Fréttablaðið - 11.01.2010, Blaðsíða 2
2 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
STJÓRNMÁL Íslensk stjórnvöld hafa
ekki ámálgað þá hugmynd við
Breta og Hollendinga að fá erlend-
an sáttasemjara til að miðla málum
í Icesave-deilunni. „Það er nú ekki
hægt að segja að þessi samskipti
hafi komist neitt á það stig,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon.
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks
saksóknara, Lilja Mósesdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, auk
stjórnarandstæðinga, hafa á und-
anförnum dögum lýst þeirri skoð-
un að farsælast væri að skipa nýja
samninganefnd um Icesave og
reyna að fá óháðan sáttasemjara
til að miðla málum. Hefur nafn
Joschka Fischer, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra og varakansalara
Þýskalands, til dæmis verið nefnt
í því sambandi.
Formenn Samtaka atvinnulífs-
ins, Samtaka iðnaðarins og Við-
skiptaráðs skrifa síðan grein í
Fréttablaðið í dag þar sem þeir
lýsa sömu skoðun.
Steingrímur segir að hugmyndin
hafi ekki borist í tal í samskiptum
við breska og hollenska ráðamenn
eftir að forseti synjaði Icesave-lög-
unum staðfestingar. „Þetta voru
símafundir til að róa málin fyrst
eftir ákvörðun forsetans og þjón-
uðu þeim tilgangi fyrst og fremst
að tryggja að menn væru í talsam-
bandi og línurnar væru opnar, en í
rauninni voru málin ekkert komin
lengra en það,“ segir hann.
Hann útilokar þó ekkert. „Það er
of snemmt að gefa sér eitthvað í
þessum efnum. En ef eitthvað slíkt
á að geta gerst þarf að vanda það
mjög og það er ólíklegt að það fáist
botn í það í blaðagreinum hvernig
flóknum pólitískum milliríkjasam-
skiptum vindur áfram.“
Hann segir hugmyndirnar hins
vegar hljóma óraunsæjar í ljósi
þess að ekki sé mikill sáttatónn
í viðsemjendunum. „Ég verð nú
að segja alveg eins og er að mér
finnst margt í þessari umræðu
núna vera ansi laustengt við veru-
leikann.“ Það sé ekki öfundsvert
hlutverk að vera talsmaður raun-
sæis við þessar aðstæður en ein-
hver verði að reyna það. „Einhver
verður að reyna að hafa hausinn
á réttum stað og benda mönnum á
það augljósa í þessu máli.“
Stjórnarskráin sé skýr. „Við
getum ekki haft uppi botnlausa
fjölhyggju í þessum efnum. Okkar
stjórnarskrá er eins og hún er og
þá ber okkur að tryggja að undir-
búningur þjóðaratkvæðagreiðslu
hafi sinn gang. Við þurfum að
hafa einhverjar gildar efnisleg-
ar ástæður fram að færa ef við
ætlum að taka málið úr þeim far-
vegi. Á meðan ekkert er í hendi
um slíkt væri mjög ábyrgðarlaust
að fara að gefa því undir fótinn
finnst mér. Nóg er nú vitleysan í
þessu samt.“
stigur@frettabladid.is
Jóhannes Kári, sérðu nokkuð
eftir því að hafa sent lagið
inn?
„Nei, það gefur auga leið að þetta
var rétta lagið og Sjonni Brink rétti
maðurinn. Við látum bara Þúsund
stjörnur massa þetta.“
Lag augnlæknisins Jóhannesar Kára Krist-
inssonar, You Knocked Upon My Door,
komst ekki í næstu umferð í forkeppni
Eurovision á laugardag. Ekki er þó öll
nótt úti enn því Jóhannes á annað lag,
Þúsund stjörnur, sem keppir á næstunni.
Hafa ekkert rætt um
aðkomu sáttasemjara
Hugmyndin um að fá óháðan erlendan sáttasemjara að Icesave-deilunni hefur
ekki verið viðruð við breska og hollenska ráðamenn. Margt í umræðunni ansi
laustengt við veruleikann, segir fjármálaráðherra. Hann vill þó ekkert útiloka.
