Fréttablaðið - 23.12.2009, Page 46
42 23. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Okkar árlega Þorláksmessuskata á aðeins. 3.490.-
Kæst Skata, Tindabikkja og Saltfi skur. Allt kemur á borðið til þín
og þú borðar eins og þú getur í þig látið. Láttu þennan þjóðlega
sið ekki fram hjá þér fara
Borðapantanir í síma 511-5090.
Einar Ben restaurant - Veltusund 1
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. betrun, 6. þys, 8. fiskilína, 9. atvik-
ast, 11. í röð, 12. sjúga, 14. steinteg-
und, 16. tónlistarmaður, 17. blása, 18.
eyrir, 20. tveir eins, 21. skjótur.
LÓÐRÉTT
1. yndi, 3. skammstöfun, 4. lofttóm,
5. starf, 7. flík, 10. skammstöfun, 13.
skaði, 15. eins, 16. kóf, 19. slá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. bati, 6. ys, 8. lóð, 9. ske,
11. mn, 12. totta, 14. kvars, 16. kk, 17.
púa, 18. aur, 20. mm, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. al, 4. tómarúm,
5. iðn, 7. skokkur, 10. etv, 13. tap, 15.
sama, 16. kaf, 19. rá.
„Þessa dagana svífur jólastemn-
ingin yfir vötnunum eins og
vera ber. Nýi diskurinn hennar
Hönsu er mikið tekinn sem og
annar diskur eldri en sígildur,
Ilmur af jólum með Heru Björk.
Það eru síðustu forvöð að koma
sér í jólaskapið.“
Björn Þorláksson, rithöfundur og nemi.
„Hann er náttúrlega einn allra besti lagahöf-
undur landsins,“ segir Magnús Geir Þórðarson
borgarleikhússtjóri, sem staðfestir að í undir-
búningi sé söngleikur með lögum Magnúsar
Eiríkssonar. „Það eru flottar sögur í mörgum
lögunum hans og við teljum að það sé þarna
efni í virkilega flotta sýningu. Hér er verið að
velta upp ýmsum hugmyndum um hvernig er
hægt að nálgast þetta á sviði. Svo sjáum við til
hvað verður úr því.“
Maggi Eiríks er þegar búinn að undirrita
viljayfirlýsingu um að söngleikurinn verði
gerður og að sögn Magnúsar Geirs er stefnt
á að setja hann á fjalirnar á næsta ári ef allt
gengur að óskum.
Maggi Eiríks segir að það sé ekki ný hug-
mynd að gera söngleik eftir lögunum hans. Það
hafi þegar verið gert hjá áhugamannaleikhúsi
í Borgarfirði með góðum árangri fyrir rúmum
áratug síðan. „Þar voru músíkin og textarnir
notaðir sem beinagrind í sögu. Þetta var flutt
í Borgarfirði og víðar við góðar undirtektir,“
segir Maggi. Hann útskýrir að Jóhann Sigurð-
arson leikari hafi einnig viljað gera söngleik
úr lögum hans og núna hafi Borgarleikhúsið
tekið hugmyndina upp á nýjan leik. Spilar
þar væntanlega inn í gott gengi ævisögu
hans sem kom út fyrir jólin. „Magnús Geir
hringdi í mig í haust og vildi skrifa undir
viljayfirlýsingu. Boltinn er hjá honum.“
Maggi viðurkennir að það gæti verið
mjög gaman að sjá söngleikinn í Borg-
arleikhúsinu, sérstaklega ef ein-
hver vel valinn aðili myndi ann-
ast leikgerðina. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur
hinn þrautreyndi Ólafur Hauk-
ur Símonarson verið nefndur í
þessu samhengi en það hefur
ekki fengist staðfest. - fb
Söngleikur með lögum Magga Eiríks
MAGNÚS GEIR ÞÓRÐAR-
SON Söngleikur með
lögum Magnúsar
Eiríkssonar er í
bígerð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Guðmundur Benediktsson þulur er einn þeirra
sem lesa upp jólakveðjurnar á Rás 1 í dag. Upp-
lesturinn er orðinn fastur liður í jólaundirbúningi
margra landsmanna og hefur kveðjunum rignt
inn frá 14. desember, en hætt var að taka á móti
kveðjum klukkan fimm í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum frá RÚV er fjöldi kveðja svipaður og hefur
verið undanfarin ár og því ljóst að þjóðin nýtur
þess enn að senda náunganum kveðju á öld sms-
skeyta og tölvupósta.
