Samtíðin - 01.12.1960, Qupperneq 24
16
samtíðin
Sttiyjgit i k on uny u r in n **
• ...........................STAÐFESTIR RÁÐ SITT
í NÍU ÁR hafa Belgíumenn beðið þess
með óttablandinni eftirvæntingu, að
Baudouin, konungur þeirra, staðfesti ráð
sitt. Það vakti því ekki lítinn fögnuð, er
Gaston Eyskens, forsætisráðherra Belgíu,
tilkynnti í útvarpi 16. sept. sl., að kon-
ungur Iiefði nú opinberað trúlofun sína
með mjög tiginborinni 28 ára gamalli
spænskri aðalsmeyju, Fabiola de Mora y
Aragon. Þau Baudouin og Donna Fabiola
hittust að sögn fyrst á frönsku Miðjarðar-
hafsströndinni fyrir tveim árum. Síðan
hafa þau liitzl öðru hverju suður á Spáni.
Drotlningarefni Belgíu er svo lýst, að
hún sé móeyg, Ijóshærð og grannvaxin.
Baudouin og Fabiola.
Hún er 170 cm á hæð og vegur 60 kg-
Hún og greifafrúin af Salle eru tvíbura-
systur. Hún talar auk móðurmáls síns
ensku, þýzku og frönsku, hefur gaman af
að aka bíl, leika tennis, hlusta á tónlist
og skoða listaverk. Hún er trúrækin og
óframfærin og hefur um skeið hjúkrað
í spænskum hermannaspítala. Hún er af
einni tignustu aðalsætt Spánar. Meðal
ættmenna hennar eru konungar af Ara-
góníu og Navarra. Fjölskylda hennar er
stórauðug, á m. a. lendur miklar á Norð-
ur- og Austur-Spáni, húseignir í París
og býr í eigin höll í Madrid, skreyttri mál-
verkum eftir Gojm, Velasques og E1
Greco.
BAUDOUIN Belgíukonungur hefnr
löngum sætt gagnrýni, enda hefur liann
stundum verið talinn liálfgerður vonar-
peningur. Til þess liggja nokkur rök. Kon-
ungur átti sér örlagarika bernsku. Þega1'
hann var þriggja ára, lézt hinn dáði og
einkar vinsæli afi hans, Albert konungur,
af slvsförum, er hann var að klifa Ar-
dennafjöllin. Finnn ára gamall missh
Baudouin móður sína, Ástríði drottningu
af Svíþjóð; hún fórst í bilslysi suður 1
Sviss. Maður hennar, Leópold konungur
III., ók sjálfur bílnum, er slvsið vildi tiL
Honum varð svo mikið um þetta, að liann
gerðist dulur, bitur og óþjáll i skap1-
Bitnaði það harðneskjulega á Baudouin
prinsi, sem var fremur veikbyggður og
tilfinninganæmur.
Svo skall heimsstyrjöldin á. Þýzkur he1
ruddist inn í Belgíu í maí 1940. Leópold
konungur stjórnaði sjálfur vörnum lands-
ins, en lét hersveitir sínar — gegn vilja
belgisku ríkisstjórnarinnar — gefast upP