Samtíðin - 01.11.1961, Side 11
SAMTÍÐIN
7
Á ég — eða á ég ekki?
IIRÆDD skrifar: Kæra Freyja. Ég er í
vanda stödd. Ég er rúmlega fimmtug og
hef verið gift í 23 ár manni, sem er tals-
vert yngri en ég. Nú segir liann mér, að
hann sé orðinn ástfanginn i ungri konu.
En hún er gift og vill ekki skilja!
Á ég að fara til mannsins hennar og
segja honum frá þvi, að þau séu að draga
sig saman? Þá fæ ég manninn minn aftur.
En ég er þó hálfrög við að gera þeíta.
Hvað ráðleggurðu mér?
SVAR: Þetta vara ég þig eindregið við
að gera. Það verður til þess, að þú spillir
liamingju hinna hjónanna og missir svo
manninn þinn í þokkabót. Reyndu að
taka ])essu rólega, og vertu elskuleg og
umburðarlvnd við mann þinn. Það er að
mínu áliti skynsamlegasta leiðin í þessu
máli. — Þín Freyja.
Lakkið lengi að þorna
FLJÓTHUGA skrifar: Ég vinn á skrif-
stofu, þar sem mikil snyrtimennska rík-
ir. Þess vegna lakka ég neglurnar tvisvar
í viku. En mér gremst, hve lakkið er allt-
af lengi að þorna. Ég hef reynt allar teg-
undir, sem ég hef getað náð í. Geturðu
ráðlagt mér nokkuð?
SVAR: Ef þú ferð rétt að og hreinsar
ekki sízL alla feiti af nöglunum, áður
en þú lakkar þær og notar Ijæði undir-
og yfirlakk af beztu tegund, á það að
endast a. m. k. viku. En gott laklc er yfir-
leitl lengi að þorna. Rezl er að lakka
neglurnar, þegar maður er háttaður á
kvöldin. Þá er liægt að taka lífinu með
ró og lila i bók, á meðan lakkið er að
þorna. Það herðir lakkið að láta sem
snöggvast renna ískalt vatn á hendurnar,
þegar það er orðið vel þurrt. Ef þú vinn-
Ur að heimilisstörfum, er gott að vernda
hendurnar með gúmmiliönzkum.
it Augnabrúnalitur
JÓNA spvr: Hvernig á ég að ná af mér
augnabrúnalit, sem þvæst alls ekki af
með vatni? Ég hef líka reynt að ná hon-
um af bæði með olíu og mjólk, en hvor-
ugt dugar. Morguninn eftir sitja brúnir
baugar við augun!
SVAR: Þetta á að vera vandalaust, því
að i snyrtivöruverzlunum fæst vökvi til
að ná burt litnum með. Það er meira að
segja venja að selja liann, um leið og
fólk kaupir litirin.
BUTTERICK-snið nr. 9868 í stærðunum 10
—18. Vetrartízkan fyrir ungu stúlkurnar. Litlu
myndirnar sýna fatnaðinn að aftan. Sniðin fást
hjá SÍS, Austurstræti og kaupfétögunum um
land allt,