FÓLK Nokkrir drengir á Stöðv-
arfirði láta snjóþyngsli ekki
stöðva fótboltaiðkun sína. Þeir
eyddu stærstum hluta helgarinn-
ar í að moka burt snjóinn á gervi-
gras sparkvelli í bænum.
Hanna Björk Birgisdóttir er
móðir eins drengjanna og segir
son sinn, Viktor Breka, og vin
hans, Guðmund Arnþór, hafa verið
að nánast alla helgina. „Þeir fóru
tveir út á laugardagsmorgun og
sonur minn kom einu sinni inn til
að fá sér að borða en var annars að
fram á kvöld,“ segir hún. Dreng-
irnir gerðu sér grein fyrir því að
þeir þyrftu liðsauka og bættust
þrír vinir þeirra í hópinn í gær.
Þeir æfa allir fótbolta með Fjarða-
byggð og fara í rútu tvisvar í viku
til að fara á æfingar. „Þeir eru fót-
boltasjúkir og eru alltaf á vellin-
um,“ segir Hanna. - þeb
Fimm drengir á Stöðvarfirði létu snjóinn ekki stöðva sig í fótboltaiðkun:
Mokuðu snjó af fótboltavelli
MOKSTURINN Í FULLUM GANGI Þeir Viktor, Guðmundur, Sólmundur, Haraldur og
Eyþór mokuðu af fótboltavellinum í gær. Þeir voru farnir að geta spilað síðdegis og
létu hálkuna ekki stöðva sig frekar en snjóinn. MYND/KRISTÍN HÁVARÐSDÓTTIR
ÖRYGGISMÁL Siglingastofnun
Íslands kyrrsetti tvö skip og
gerði athugasemdir við ástand
níutíu til viðbótar við hafnarrík-
iseftirlit árið 2009.
Til Íslands komu 357 skip,
mörg þeirra oftar en einu sinni.
Árið 2009 fækkaði komum ein-
stakra skipa frá árinu á undan
um 31 skip. Skoðuð voru 92 skip,
eða 25,7 prósent þeirra erlendu
skipa sem hingað komu en þau
voru frá 23 þjóðlöndum. Skoð-
uð voru skip í fjórtán höfnum
á landinu og þar af fimmtán
skemmtiferðaskip af sjötíu sem
komu til Reykjavíkur. - shá
Hafnarríkiseftirlit 2009:
Tvö skip voru
kyrrsett í fyrra
FRÁ SUNDAHÖFN Sjötíu skemmtiferða-
skip komu í fyrra og fimmtán voru
skoðuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur hafn-
aði um helgina beiðni lögreglu
um gæsluvarðhald yfir tveim-
ur mönnum sem reyndu að flýja
land með því að lauma sér um
borð í skipið Reykjafoss með
aðstoð heimagerðs fleka.
Mennirnir eru frá Albaníu og
Líbíu. Flekinn sem þeir notuðu
var úr timbri sem tjóðrað var
saman úr rafmagnsvír og
stroffum. Bættar gúmmíslöngur
héldu honum á floti.
Mennirnir hafa nú verið látnir
lausir úr haldi og þeim komið
aftur í umsjá félagsmálayfirvalda
í Reykjanesbæ, eins og gert er
með aðra hælisleitendur. - sh
Varðhaldsbeiðni hafnað:
Flekamönnum
sleppt úr haldi
Björk vill annað sætið
Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi
býður sig fram í annað sæti á lista
Samfylkingarinnar í Reykjavík. Prófkjör
flokksins fer fram 30. janúar. Björk
hefur átt sæti í borgarstjórn síðastlið-
in átta ár.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Guðmundur í þriðja sæti
Guðmundur Örn Jónsson gefur
kost á sér í þriðja sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Kópavogi. Hann
er verk- og viðskiptafræðingur
og hefur tekið virkan þátt í starfi
Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Steingrímur fundaði fyrir helgi
með kollegum sínum á Norð-
urlöndum um það hvaða áhrif
tafirnar í Icesave-málinu hafa á
fyrirgreiðslu þaðan.
„Það var mjög gagnlegt að
taka þá rispu. Sérstaklega var
ég ánægður með viðtökurnar
í Noregi,“ segir hann. Þar hafi
hann rætt við þrjá ráðherra sem
hafi verið afdráttarlausir í stuðn-
ingi sínum við að lánið fengist
afgreitt sem fyrst.
