Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 15
SAMTlÐIN 11 „Já, hún er hér,“ anzaöi ég. Öðru gat ég ekki svarað, svo þurr varð ég allt í einu i munninum. Maðurinn liafði nefni- lega ekki fyrr tekið til máls en ég vissi, hver hann var. Það voru sömu augun og á mvndinni hak við mig. Af Maríu datt hvorki né draup. Hún náfölnaði að vísu, en hún gekk lil komu- manns og þrýsti grönnum og vesaldar- legum líkama hans að hrjósti sér. Mér varð starsýnt á strigarenningana, sem vafið hafði verið hirðuleysislega um fótleggi hans, sprungin hermannsstígvél- in, skeggjaðar, innfallnar kinnarnar, tóma ermina — i skemmstu máli sagt: þessa ferlegu skopmynd af fjandmanni úr stríðinu, sem hingað var kominn til þess að sundra hamingju minni. María sagði: „Ó, Lúðvík, elskan mín! Ó, hvað það er gott að sjá þig. Þú ert lif- andi og frjáls maður. Hvernig fórstu að komast lífs af? Ó, hvað allt þetta var ægilegt!“ Ég býst við, að geslurinn liafi verið of þreyttur til að geta komið upp nokkru orði. Svo seildist ég eftir skinnjakkan- um mínum, sem hékk á snaganum hak við hurðina, sneri mér við og leit fram- an í.hann. „Nú fer ég,“ varð mér að orði. „Þér þurfið að fá eilllivað að horða og hvila yður svo í friði og ró. Þér eruð gæfumað- ur, Lúðvík Schlosser." María var farin fram í eldhús að hita kaffi. Ég Iokaði dyrunum ldjóðlega á eftir mér og héll út í hylinn. Svo gekk ég lengi. Þegar loks liætti að snjóa, var Höfum ávallt fyrirliggjandi allan ferða- og skíðaútbúnað. ég kominn langt fram hjá húsinu, þar sem liðsveit mín bjó. Ég sá Maríu aldrei eftir þetla. En hún sendi mér línu með gamalli konu, sem hjó í næsta húsi við hana. Það var kveðj- an hennar. MEIR EN 10 ár eru liðin. Nú á ég heim- ili og fjölskyldu. Samt minnist ég enn glöggt þriggja andlita, rélt eins og ég hefði séð þau i gær. Heinz litli, sem mér var farið að þykja svo vænt um, er nú orðinn 10 ára. Ég sé liann enn í anda eins og engil, með súkku- laðið á hökunni. Torkennilegt andlit Lúðviks Schlossers, sem féll í stríðinu og reis upp frá dauð- um, er mér ekki síður minnisstætt en andlit sonar hans. Og María? Hún er lijá mér, í hvert sinn er ég loka augunum og nefni nafnið hennar. Hún mun alltaf verða hjá mér, ávalll verða 22ja ára, ávallt jafn fögur og hugrökk og hún var kvöldið, er við sáumst seinast. ★ 25 krónnr borgar SAMTÍÐIN fyrir hvern nýjan áskrifenda, sem henni er útvegaður. — Vinnið ykkur inn mikla peninga með því að senda blaðinu marga nýja kaupendur. Blaðið kostar aðeins 65 kr. á ári (10 blöð). Haldið ómakslaunum ykkar eftir, er þið sendið okkur árgjöldin ásamt kaupenda- listunum. Við sendum nýju kaupendunum síðan blaðið beint frá síðustu áramótum og 1 árgang í kaupbæti. — Vinsamlegast skrifið nöfn og heimilisföng gi'einilega. Með fyrirfram þökk fyrir ánægjulegt samstarf. Austurstræti 17. Sími 13620. SAMTlÐIN, Pósthólf 472, Rvík.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.