Samtíðin - 01.09.1942, Page 18

Samtíðin - 01.09.1942, Page 18
14 SAMTÍÐIN Gerald Kersh: MYR KVA MYRIÍVASTOFURNAR eru hérna niðri, mælti fangavörð- urinn. — Farið þið gætilega. Tröpp- urnar eru slitnar. Nú erum við kom- in niður fyrir yfirborð vatnsins i vígisgröfinni. Hér er mikill raki. Komið ekki við veggina. Þeir eru allir þaktir eins konar sveppagróðri. Það gerir ykkur ekkert mein, ekki hið minnsta. Það ólireinkar l)ara fötin ykkar.. Já, myrkvastof- urnar eru tómar núua. Mér er sagt, að þeir séu að reisa nýtt fangelsi, sem þeir segja, að eigi að vera heilsusamlegt nýtizku hetrunarhús. Það á að vera þarna í Kalvarea. En ég segi nú alllaf: Fangelsi á að vera fangelsi. Góðir menn lenda aldrei i svartholinu. Hvað á þá að vera að vanda til fangelsis? .... Það er allt í lagi, ef það er nógu traust- hyggt til þess, að fangarnir sleppi ekki út... Þetta fangelsi er nú orðið 800 ára gamalt, og það er eins gott og það væri nýtt. Það var reist, herrar mínir, af Manolescu greifa á 12. öld. Og það hefur að staðaldri verið notað, þangað til 10 síðustu árin. Langar ykkur til að líta á myrkvastofurnar eða viljið þið held- ur fara beina leið til pislarklefans? Myrkvastofurnar. Gott og vel, en þar er hara ekki mikið að sjá. Fangavörðurinn opnaði dyr, sem þung járnhurð var fyrir, og lyfti Ijóskerinu eins liátt yfir höfuð sér 100. saga Samtíðarinnar STO FAN og kraftar liinnar gigtveiku Iiægri liandar Iians levfðu. Myrkvastofan var hræðileg vistavera. Hún var 10 fet á lengd, hreidd og hæð, loftið var daunilit af raka, og pestin var svo mikil, að okkur lá við köfnun. Þarna var ískall og dapurlegt um að litast. Einn af okkur sagði: — Komið þér með ljósið hingað. Mér sýnist vera einliver útskurður þarna á veggnum. — Utskurður, herra minn, anzaði fangavörðurinn, — biðjið þér fyrir yður, allir veggirnir eru útkrotaðir. Sjáið þér til, það lýsir hetur í þessa átt.... Gulleit hirtan frá Ijóskerinu myndaði rétthyrndan ferhyrning á norðurvegg fangaklefans. Við þyrpt- umst allir þangað. Einhver hafði með fádæma kostgæfni breytl slein- fletinum í rismynd með fjölda fólks, og átti þella að sýna athurði úr lifi Jesú Krists. Hér var krossfestingin. Listamanninum hafði tekizt að láta steininn sýna þjáningar lansnarans. Það var einhver óendanlegur hitur- leiki í hinni sáru kvöl, sem hann hafði mótað í andlitsdrætti Jesú. — Ef þið virðið þessar skurð- myndir gaumgæfilega fvrir ykkur, munuð þið veita því athygli, að ])£er eru ekki gamlar, mælti fangavörð- urinn. — Þær eru eftir seinasta fang- ann, sem hérna var. Hann dó . • • • Ég man ekki nákvæmlega, hvemci’

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.