Samtíðin - 01.11.1961, Síða 31
SAMTÍÐIN
27
Þessar stjörnuspár rætast oft bókstaflegn og Ieiðbeina því mörguni.
/1ínt«*Iisspúr ullt'u ilugu í nóvetnber
1. Gott ár til ásta og hjúskapar, en varastu
þras og hafSu gát á áhrifum á miöju ári ’62.
Seinni hluti þess árs verður góður til náms og
ferðalaga.
2. Fyrri liluti ársins mun færa þér hollar
breytingar, livað störf þín snertir. Varastu of
mikla tilfinningasemi seinni hluta ársins.
3. Verndaðu lieilsuna vel í árslok ’61. Þér
mun að mörgu leyti vegna mjög vel á árinu ’62.
4. Ágætt ár til starfs, fjár og ásta. Vertu ó-
deig(ur) til framkvæmda.
5. Ýmislegt er í óvissu. Hætt er við truflun á
samstarfi. Vertu varkár.
6. Hagnaður fyrirsjáanlegur fyrri hluta árs-
ins. Sumarið ’62 verður gott til fjár og ásta,
en gættu heilsunnar vel i árslok ’62.
7. Þér mun þörf á staðfestu. Varastu mála-
ferli. Árslokin verða heillavænlegri, hvað störf
snertir.
8. Varastu óheiðarlegt fólk á fyrri helmingi
ársins. Siðan verður allt heillavænlegra.
9. Þú mátt búast við öfund vegna velgengni
þinnar í árslok ’61, og til árekstra getur dreg-
ið snenuna árs ’62. Varastu slys. Þér mun vegna
vel í árslok ’62.
10. Nokkrir örðugleikar, en láttu þá ekki á
þig fá. Reyndu heldur að efla öryggi þitt sem
mest.
11. Mikið athafnaár. Unnt verður að gera
mikilvægar breytingar. Þetta verður heillaár
á mörgum sviðum.
12. Ilætt er við nokkrum vonbrigðum snemma
árs, en miðbik ársins ’62 verður ákjósanlegt.
Varastu óhöpp í árslok 62.
13. Þú munt njóta góðs af kynnum þinum
við valdamenn, en ekki verður laust við á-
hyggjur á miðju ári ’62. Seinni hluta árs verður
gott starfstímabil og gróðavænlegt.
14. Fremur erfitt ár og hætt við vonbrigð-
um og vináttuslitum.
15. Treystu ekki öðrum um of.'Ef þú gætir
þín, mun vel fara, og lok ársins ’62 verða all-
sæmileg.
16. Fyrstu 7 mánuðir ársins verða þreytandi,
en siðan fer allt að ganga miklu betur.
17. Mikið starfsár. Ef þú gætir þín, verður
þetta gott ár.
18. Vertu ekki of áhrifagjarn(gjörn). Hafðu
gát á fjármálum þínum.
19. Á fyrri helmingi ársins verður gott til
starfa, en á seinni helmingi þess er hætt við
miður æskilegum breytihgum.
20. Frá nóvember ’61 til apríl ’62 verður
blómatimi. Nokkur óvissa ríkir eftir það.
21. Nokkrir fjárhagsörðugleikar. Forðastu á-
hættu. Gættu varfærni i september ’62.
22. Þrátt fyrir nokkra andspyrnu verður
árið gott. Stundaðu störf þín vel, en leitaðu
ekki aðstoðar annarra.
23. Gott útlit fram í apríl ’62. Úr því verður
full þörf árvekni og dugnaðar.
24. Nokkrir örðugleikar m. a. af völdum
æltingja og nágranna, ef ekki verður við þeim
séð.
25. Forðastu breytingar, sem eru þér ógeð-
felldar. Heimilismálin krefjast varfærni.
26. Einkamálin verða í góðu lagi, en varastu
misskilning í maí og júní ’62.
27. Ástamálin verða ánægjuleg, en nokkur
óvissa ríkjr, hvað störf þín snertir síðsumars
’62.
28. Ágætt ár, nema einna helzt í febrúar og
marz ’62, en þá munu verða nokkrar tafir. Gæltu
lieilsunnar vel.
29. Breytilegt ár. Vertu varkár í fjármálum
og eins í viðskiptum, er líður á árið.
30. Verlu ekki of gagnrýninn á fólk; það
getur valdið misskilningi. Seinni hluti ársins
verður beztur til framkvæmda.
Afmælisspáin fyrir 14. júní sl. féll óvart nið-
ur í prentun. Við birtum hana vegna beiðni.
Hún er svona: Þú átt mikla von i framförum.
Hentugt verður að gera ýmsar breytingar.
Ástamálin verða þér geðþekk í des. ’61 og
marz ’62.
Dyggasti skrifstofumaðurinn kom
klukkutíma of seint til vinnu og var ])á
allur bhír og blóðugur.
Skrifstofustjóri: „Hvað hefur komið
fyrir þig, maður?"
„Ég datt út um glugga á þriðju hæð.“
„Og tók það heilan klukkutíma?“