Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 19

Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 19
SAMTÍÐIN 15 Mig hryllti við sundurtættu andliti hans og sárvorjcenndi lconu hans að verða að sjá liann þannig útleikinn, en Jiað urðu: yjj¥r endurfundir MÉR HAFÐI ekki komið dúi- á auga þessa nóti. Þegar óg renndi svefnþyrst- um augunum um sjúkrastofu Flug- mannasjúkrahússins, sá ég, að ég var eini sjúklingurinn, sem var vakandi. Verst þótti mér, að flugvélarskyttan í rúniinú á móti mér hraul svo hátt. Vökukonan færði mér svefndrvkk og staldraði við til að spjalla við mig. Hún færði mér þær fréttir, að von væri á nýjum sjúklingi í næsta rúm við mig; hann hefði komizt einn af, er flugvél hrapaði til jarðar. Siðan hafði honum í ofboði verið ekið til sjúkrahússins. Hálftíma seinna heyrði ég gegnum svefnmókið ískur í flutningahifreið, og j)á vissi ég, að nýi sjúklingurinn myndi vera kominn. Skömmu seinna kom næt- ur-hjúkrunarliðið með hann inn i stof- una og haYði hraðann á, er ])að lagði hann gætilega upp í rúmið. Er ég leit til lians, rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds. í stað andlits blasti við mér eitthvað eldrautt, sem virtist vera sundurtætt hold með tveim sokknum augum, sem skimuðu umkomu- laus kringum sig. Ég féll aftur í mók, en þegar ég vakn- aði, var kallað glaðlega til mín: „Sæll vertu!“ frá brenndu andlitinu. Ég tók kveðjunni léttilega og gat ekki annað en dáðst að bugrekki og þreki þessa manns. Svo fórum við að rabba sarnan, og þá sagði hann mér, að flug- vél sin hefði orðið fyrir skothríð, er hún var á heimleið frá sprengjuárás á Berlín. Ilonum hafði þó lekizl að fljúga henni alla leið inn vfir enska grund, áður en hrevflarnir ónýttust alveg. Við röbbuðum saman góða stund. Jú, hann var kvæntur, en það var aðeins mánuður, síðan hann hafði gengið í heilagt hjónahand. Hann sagði, að kon- an sín væri Rauða kross hjúkrunarkona, og þegar hann fór að lýsa henni, varð rödd lians ástúðleg og mild. Mig fór að gruna, að hann hefði aðallega beyg af því, að hún sæi hann svona á sig kominn, en væri ekkert smeykur sjálfur. Og ég skildi þetta mjög vel. Auðvitað hryllti hann við því, að hún skyldi þurfa að sjá framan í hann svona ægilega út- leikinn. Skömmu seinna kom vfirlæknirinn á stofugöngu. Hann sagði félaga mínum, að sent myndi verða eftir konu lians. Flugmaðurinn grátbað hann um að láta ekki gera það. „Ég held, að það sé ófrávíkjanleg regla“, svaraði læknirinn, „en liafið eng- ar áhyggjur. Konan yðar er alvön að sjá svona lagað. Auk þess hafið þér mjög gott af að hitta hana.“ Allan daginn var kunningi minn allt- af öðru hverju að minnast á, hve hrædd- ur liann væri um, að konu sinni myndi hregða í brún, þegar bún sæi hann. Ég reyndi árangurslaust að telja kjark íhana, og slíkt hið sama gerði hjúkrunarkonan. Hún sagði honum, að kona hans myndi koma seinni partinn á morgun. Ég fór nú að vorkenna félaga mínum Og sárkvíða fyrir þvi, hve rnjög konu hans hlyti að hregða í brún, er hún sæi hann. Og eftir því sem stundirnar liðu, varð mér órórra í skapi. Þá var ])að, að hjúkrunarkonan birt- isl í dyrunum og með henni yndislegasta stúlka, sem ég hef nokkurn tíma séð. Hún var engilfögur og einkar góðleg. Hún gekk að rúmi manns síns, brosti blíðlega og klappaði honum á reifaða höndina.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.