Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 29

Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 29
*$4 MTÍÐIN 25 21. vlána, SKALDIN KVÁÐU Páll Guðmundsson, oddviti á Hjálmsstöðum í Laugardal, var greindur maSur og skáld gott. Einna kunnust af kve'ðskup lians er Tómasar ríma um Tómas Tómasson, bónda í Brattholti í Biskupstungum, prentuð í Lesbók Morgun- blaðsins 1928 og aftur í 2. bihdi ritsins Inn til fjalla 1953, enda bráðsnjöll. Við birtum hér 10 erindi úr kvæðinu Vísur um Grímsvatnagosið 1934 eftir Pál á Iljálmsstöðum, en þær sýna vel hagmælsku lians og vald á skáldskaparmáli. Dynur í gosi gnýrinn hár, glampi brosir rauður. Böndin losar Loki flár, lyftist frosið hauður. Umbrot harðna. Ileljartök hót og varnii* dylja. Aldahjarn og hamraþök hyrjar kvarnir mylja. Upp af hlóðum aska grá eitri gróður skarðar. Máninn hljóður horfir á háar glóðir jarðar. Drunur þungar þruma í þögn og drunga kveldsins. Rökkurþrungin rísa ský, roðuð tungum eldsins. Mökkinn toga liægt og hljótt himinbogans víddir. Bjartir logar lýsa nm nótt, leifturflogum prýddir. Bræða glóðir breðans föng, berast hljóð um svæði. Jökulmóða mögnuð ströng markar slóð að Græði. Býsnum gölluð boðaföll brjóta völl og grundir. Hamrastöllum steypir Gjöll, stynja fjöllin undir. Hér er margt að heyra og sjá. Illaðast svartir garðar. Æðapartar órótt slá inn við hjarta jarðar. Voðablandin vatnaföll vekja grand og kvíða. Eftir standa stálgrá fjöll stök um sanda víða. íslands þjóðin þrótt má sjá, þar sem glóðir skarta, fóstran góða enn þá á eld og móð í hjarta. „Mér er sagt, að frúin hérna uppi ú loftinu sé komin með blóðeitrun.“ „Og bannseit eiturnaðran. Ætli liún hafi ekki bara bitið sig i tunguna?" Unga frúin var að læra á nýja bílinn mannsins síns. „Hvernig gengur þér?“ spurði mágur hennar. „Bara vel. I dag ók ég á 90 km liraða, og á morgun ætla ég að byrja að opna augun, þegar ég mæti bíl!“ Falleg stútka kom með ávísun inn í banka og bað gjaldkerann að lcaupa hana af sér. „Getið þér fært sönnur á, hver þér er- uð?“ spurði gjaldkerinn. Stúlkan tók upp spegil, leit í hann og sagði: „Jú, þetta er ég.“ Nonni litli hafði skrökvað, og móðir hans sagði, mjög alvarleg á svipinn: „Nú kemstu bara ekki í himnaríki, Nonni minn.“ „Jú, það er nú enginn vandi,“ sagði Nonni. „Ég hleyp bara inn og út og inn og lít, þangað til þeir segja við mig: I guðanna bænum komdu annaðhvort inn eða vertu úti, drengur minn! — Og þá hleyp ég i n n !“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.