Samtíðin - 01.09.1942, Qupperneq 25
SAMTJöIN
William Stapley:
Stalin á dóttur
SVETLANA Stalin heitir hún,
þessi dularfulla stúlka, sem
sárfáir menn vita nokkur deili á,
því að liún liefur allan aldur sinn
— sevtján ár — hafzt að miklu
leyti við innan múra Kremlins, og
þar er hún fædd.
Svetlana er falleg stúlka, grann-
vaxin og dökk á brún og brá. Ef
hún fær að hætta sér út á hin breiðu
stræti Moskvu, fvlgja henni jafnan
fílefldir gæklumenn úr lífverði föð-
ur hennar. Ekki láta þeir mikið á
því bera, að þeir hafi verið sendir
út af örkinni stúlkunni til verndar,
en eru jafnan við öllu búnir, ef
Svetlana kvnni að mæta einhverjum
grunsamlegum náunga, sem gerðisl
of nærgöngull við liana.
Svetlana Stalin mun vera sú rík-
isstjóradóttir, sem einna minnstar
sögur hafa farið af í heimi hér. Sár-
fátt fólk í Moskvu þekkir hana í
sjón, hvað þá í reynd. Engin mynd
af henni hefur nokkru sinrii birzf
i blaði eða tímariti, og líklegt þvk-
ir, að hún hafi aldrei verið ljós-
mvnduð. Æska hennar er sveipuð
fyllstu dul. Enginn veit til þess, að
hún hafi ált sór leiksystkin, en hafi
hún átt nokkur, er varizt allra frétta
um, hver þau séu. Uppeldi liennar
er í samræmi við ómannblendni
^talins og ímugust lians á því, að
umheimurinn öðlist nokkra vit-
neskju um sig eða sína. Það eina,
sem við vitum um Svetlana, er að
21
Bækur
Pappír
Ritföng
BÓKAVERZLUN
SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR
KEXVERKSMIÐJAN
ESJA H.F.
Framleiðum allar tegundir af
KEXI og KÖIÍUM.
Ennfremur
BJÖRGUNARBÁTAKEX.
Símar 3600 — 5600.
Símnefni: Esja. — Pósthólf 753.
ESJU-KEX ER YÐAR KEX!