„Ég átti sömuleiðis góðan
fund með danska fjármála-
ráðherranum og fannst hann
vera skilningsríkur og jákvæður
en embættismennirnir sem
voru með honum voru tregari í
taumi.“
Leiðtogar Norðurlandanna
hyggist tala sig saman um málið
og veita svör í vikunni.
NORÐURLÖNDIN
UNDIRBÚA SVAR
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Svör um lán frá
Norðurlöndum munu berast í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KRÓATÍA Útgönguspár gerðu ráð
fyrir að jafnaðarmaðurinn Ivo
Josipovic myndi vinna örugg-
an sigur í for-
setakosning-
um í Króatíu
sem fram fóru
í gær.
Í fyrri hluta
konsinganna,
sem fram fór
í desember
síðastliðnum,
hlaut Josipovic
fleiri atkvæði
en mótherji sinn, Milan Bandic,
en náði ekki hreinum meirihluta.
Búist er við að Josipovic beiti
sér fyrir inngöngu Króata í Evr-
ópusambandið.
Josipovic, sem er 52 ára laga-
prófessor og tónskáld, hét því
fyrir kosningar að hann myndi
segja spillingu í landinu stríð á
hendur, yrði hann kosinn. - kg
Kosningar í Króatíu:
Josipovic talinn
næsti forseti
ÍTALÍA Benedikt Páll páfi hvatti
Ítali í gær til þess að virða inn-
flytjendur í landinu. Páfinn
tjáði sig eftir ofbeldishrinu
gegn afrískum verkamönnum í
suðurhluta landsins, en um 70
manns hafa særst í henni undan-
farna daga.
Lögregla hefur flutt hundruð
manna á brott af svæðinu til að
forðast frekara ofbeldi.
Ofbeldið er sagt vera nátengt
mafíustarfsemi á svæðinu.
Flestir hinna afrísku verka-
manna vinna ólöglega og mafían
stjórnar vinnumarkaðinum að
mestu. Þeir eru illa launaðir og
búa við mjög slæmar aðstæður.
- þeb
Ofbeldishrina á Ítalíu:
Páfinn hvetur
til virðingar við
innflytjendur
IVO JOSIPOVIC
STJÓRNMÁL Svo virðist sem ekki
standi steinn yfir steini í málflutn-
ingi franska Evrópuþingmannsins
Alains Lipietz, sem tjáði sig um
Icesave-málið í Silfri Egils í gær.
Þetta segir Björn Valur Gíslason,
þingmaður Vinstri grænna, sem
segir þann franska fara með rangt
mál varðandi þrjú grundvallar-
atriði.
Fyrir það fyrsta hafi Lipietz
ekki samið tilskipunina um evr-
ópska innstæðutryggingakerfið,
eins og haldið hefur verið fram í
fjölda fjölmiðla, enda hafi hann
ekki tekið sæti á Evrópuþinginu
fyrr en fimm árum eftir að sú til-
skipun tók gildi.
Þvert á móti virðist sem Lipietz
sé að vísa til annarrar tilskipunar
um heildarþjónustu fjármálafyrir-
tækja sem tók gildi árið 2002 og var
innleidd hérlendis 2004. Sú tilskip-
un kveði á um hömlur á starfsemi
fjármálafyrirtækja frá löndum
utan Evrópska efnahagssvæðisins
(EES) í löndum innan EES.
Sú tilskipun tengist Icesave-mál-
inu ekki neitt og auk þess virðist
sem Lipietz átti sig ekki á því að
Ísland sé í EES, segir Björn Valur.
Þá hafi Lipietz ítrekað vísað til
þess að Icesave hafi verið dóttur-
fyrirtæki Landsbankans, sem sé
alls ekki rétt. Það hafi verið útibú,
sem sé einmitt ástæða þess að
íslenski innstæðutryggingasjóður-
inn beri á því ábyrgð.
„Í þessum þremur grundvallar-
atriðum virðist hann fara með
rangt mál,“ segir Björn Valur. „Því
miður fyrir hann.“ - sh
Þingmaður Vinstri grænna segir málflutning Evrópuþingmanns að litlu hafandi:
Segir Lipietz misskilja málið
BJÖRN VALUR
GÍSLASON
ALAINS LIPIETZ
SPURNING DAGSINS