„Ég er búinn að vera að þessu í nokkur ár,
en jólakveðjurnar eru auðvitað búnar að vera
fastur liður í útvarpinu í nokkra áratugi,“ segir
Guðmundur en upplesturinn hefst klukkan níu um
morguninn og stendur eitthvað fram á nótt. „Við
erum bundin við þetta allan daginn því þetta er
allt tekið í beinni,“ bætir Guðmundur við en auk
hans lesa Sigvaldi Júlíusson, Anna Þóra Einars-
dóttir og sjónvarpskonan Eva María Jónsdóttir
jólakveðjur landsmanna.
Guðmundur segir þulina skiptast á að lesa í
nokkrar mínútur í senn og viðurkennir að upp-
lesturinn geti tekið á. „Við höldum okkur uppi
með því að gúffa í okkur konfekti og drekka kaffi.
Sjálfur er ég vel stemmdur fyrir daginn og þetta
kemur manni endanlega í jólaskap,“ segir hann.
Vegna vinnu sinnar geta þulirnir ekki geymt jóla-
innkaupin fram að Þorláksmessu líkt og margir
gera og segir Guðmundur að betri helmingur-
inn verði að ganga í þau verk skyldi eitthvað hafa
gleymst. - sm
Jólaþulir borða konfekt og kaffi
JÓLAÞULIR Guðmundur Benediktsson, Eva María Jónsdóttir,
Sigvaldi Júlíusson og Anna Þóra Einarsdóttir flytja landsmönn-
um jólakveðjur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Það átti að skilja okkur í
Bloodgroup eftir í Amsterdam,“
segir tónlistarmaðurinn Ragnar
Jónsson.
Ragnar og félagar í hljómsveit-
inni Bloodgroup komust í hann
krappan í Hollandi um helgina. Þar
komu þau fram á tónlistarhátíðinni
Reykjavík to Rotterdam ásamt
Mugison, Benny Crespo‘s Gang og
Ham. Skipulagning hátíðarinnar
er í höndum Hollendingsins Mar-
cel Edwin Deelen og Ragnar segir
framkomu hans hafa verið ótrú-
lega. „… Að ætla að skilja okkur
eftir, peninga- og kreditkortalaus
í Amsterdam yfir jólin. Þau létu
okkur vita tíu mínútum fyrir flug
að við þyrftum að redda okkur
sjálf,“ segir hann.
Forsagan er sú að flugin sem
voru bókuð fyrir hljómsveitina
voru þannig tímasett að engin
leið hefði verið að ná þeim. „Við
þurftum ný flug og þeir vildu ekki
borga fyrir þau,“ segir Ragnar.
Meðlimum Bloodgroup stóð ekki á
sama, þar sem þau sáu fram á að
eyða jólunum auralaus í Amster-
dam. Marcel haggaðist ekki og svo
fór að Óttarr Proppé og félagar í
hljómsveitinni HAM slógu saman
og hlupu undir bagga. „HAM
bjargaði jólunum,“ segir Ragnar.
Helgi Rúnar Gunnarsson, söngv-
ari og gítarleikari Benny Crespo‘s
Gang, setur einnig spurningar-
merki við skipulag og kynningu
hátíðarinnar. Á heimasíðu Reykja-
vík to-samtakanna kemur fram að
þeir sem taka þátt geti gengið að
því vísu að besta mögulega mark-
aðsstarf sé unnið í hverju landi.
