskálaprestakalli
á árunum 1899—1903, en fór það sumar til Vest-
urheims og var prestur íslenzku safnaðanna í
Argylebyggð í Manitobafylki fram til vors 1925,
er hann hvarf lieim og gerðist dómkirkjuprest-
ur í Reykjavik. Varð prófastur í Kjalarnespróf-
astsdæmi árið 1938 og' dómprófastur í Rvík, er
höfuðstaðurinn var gerður að sérstöku prófasts-
dæmi fyrir tæpum 2 árum. Síra Friðrik er frá-
bærlega vinsæll maður og vel metinn í starfi
sínu. Hann hefur, síðan hann kom heim, gefið
út allmargar sögubækur handa börnum og ung-
lingum auk nokkurra annarra rita. Hann kvænt-
ist 5. júlí 1900 Bentínu Björnsdóttur, bónda í
Búlandsnesi i Suður-Múla-
sýslu, mikilhæfri lconu, eins og
hún á ætt til.
Samtíðin hef-
ur verið svo
heppin, að ná
loks í viðun-
andi mynd af
þeim manni,
sem einna mest
er nú talað um
í heiminum,
Eugen Johann-
es Rommel,
marskáikinum
þýzka, er stjórnar hernaðarað-
gerðum Þjóðverja og ítala í Af-
ríku þannig, að slíkt vekur al-
heims aðdáun jafnt meðai and-
stæðinga sem samherja. Rommei
er fæddur í Suður-Þýzkalandi
árið 1891. Tók þátt í styrjöld-
inni 1914—18, fyrst sem lágt
settur liðsforingi, en lilaut 1915
æðsta prússneska heiðursmerk-
ið, sem til var, fyrir að taka
mikiísverðar frakkneskar víg-
stöðvar. Rommel gerðist brátt fylgism. Hillers,
er hann hóf stjónmálabaráttu sína, og var selt-
ur yfir S.S.-sveitirnar. Ávann Ronmiel sér ])á
brátt mikið álit. 1 innrásinni í Póliand 1939
var Rommel yfirforingi, og í orustunni um
Frakkland stýrði hann 7. bryndrekadeildinni,
er brauzt í gegn hjá Mauberge og greiddi mjög
fyrir sókn Þjóðverjar til Ermarsunds. Hitler
gerði Rommel að yfirmanni Afrikuhersins árið
1940 til hjálpar ítölum.
Rommel
Eleanor Powell, hin yndislega,
heimsfræga kvikmyndastjarna,
er fædd i Springfield í Massa-
chusetts i Bandaríkjunum 21.
nóv., en fæðingarárinu er hald-
ið leyndu i nýjustu heimildar-
riturn. Eieanor er jarphærð og
bláeyg. Var upphaflega dans-
mær (frá 6 ára
aldri) og er nú
talin ein hin
mesta bailett-
dansmær í
heimi. Hún hef-
ur leikið í kvik-
myndum síðan
1935 og m. a.
hlotið miklar
vinsældir á fs-
landi.
Tojo
Hideki Tojo hershöfðingi, forsætisráðherra
Japana, er 56 ára gamall. Faðir hans var einnig hershöfðingi,
og er stríðshyggja runnin Tojo í merg og bein. Hann var 1938
settur yfir æfingastafsemi japanska flughersins og þá tekinn
fram yfir marga eidri menn. Siðan hefur honum miðað vel til
æðstu valda í Japan, enda drottnunargjarn maður og mjög að
skapi þeim auðmönnum, er styðja að stríðsþátttöku Japana,
sakir einkahagsmuna. Þeir, sem þekkja hann, óttast hann, en
í>nnars er hann frekar vinsæll út í frá.
Pavel Rychagov er yfirmaður alls rússneska flughersins. Hann
hiun vera ungur og giæsimenni, en uppiýsingar um hann vantar.
P. Rychagov