Fréttablaðið - 11.01.2010, Síða 6
6 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
EVRÓPA Margir hafa farist úr kulda
og vosbúð í Evrópu síðustu daga,
að því er erlendar fréttaveitur
greina frá. Ástandið mun vera
einna verst í Póllandi þar sem
talið er að allt að 140 manns hafi
farist vegna kuldans. Þá greindu
þýskir fjölmiðlar frá því í gær að
um tíu útigangsmenn hafi orðið úti
þar í landi, og óttast er að fleiri
hafi látist.
Lítið lát virðist ætla að verða á
vetrarhörkunum sem einnig hafa
hamlað almenningssamgöngum og
valdið miklum rafmagnsbilunum
víða í Evrópu síðustu daga.
Mikil snjókoma var um allt
Þýskaland í gær og fyrradag og
hafa samgöngur víða legið niðri. Á
sunnudagsnótt sátu hundruð föst í
bílum sínum á A20-hraðbrautinni
milli Gützkow og Jarmen í norður-
hluta landsins, og náði snjórinn í
mörgum tilfellum upp að bílrúðun-
um. Þá hafa fjölmargar flugferðir
verið felldar niður til og frá land-
inu og lestir eru flestar óstarf-
hæfar eða langt á eftir áætlun.
Snjórinn mældist í gær 29 senti-
metra djúpur í Leipzig, 27 metra
djúpur í höfuðborginni Berlín og
12 sentimetrar í Hamborg. Veð-
urspár gera ráð fyrir að snjókom-
unni gæti linnt í dag en áfram
megi búast við miklu frosti í land-
inu.
Þýsk yfirvöld hafa hvatt fólk til
að birgja sig upp af nauðsynjavör-
um ef ske kynni að veðrið myndi
versna. Þá hefur útigangsfólki
víða verið komið í skjól.
Ástandið var svipað í Póllandi
yfir helgina og alls urðu heimili
um 14.000 manns í þorpum nærri
Czestochowa í suðurhluta landsins
rafmagnslaus í gær.
Sunnudagsnóttin var sú kald-
asta í 23 ár í Danmörku, en frost-
ið fór niður í 15,9 gráður í Thy
og Karup á Jótlandi. Kuldametið
er frá 11. janúar 1987, þegar það
mældist 17,1 gráða. Umferð hefur
víða farið úr skorðum í landinu og
hefur ástandið verið sýnu verst í
suðurhluta Sjálands.
Þá hafa borist fréttir af mjög
slæmu veðri í Hollandi, Frakk-
landi, Englandi og fleiri lönd-
um. Fjölda knattspyrnuleikja var
aflýst í ensku knattspyrnunni
vegna veðurs, að ósk þarlendrar
lögreglu. kjartan@frettabladid.is
Skeifan 11B • 108 Reykjavík
Sími 511-3080 • tsk@tsk.is
www.tsk.is
»Grunnnámskeið
30 kennslustd. tölvunámskeið fyrir algjöra byrjendur 60+.
Hæg yf irferð með reglulegum endurtekningum í umsjá
þolinmóðra kennara. Ritvinnsla, internetið og tölvupóstur.
• Hefst 27. jan. og lýkur 17. feb.
Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 13-16. Verð kr. 25.000,-
»Framhald
30 kennslustd. námskeið. Hentar þeim sem lokið hafa
grunnnámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu.
• Hefst 28. jan. og lýkur 18. feb.
Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13-16. Verð kr. 25.000,-
(kennslubók innifalin)
»Stafrænar myndavélar 60+
Fyrir þá sem hafa lokið framhaldsnámskeiðinu
eða hafa sambærilega undirstöðu.
Þátttakendur nota eigin myndavél og læra notkun og stillingu
hennar ásamt meðferð stafrænna ljósmynda í tölvu. M.a. færa
myndir úr myndavél í tölvu, flokkun, einfaldar lagfæringar,
prentun og sendingar mynda í tölvupósti.
• Námskeið hefst 8. feb og lýkur 17. feb (Mán & mið kl. 13-16)
Lengd námskeiðs 18 kennslustd. Verð kr. 15.000,- (Kennsluhefti innifalið)
Tölvunámskeið
fyrir eldriborgara
60+
Hentar bæði sem tepoki
beint í bollann eða sem
púði í senseo vélarnar.
240 tepokar í pakka
á aðeins 599 kr/pk.
fairtrade te frá Co-operative
599kr/pk.
verð aðeins
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Kuldi og snjókoma
veldur dauðsföllum
Mikill kuldi og snjór í Evrópu hefur valdið dauðsföllum síðustu daga. Ástandið
er talið vera einna verst í Póllandi. Veðrið hefur víða hamlað almennings- og
flugsamgöngum. Sunnudagsnótt var sú kaldasta í Danmörku í 23 ár.
UMHVERFISMÁL Nýr fiskteljari
í Varmá við Hveragerði hefur
gefið áhugaverðar niðurstöður
um lífríki árinnar. Teljarinn var
settur niður vegna klórleka í ána
fyrir tveimur árum og er sam-
starfsverkefni Veiðimálastofn-
unar, Veiðifélags Varmár og Þor-
leifslækjar og Stangaveiðifélags
Reykjavíkur.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
gengu á tímabilinu júní–nóvem-
ber á síðasta ári tæplega 2.200
fiskar upp ána og um 250 niður.
Þessir fiskar voru tuttugu til níu-
tíu sentimetra langir. Stærsti hlut-
inn var undir fjörutíu sentimetrar
en þó voru tæplega þúsund fiskar
yfir þeirri stærð. Að öllum líkind-
um voru þetta mest urriðar.
