Fréttablaðið - 11.01.2010, Side 12

Fréttablaðið - 11.01.2010, Side 12
12 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Nú er komið tækifæri til að beita nýjum aðferðum til lausnar Icesave-málinu en þetta ólukkumál hefur truflað alla framvindu á Íslandi í heilt ár. Óþarfi er að rekja málavexti. Nú er það skylda okkar allra að leita lausna. Margt hefur breyst á einu ári. Margar þjóðir telja sig hafa séð til botns í kreppunni og reyna nú að hraða för út úr henni á sem skemmstum tíma. Hvað sem um aðdraganda Icesave-samningaviðræðnanna má segja, virðist sem álit alþjóða- samfélagsins á stöðu sé málum blandin. Við Íslendingar höfum ávallt áréttað að lagaleg skuld- binding til greiðslu sé ekki fyrir hendi, þótt að sjálfsögðu eigi menn að leita pólitískra lausna og niðurstöðu. Þrátt fyrir allt hefur tíminn unnið með okkur í þessari erfiðu deilu við Breta og Hollend- inga. Sterk viðbrögð stjórnmála- leiðtoga þessara landa á síðustu dögum voru fyrirsjáanleg. Hins vegar er ljóst að krafa okkar um sanngjarnari meðferð fær stöðugt meiri hljómgrunn í virt- um erlendum fjölmiðlum. Um það ber bæði leiðari í Financial Times og umfjöllun á vefriti The Econ- omist ágætt vitni. Það er skylda okkar að nýta þetta tækifæri fyrir Íslendinga. Pólitískt vopnahlé Yfir undirbúningi málsins hér heima hvílir sá skuggi að stjórn- málamönnum hefur ekki tekist að ná þeirri samstöðu sem nauð- synleg er í baráttu við erlenda mótaðila. Virðingarverð tilraun var þó gerð sl. sumar í þinginu en þrátt fyrir þrotlausa fundi og fyr- irvara við umdeilanlega ríkisá- byrgð hefur alþingismönnum ekki tekist að sannfæra okkur um að þeir séu að berjast fyrir þjóðina í þessu örlagaríka máli. Það verður að breytast. Í þeirri stöðu sem nú er komin upp verður að nota tækifærið sem felst í ákvörðun forseta Íslands um að hafna samþykki laganna. Nú verða Íslendingar að standa saman. Endurreisn íslensks atvinnulífs mun byggjast á þeirri starfsemi sem fyrir er í landinu. Í okkar stöðu eru engar galdralausn- ir tiltækar og ný tækifæri falla ekki af himnum ofan. Þess vegna er algert höfuðatriði að virða þá starfsemi sem fyrir er og tryggja að heimilin í landinu geti staðið upptétt. Það þarf að efla skilning á mikilvægi verðmætasköpunar í atvinnulífinu í smáu sem stóru og mikla áherslu þarf að leggja á eflingu sprotafyrirtækja, nýsköp- unar og skynsamlega nýtingu náttúruauðlinda. Trúverðugleiki Íslands má ekki skaðast meira en orðið er. Við skorum á stjórnmálaflokka og stjórnmálaleiðtoga landsins að snúa nú bökum saman. Markmiðið er að ná niðurstöðu í Icesave-mál- inu sem horfir til hagsældar fyrir Íslendinga. Samningaleiðin getur verið torsótt en það yrði Íslend- ingum styrkur að ná niðurstöðu í málinu núna. Ný samninga- og sáttanefnd Við leggjum því til að Alþingi skipi nýja samninganefnd án tafar sem skipuð væri fulltrúum allra þingflokka. Vel færi á því að utan- ríkisráðherra færi fyrir nefndinni og að hún fengi sér til fullting- is færustu sérfræðinga, innlenda og erlenda, sem hefðu til að bera víðtæka reynslu og þekkingu. Þá væri mikilvægt að fá til liðs við nefndina erlendan fyrrverandi stjórnmálaleiðtoga sem þekkt- ur væri og virtur á alþjóðlegum vettvangi fyrir störf sín í alþjóða- stjórnmálum og hefði jafnframt þekkingu á aðstæðum Íslendinga. Slíkur einstaklingur gæti gegnt hlutverki sáttasemjara og gæfi okkur aukinn styrk í glímunni við erfiða mótaðila frá Englandi og Hollandi. Verkefni nefndarinnar væri að komast að niðurstöðu við viðsemj- endur okkar sem bæði næði að mæta þeim skuldbindingum sem Íslendingar þurfa að axla og að ljúka málinu hratt og örugglega með réttlátum hætti þannig að bærileg sátt næðist á Íslandi. Með því gæfist loks ráðrúm til að snúa sér að uppbyggilegum viðfangs- efnum. Íslenskt atvinnulíf og þjóðlíf þolir