Samtíðin - 01.11.1961, Blaðsíða 16
12
SAMTÍÐIN
NY HOLLYWOOD-STJARNA:
í HOLLYWOOD konia menn og fara
eins og annars staðar, svo að sífellt verð-
ur að fylla skörðin, þegar kunnir og dáð-
ir leikarar kveðja.
Georg Peppard heitir ungur kvik-
myndaleikari, sem einna mestar vonir
eru bundnar við vestur þar um þessar
mundir. HolljAvood-menn segja, að liann
sé flestum þeim kostum búinn, sem þeim
henti bezt. Ilann hefur leikið í nokkrum
kvikmyndum, en nýlega fengið hlutverk,
þar sem hæfileikar hans njóta sin til
fulls í stórmyndinni „Morgunverður hjá
Tiffany“. Mótleikari hans er Audrey
Hepburn.
Georg er fæddur í bílaborginni Detroit,
1. okt. 1934. Faðir hans er húsasmiður, og
ekki er vitað um leikgáfu i ættinni. Um
fermingu var Georg staðráðinn í að verða
leikari. 17 ára gamall fór liann i sjóher-
inn til að ljúka liersþyldu, en hóf leik-
nám 19 mánuðum seinna. Hann varð
brátt leiður á að lilusta á menningarsögu-
fyrirléstra í háskólanum heima í Detroit
og kaus miklu heldur að demba sér
beint í leiknámið í Actors Stnclio í New
York.
Eh til þess skorti hann fé. Faðir hans
gat ekki einu sinni greitt ferðakostnað
hans til New York, livað ]>á meira. Þang-
að varð Georg því að ferðast að meslu
„á þumalfingrinum". Á leiðinni greip
hann hvert tækifæri, sem gafst, til að
vinna sér inn peninga fyrir námskostn-
aðinum i Ne'w York. Hann var þvi furðu
efnaður, þegar þangað kom. En skýja-
kljúfaborgin reyndist dýrari en Georg
hafði grunað. Hann ákvað þvi að viniía
fyrir sér hálfan daginn sanddiða leik-
náminu. Hver mínúta var notuð til náms
eða brauðstrits. Og með frábærri atorku
tókst Geoi'g að ná því marki, sem hann
stefndi að.
Þegar hann fór með fyrsta hlutverk
sitl á Broadway í leiknum „Ánægjan í
félagsskap iians“, skrifuðu gagnrýnend-
urnir, að hann væri einhver efnilegasti
nýliði, sem þeir liefðu séð á leiksviði.
Skorti þá ekki girnileg tilboð frá lcvik-
myndahöldunum.