Mikið magn af óblönduð-
um klór rann frá sundlauginni í
Hveragerði í Varmá fyrir tveim-
ur árum. Klórslysið olli talsverð-
um fiskdauða í ánni og fund-
ust dauðir fiskar á stórum kafla
neðan klórlekans. Rannsóknir
Veiðimálastofnunar á seiðabú-
skap árinnar skömmu eftir slysið
bentu til þess að nánast öll seiði
hefðu drepist á um tveggja kíló-
metra kafla neðan sundlaugarinn-
ar. Óttast var að klórslysið gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
fiskstofna Varmár og í versta falli
tæki það stofnana mörg ár að ná
fyrri styrk. Seiðarannsóknir á
árinu 2008 staðfestu enn frekar
þann skaða sem varð á seiðabú-
skap árinnar en þá mátti þó sjá
töluverð batamerki. - shá
Fiskteljari gefur áhugaverðar niðurstöður um fiskgengd í Varmá við Hveragerði:
Mikið líf þrátt fyrir klórleka
FISKDAUÐI Klórlekinn er mönnum mikið
áhyggjuefni en fiskur gengur þó af krafti
í ána. MYND/VEIÐIMÁLASTOFNUN
VEGFARENDUR Í BERLÍN Yfirvöld í Þýskalandi hafa hvatt fólk til þess að birgja sig
upp af nauðsynjavöru ef svo færi að veðrið versnaði enn frekar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Ég get lítið sagt um ástandið í
öðrum hlutum landsins, en hérna
í Berlín tek ég fyrst og fremst eftir
því að allt virðist ganga eðlilega fyrir
sig en mun hægar en vanalega,“
segir Hafdís Erla Hafsteinsdóttir,
sem nemur sagnfræði í lýðháskóla
í Berlín.
Hafdís segist ekki hafa farið
varhluta af íslenskum fréttaflutningi
um veðrið í Evrópu á Íslandi. „Ég
hef fengið nokkur örvæntingarfull
símtöl og sms-skilaboð frá fólki sem
ég þekki á Íslandi, þar sem það spyr
hvort allt sé ekki örugglega í lagi.
Af samtölum
mínum við Þjóð-
verja og frétta-
flutningi hér
ræð ég að þeir
virðast vera vanir
svona uppá kom-
um. Það er
enginn að fara
á taugum, enda
eru líklega fáir
með veðrið jafn
mikið á heilanum og Íslendingar.
Umræðan er mjög yfirveguð,“ segir
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir.
ALLT GENGUR HÆGAR EN VANALEGA
HAFDÍS ERLA
HAFSTEINSDÓTTIR
SKÓLAMÁL Skólastarf heldur áfram óbreytt í grunn-
skóla Borgarfjarðar að Kleppjárnsreykjum enda hafi
ekki verið tekin ákvörðun um annað, að sögn Páls S.
Brynjarssonar, sveitarstjóra í Borgarbyggð.
„Staðan er í raun og veru sú að sveitarstjórn var
ekki búin að samþykkja neina tillögu í skólamál-
um. Og það er ljóst að fyrir sveitarstjórnarfund [30.
desember] ákváðu oddvitar flokkanna og sveitarstjórn
að slíta samstarfinu sem var hér,“ segir Páll. Sam-
starfslitin komu í kjölfar ósamkomulags um hagræð-
ingu í skólamálum. Í kjölfarið var haldinn fjölmennur
íbúafundur í Logalandi þar sem mótmælt var hug-
myndum um að leggja niður skólastarf á Kleppjárns-
reykjum.
„Frá þeim fundi fá menn mjög skýra yfirlýsingu,“
segir Páll, en áréttar um leið að ákvörðun um hagræð-
ingu í skólastarfi bíði nýs meirihluta sveitarfélagsins.
„Hvort mönnum tekst að endurvekja þjóðstjórn, eða
hvort það verður með öðrum hætti skýrist væntanlega
á allra næstu dögum.“
Þjóðstjórnin var samstarf allra flokka og hafði stað-
ið í nokkra mánuði. Áður höfðu Sjálfstæðisflokkur og
Borgarlisti um árabil myndað meirihluta.
Páll segir að ljóst hafi verið að hagræða þyrfti
í skólastarfi og að í þeim efnum séu allar leiðir
umdeildar. - óká
BORGARNES Meirihlutinn í Borgarbyggð sprakk vegna ósættis
um hvort leggja ætti niður einstaka skóla eða spara með
öðrum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ákvörðun um skóla á Kleppjárnsreykjum bíður nýs meirihluta í Borgarbyggð:
Skólastarf óbreytt enn um sinn
BRETLAND Breskur blaðamaður
lét lífið í sprengingu í suður-
hluta Afganistans á laugardag.
Bandarískur hermaður lét einn-
ig lífið.
Sprengjan sprakk við bíl
bandarískra hermanna í Helm-
and-héraði. Blaðamaðurinn
Rupert Hamer hafði dvalist með
hermönnunum ásamt ljósmynd-
ara frá áramótum. Hann vann
fyrir breska blaðið Daily Mir-
ror og átti að vera í Afganistan
í mánuð.
Ljósmyndari blaðsins liggur
þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir
sprenginguna, ásamt fimm her-
mönnum. - þeb
Bílasprengja í Afganistan:
Breskur blaða-
maður drepinn
KJÖRKASSINN
Hefur þú einhvern tíma tekið í
nefið?
JÁ 52,1%
NEI 47,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú þig þekkja Icesave-
málið nægilega vel?
Segðu skoðun þína á visir.is.