Samtíðin - 01.09.1942, Page 29
Phyllis Bentley:
EFTIRFARANDI símskeyli: Frú
, lioosevelt voncir, að þér getið
negtt miðdegisverðar hjá henni
þriðjudaginn 8. apríl kl. 17.30, barst
mér ekki í liendur fyrr en mánu-
daginn 7. apríl. Nú vildi svo til, að
ég liaf'ði verið beðin um að flytja
erindi í fjölmennri hádegisveizlu.
sem halda átti í New York 8. apríl.
Það er 5 klst. járnbrautarferð frá
New York til Washington, svo að
ég varð að taka mér far þangað með
flugvél.
Allt þetta bafði gerzt á örskammri
stuudu, og ég' var salt að segja dá-
lítið óstyrk, þegar ég ók í Ieigubiln-
um síðasta spottann yfir upplýst
torgið að hinu virðulega Hvíta búsi
í Washington, þar sem forsetinn
býr.
Nú hægði billinn skyndilega á sér,
og einn af liúsvörðunum gekk að
honum og virti mig fyrir sér gegn-
um bílrúðuna. Hann mun hafa lit-
ið svo á, að ég befði engar hand-
sprengjur meðferðis, og væri að öllu
leyti ógrunsamleg persóna, því að
hann brosti og kinkaði kolli, og síð-
an renndi bíllinn upp að súlnaröð
Hvíta hússins. Meðan ég var að
borga bilstjóranum, opnaði svert-
ingi dyr, og þegar inn úr þeim var
komið, var mjer fagnað Ijúfmann-
lega af einum af riturum forsetans,
er sýndi mér á uppdrætti af borð-
sal, hvar ég ætti að sitja. Þetta ró-
Dömufrakkar
ávallt fyrirliggjandi
Guðm. Guðmundsson
kíæðskéri
Kirkjuhvoli. Sími 2795
Reykjavík