ekki frekari tafir og óvissu vegna þessa erfiða og óheppilega máls. Þessu verður að ljúka. Nú er tækifæri sem brýnt er að nýta strax. Öflug samninganefnd af því tagi sem hér er rætt um, hefði tækifæri til að ná fram niðurstöðu sem þjóðin gæti risið undir fjár- hagslega samhliða því að Íslend- ingar næðu nauðsynlegri sátt við alþjóðasamfélagið. Við megum ekki dæma okkur til einangrunar. Við þurfum að vera þjóð meðal þjóða hér eftir sem hingað til. Vilmundur Jósefsson er formaður Samtaka atvinnulífsins, Tómas Már Sigurðsson er formaður Viðskiptaráðs Íslands og Helgi Magnússon er formaður Samtaka iðnaðarins. Tækifærið er núna! UMRÆÐA Árni Páll Árnason skrifar um Icesave Sú staða sem upp er komin í Icesave-mál-inu getur orðið þjóðinni afar erfið. Það er auðvelt að hrópa „Vér mótmælum allir“ eins og formaður Sjálfstæðisflokks- ins gerði á laugardag. Eftir stendur á hinn bóginn að forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins gáfu endurteknar yfirlýsingar um að ríkið myndi standa að baki Tryggingasjóði innstæðueigenda fyrir bankahrun. Allt frá hruni hafa allar ríkisstjórnir ítrekað lýst vilja til að semja um lausn þessa máls. Í því hlýtur að felast að allir flokkar geti sammælst um einhver lágmarks við- mið samninga sem hægt sé að setja fram sameigin- lega við viðsemjendur okkar, jafnvel þótt hin laga- lega skuldbinding sé áfram háð fyrirvara. Það verður aldrei samstaða um að skella land- inu í lás og neita að semja fyrr en dómstólar hafi kveðið upp úr um hina lagalegu skuldbindingu. Slík aðferðafræði felur í sér fráhvarf frá 15 mánaða til- raunum allra ábyrgra stjórnmálaafla til úrlausn- ar málsins í sátt við önnur lönd og setur íslenskt efnahagslíf í óbærilega stöðu. Við gæti tekið langdregið þóf lagalegrar þrætubók- arfræði, á sama tíma og lánafyrirgreiðsla og fjármögnunarkostir fyrirtækja verða í uppnámi. Lánshæfismat ríkisins yrði í rusl- flokki og við myndum því festast í hring- rás hárra stýrivaxta, lágra launa, mikils atvinnuleysis og viðvarandi þrýstings á gengi krónunnar. Fyrirtæki sem starfa á alþjóðlegum samkeppnismörkuðum myndu flytja höfuðstöðvar sínar úr landi. Sundurlyndi hefur áður leikið Íslend- inga grátt. Okkur hefur sannarlega mistekist að skapa víðtæka sátt um niðurstöðu í þessu máli. Eftir stendur að nú er mikið í húfi. Við þurfum ekki fleiri stjórnmálamenn sem eru til í að mæla á móti. Við þurfum þvert á móti stjórnmálamenn sem treysta sér til að mæla með – mæla með sam- stöðu um samkomulag sem virðir ítrekuð fyrirheit íslenskra stjórnvalda til annarra ríkja um ríkis- ábyrgð á skuldbindingum Tryggingasjóðsins, með þeim bestu skilmálum sem hægt er að fá. Er það ekki verðugt verkefni? Höfundur er félags- og tryggingamálaráðherra. Að mótmæla – eða mæla með ÁRNI PÁLL ÁRNASON VILMUNDUR, TÓMAS OG HELGI UMRÆÐA | Lög eru ekki sama og lög Egill Helgason ræddi í Silfri sínu í gær við franska græningjann Alain Lipietz, Evrópuþingmann og pólitísk- an samherja Evu Joly. Lipietz þessi hefur í aðdraganda viðtalsins víða verið kynntur sem einn af höfund- um tilskipunarinnar um evrópska innstæðutryggingakerfisins. Því hljóti skoðanir hans á réttmæti hennar og virkni, kostum og göllum, ekki síst með tilliti til Icesave-málsins, að vega sérlega þungt. Það væri líklega alveg rétt ef það væri ekki rangt. Lipietz tók nefnilega ekki sæti á Evrópuþinginu fyrr en árið 1999, fimm árum eftir að umrædd löggjöf varð til árið 1994. Að hlusta ekki Þetta atriði hefði ekki þurft að vefjast jafnmikið fyrir íslenskum fjölmiðlum í gær eins og raun bar vitni. Enda leiðrétti Lipietz misskilninginn strax í viðtalinu, og útskýrði að löggjöfin sem Eva Joly minntist á að hann hefði komið að væri alls ekki löggjöfin um innstæðu- tryggingarnar, heldur regl- urnar um fjármálaeftirlit. Eflaust er rík