Samtíðin - 01.09.1942, Blaðsíða 14
10
SAMTlÐlN
Þórir Bergsson:
GAMALT LJÓÐ
Við sátum úti í „Söstjernen" og
supum öl úr krús
—- off urðum allir dús.
Þar margt var sagt af viti, — en
meira af hinu þó. —
Og mér fannst skútan komin
eitthvað út á reginsjó.
Og þá vorum við gáfaðir og
góðir, frjálsir menn
— og erum, kannske, enn.
En þarna úti’ í fleytunni við
fundum mætavel,
hve fylkingin var harðsnúin
mót Djöfli, Synd og Hel.
En þetta er gamall kvæði, sem
einhver kenndur kvað
■— og kemst nú loks á blað,
f káetunni á „Söstjernen“ það
komst í huga mér
með krús af þýzku öli, sem er búin
— því er ver.
Sá dagur var, — þótt færi ég
á fold með tóman sjóð,
eitt fagurt dýrðarljóð.
— Og þarna varð ég dús við
eitt þjóðskáld eða tvö.
— Þau þekktu mig ei daginn eftir,
— jæja — Adieu.
£)EIIi ÖRFÁU áskrifendur Sam-
tíðarinnar í Reykjavík, sem
enn eiga ógreitt áskriftargjald sitt
fgrir 1942, eru vinsamlega beðnir að
sernla það í bréfi til afgreiðslunn-
ar eða greiða það í bókaverzlun
Finns Einarssonar, Austurstræti 1,
sem allra fyrst. Útvegið Samtíðinni
nýja áskrifendur með því að segja
vinum yðar frá henni.
Reynið að svara
cftirfarandi spurningum, en svörin
eru á bls. 29:
1. Hver uppgötvaði hringrás blóðs-
ins, og hvenær var sú uppgötv-
un gerð?
2. Hvers vegna eru menn yfirleitl
ekki örfhendir?
3. Hver islenzkaði kvæðið Zombi-
en eftir H. C. Andersen?
4. Hvar er bærinn Revel?
5. Ilvaða fslendingur ferðaðist suð-
ur í lönd til þess að kynna sér
menningu og háttu annarra
þjóða á fyrra hluta 19. aldar?
r ALABAMA má kvenfólk ekki
1 ganga með öklaskraut.
í Utali má kvenfólk ekki ganga á
skóliælum, sem séu hærri en IV2
þunil.
í Boston verða hundar, sem kven-
fólk teymir, að vera fótalægri en 10
þuml.
í Missisippi er bannað að ganga
á götum úti með óhnýttar skóreimar.
í New York ríki mega menn ekki
spenna út regnlilíf mjög nálægt liesti.
(Úr L’Illustré, Lausanne).
Dómari: —■ Þér eruð hér nieð
dæmdur í 16 króna og 20 aura sekt
fgrir það, að þér hafið barið hana
tengdamóður gðar!
Sá ákærði: — Hvað eiga þessir
20 aurar að merkja?
Dómari: — Það er skemmtana-
skatturinn, drengur minn.