Helgi tekur ekki undir það. „Þeir
borguðu mörg hundruð þúsund
krónur til að koma öllu liðinu út til
að spila, staðurinn var þvílíkt flott-
ur – en það mættu 40 manns,“ segir
hann. „Þetta var ekkert kynnt. Þeir
gerðu ekki einu sinni „event“ á
Facebook og buðu vinum sínum.“
Helgi er einnig ósáttur við vinnu-
brögð Marcels Edwin sem hann
segir hafa notað gjafabréf, sem
Benny Crespo‘s Gang fékk í gegn-
um Loftbrú, til að greiða flugferð-
ir starfsmanna hátíðarinnar. „Við
borgum skatt af þessum styrkjum,“
segir Helgi og bætir við að Marcel
hafi logið og sagt við þau að hann
hafi ekki notað gjafabréfin.
Jón Páll Ásgeirsson, fjölmiðla-
fulltrúi hátíðarinnar á Íslandi, segir
að Anna Hildur Hildibrandsdótt-
ir, framkvæmdastjóri IMX, hafi
bókað illa tímasett flug Bloodgroup
frá London. „Við gátum ekki borið
ábyrgð á þessum mistökum,“ segir
hann. Hann viðurkennir að það hafi
verið mistök að halda Bloodgroup
á flugvellinum í von um að málið
myndi leysast, en flugið til London
fór í millitíðinni. Jón gat ekki tjáð
sig um gjafabréfin sem Marcel á að
hafa notað í leyfisleysi.
Ekki náðist í Marcel Edwin
Deelen við vinnslu fréttarinnar.
atlifannar@frettabladid.is
RAGNAR JÓNSSON: ÞAÐ ÁTTI AÐ SKILJA OKKUR EFTIR Í AMSTERDAM
HAM BJARGAÐI JÓLUNUM
JÓLAKRAFTAVERK
Bloodgroup lenti
í kröppum dansi í
Hollandi en strákarn-
ir í HAM björguðu
málunum í anda
jólanna.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær heimsótti tónlistargoðsögnin
Stevie Wonder íslenska leikar-
ann Stefán Karl
Stefánsson eftir
að sá fyrrnefndi
sá söngleikinn
The Grinch í
Hollywood. Wonder
eyddi víst drjúgum
tíma baksviðs
með leikurum
og leyfði öllum
þeim sem vildu mynda sig með
honum. Svo skemmtilega vildi til
að Sylvester Stallone ætlaði líka
að sjá umrædda sýningu en hann
varð frá að hverfa vegna áreitis frá
paparözzum.
Fáheyrt er að auglýsingaherferð nái
eyrum jafn margra og græni froskur
fjarskiptafyrirtækisins Vodafone.
Froskurinn hefur fangað athygli
barna á sjónvarpsskjáum og mátti
sömuleiðis líta langa röð þeirra bíða
eftir því að stilla sér
upp í myndatöku með
honum í Smáralindinni
um síðustu helgi.
Þá eru ónefndir
hringitónarnir
með máli
frosksins. Þá
er fjarri því allt upp
talið en nokkrir þeirra sem notuðu
einn skanna af þremur í líkamsrækt-
arstöð World Class í Laugum um
helgina fengu þessa fallegu kveðju
þegar þeir skráðu sig inn: „Hver er
með svona falleg augu? Essasú?“
Íslendingar virðast elska íslenskt
efni. Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá seldust fjórtán þúsund
eintök af DVD-dis-k Fangavaktar-
innar og mynddiskur Auð-
uns Blöndal, Atvinnumenn-
irnir okkar, virðist einnig
hafa mælst vel fyrir. Hann
er nú nánast uppseld-
ur, hefur selst í fimm
þúsund eintökum en
ekki verður ráðist í
aðra prentun, ef svo
mætti að orði
komast. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Efsta skattþrepið er 33 prósent.
2 Gunnlaugur Sigmundsson
er formaður flugráðs.
3 Messi og Marta eru
knattspyrnumenn ársins.