ástæða til að hlusta á það sem Lipietz hefur fram að færa, en rétt skyldi þó áfram vera rétt. Eru þeir á hraðferð? Nú hópast menn í sviðsljósið og stinga upp á því að samið verði upp á nýtt um Icesave-málið við bálreiða Breta og Hollendinga og að þjóðar- atkvæðagreiðslunni, sem forsetinn valdi að vísa málinu í, verði varpað út í hafsauga. Vel má vera að það sé ágæt hugmynd. Enginn hefur hins vegar útskýrt hvers vegna viðsemj- endur okkar ættu að hafa minnsta áhuga á að leita nýrra samninga í snatri. Sá möguleiki er jú alltaf fyrir hendi að samningarnir sem þeir hafa þegar sæst á verði samþykktir í þjóð- aratkvæði. Ætli þeir vilji ekki bíða og sjá til með það fyrst? stigur@frettabladid.isÞ egar forsetinn vísaði breytingalögunum um Icesave- samningana til þjóðarinnar í síðustu viku setti hann af stað hringekju sem enginn veit hvar mun stöðvast. Í kjölfar ákvörðunar forseta hafa birst þrjár skoðana- kannanir sem benda til að afstaða kjósenda til Icesave- samninganna er á fleygiferð. Fyrst kom könnun MMR og sýndi góðan stuðning við að samn- ingarnir yrðu felldir. Því næst birtist könnun Capacent og brá þá svo við að meirihluti vildi staðfesta þá. Í nýjustu könnuninni, sem Fréttablaðið birti á laugardag, er aftur kominn öruggur meiri- hluti fyrir því að fella samningana. Fróðlegt verður að fylgjast með viðhorfsbreytingum lands- manna á þeim vikum sem eru fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni. Að lokinni þessari fyrstu viku frá synjun forseta virðist umræðan vera komin alla leið aftur á reit númer eitt, sem er spurningin um hvort Ísland eigi að borga Hollendingum og Bretum það tjón sem skattborgarar þessara landa hafa þegar axlað. Er það ekki gæfuleg byrjun, en skiljanleg því skilaboðin frá forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna, sem harðast hafa barist gegn Icesave-samningunum, eru vægast sagt óskýr. Enn er fullkomlega óljóst hvort formenn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks eru að berjast fyrir því að Íslendingar freisti þess að ná betri samningum um Icesave, eða hvort þeir vilji ekki borga nema að dómur falli í þá veru, jafnvel þótt ekki sé á hreinu frammi fyrir hvaða dómstólum væri hægt að reka málið. Þessi skortur á skýrri afstöðu stjórnarandstöðuflokkanna er auðvitað mjög til trafala í því breiða ákalli um samstöðu sem berst úr öllum hornum. En á meðan umræðan snýst og snýst og ýmislegt verður þoku- kenndara en áður, liggur þó að minnsta eitt nokkurn veginn fyrir. Sú tilraun að hengja Icesave á núverandi ríkisstjórnarflokka virð- ist ekki ætla að lukkast, þrátt fyrir ákafar tilraunir. Í fyrra skiptið þegar forseti vísaði óvinsælu lagafrumvarpi til þjóðarinnar lék enginn vafi á hverjum það var eignað. Skoðanakannanir sýndu að um 65 prósent kjósenda ætluðu að hafna fjölmiðlafrumvarpi Davíðs Oddssonar sumarið 2004. Í þeim atgangi öllum snarféll Sjálfstæðisflokkurinn í könnunum og stuðningurinn við ríkisstjórnarsamstarfið við Framsóknar- flokkinn galt líka fyrir feigðarflanið. Samtals sögðust 43 prósent kjósenda styðja þessa flokka í skoðanakönnunum og 40 prósent ríkisstjórnina, sem var það minnsta frá því samstarfið hófst 1995. Nýbirt skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að álíka margir kjósendur og voru á móti fjölmiðlalögunum 2004 ætli að hafna Icesave-samningum ríkisstjórnarinnar. Nú bregður hins vegar svo við að þrátt fyrir þá andstöðu njóta ríkisstjórnarflokkarnir stuðnings um 53 prósenta kjósenda. Þetta bendir til þess að eignarhaldið á Icesave, þessu skelfilega ógæfumáli, er í huga meirihluta kjósenda á ábyrgð annarra en þeirra sem eru að reyna að leysa það. Umræðan snýst og snýst og engin veit hvar hún mun stöðvast. Hringekjan JÓN KALDAL SKRIFAR Icesave-málið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.