Fréttablaðið - 11.01.2010, Side 14

Fréttablaðið - 11.01.2010, Side 14
14 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is Fyrir skemmstu var fulltrúi Íslands í Samtökum evrópskra tónskáldasam- taka, European Composers´ Forum, eða ECF, kosinn í stjórn samtakanna. Full- trúi Íslands er Kjartan Ólafsson, for- maður Tónskáldafélags Íslands og próf- essor við Listaháskóla Íslands, og segir hann kosninguna mikla viðurkenningu fyrir íslenskt tónlistarlíf. Aðildarfélög í ECF eru um þrjátíu og samtökin beita sér fyrir hagsmunamálum evrópskra tónskálda. „Þessi tilnefning þýðir að eftir okkur Íslendingum er tekið og við þökkum þar einkum Myrkum músíkdögum sem hafa, öfugt við sambærilegar hátíðir í Evrópu, verið að vaxa og stækka,“ segir Kjartan og nefnir nokkrar ástæður fyrir því að íslensk tónlistarstarfsemi hefur sótt svo á síðustu árin. „Ein af ástæðunum er sú að hér á Ís- landi liggjum við á milli tveggja heims- álfa og því tveggja menningarheima, Evrópu og Ameríku. Okkar listamenn eru mjög víðförlir í þeim skilningi að með öfluga listmenntun frá Íslandi í far- teskinu sækja þeir hluta af sinni fram- haldsmenntun og starfsreynslu utan Ís- lands, en erlendis er algengara að lista- menn haldi sig innan sinna heimahaga. Alla jafna skila listamenn okkar sér heim og þá myndast þetta skemmtilega samfélag lista þar sem íslenskt tónlistar- fólk hefur tekið með sér til Íslands ólík sjónarmið og ólíkan bakgrunn og þetta skapar okkur sérstöðu. Landið er því svolítill suðupunktur.“ Fulltrúi Íslands hefur ekki áður setið í stjórn ECF. Samtökin eru frekar ung en mjög öflug og leitast við að fá lönd í stjórn sem þykja standa framarlega í tónlistinni. Hlutverk Kjartans verð- ur meðal annars að spegla Norðurlönd inn í evrópskt samstarf. „Ísland verð- ur fulltrúi Norðurlanda í stjórn félags- ins en reynt er að dreifa stjórnarsetu þannig að fulltrúar frá öllum menning- arsvæðum Evrópu eigi hlut að henni,“ segir Kjartan. Myrkir músíkdagar eru nú haldnir í 30. skiptið og standa yfir frá 24.-31. jan- úar. Í lok hátíðarinnar munu erlendir þáttagerðarmenn, blaðamenn og listræn- ir stjórnendur frá nokkrum stærstu tón- listarhátíðum í Evrópu mæta. Markmið þeirra verður að efla til samstarfs við íslenskt tónlistarfólk í gegnum Myrka músíkdaga til frambúðar. Kjartan segir framtíð íslenskra tónsmíða bjarta. „Á meðan við höldum áfram að vera opin fyrir nýjungum og taka þátt í erlendu starfi er engin ástæða til annars en mik- illar bjartsýni.“ juliam@frettabladid.is SAMTÖK EVRÓPSKRA TÓNSKÁLDAFÉLAGA: ÍSLENDINGUR Í STJÓRN FÉLAGSINS Eftir okkur Íslendingum tekið GETUM VERIÐ STOLT Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands og prófessor við Listaháskóla Íslands, segir íslenskt tónlistarfólk geta verið stolt af því að landið var valið í stjórn ECF. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR GHITA NØRBY ER 75 ÁRA Í DAG „Eflaust heldur fólk að ég sé yfirborðskennd og taki tilveruna ekki nógu alvar- lega. Og svo eru eflaust ein- hverjir sem þykir ég vera einum of mikið af hinu góða.“ Ghita Nørby er dönsk leik- kona og hefur leikið í 117 kvikmyndum. MERKISATBURÐIR 1897 Leikfélag Reykjavíkur er stofnað. Fyrsta sýning er þó ekki fyrr en í árslok. 1918 Bjarndýr gengur á land í fyrsta sinn þennan vetur en fleiri ganga á land næstu daga. 1935 Amelia Earhart er fyrst kvenna til að fljúga ein- menningsflug, frá Hawaii til Kaliforníu. 1963 Fyrsti diskóstaðurinn í Bandaríkjunum opnaður, Whisky A Go-Go. 1974 Fyrstu sexburar, sem lifa af, fæðast í Höfðaborg í Suður-Afríku. 1990 Fjörutíu skip fá 28.400 lestir af loðnu djúpt úti fyrir Austfjörðum, mestu veiði á einum sólarhring hingað til. Á þessum degi árið 1944 fórst togarinn Max Pemberton frá Reykjavík með allri áhöfn, 29 manns. Skipið kom síðast að landi á Patreksfirði mánudaginn 10. jan- úar, rétt fyrir hádegi, og virtist ferð skipsins að Snæfellsnesi hafa gengið ágætlega því fimm klukkustundum eftir að það lagði úr höfn frá Patreksfirði kom orð- sending frá skipstjóra um að skipið lónaði við Jökul og virðist það samkvæmt skeytum hafa lent í hríðarbyl og austanstormi og verið í skjóli undan Snæfellsnesi. Eftir það bar slys að hönd- um, svo snögglega að ekki gafst ráðrúm til að senda út neyðarmerki né koma björgunarfleka eða -bátum á flot. Strax þegar farið var að óttast um afdrif skips- ins var hafin leit á víð- áttumiklu svæði af skip- um og flugvélum og fjörur voru gengnar á Snæfellsnesi öllu. Ekkert fannst sem gaf vísbend- ingu um afdrif togarans. Í dag er álitið að tog- arinn hafi lent á tundurdufli en þau höfðu sést á svipuðum slóðum við Snæfellsnes. Á Max Pemb- erton voru meðal annars tvennir feðgar og tveir bræður. Feðgarnir voru Pétur Maack skipstjóri og sonur hans Pétur A. P. Maack, sem var fyrsti stýri- maður, og svo þeir Þorsteinn Þórðarson, fyrsti vélstjóri, og sonur hans, Þórður Þorsteinsson, annar vélstjóri. ÞETTA GERÐIST: 11. JANÚAR 1944 Togarinn Max Pemberton ferst Ástkær faðir minn, tengdafaðir, bróðir og mágur, Sigmundur Þór Símonarson rafvirki, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánu- daginn 4. janúar sl. Útförin fer fram frá Grafarvogs- kirkju mánudaginn 11. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Geðhjálp, rnr. 1175-15- 510048, kt. 531180-0469. Anna Rós Sigmundsdóttir Andrés Magnússon Símon Símonarson Sólrún Anna Símonardóttir Jóhann Harðarson Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Þóru Þorbjarnardóttur Aflagranda 40, Reykjavík. Ásta Bára Jónsdóttir Einar Ingi Halldórsson Þórhildur Jónsdóttir Eggert Ágúst Sverrisson Kristín Jónsdóttir Sigurður Geir Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, Sveinfríður Jóhannsdóttir Holtateigi 26, Akureyri, lést 7. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrar- kirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Akureyrar. Hermann Jónsson Kristín Hermannsdóttir Sæmundur Sigtryggsson Sigurður Hermannsson Jóhanna Jóhannesdóttir Ólafur Hermannsson Ester Lára Magnúsdóttir Fjóla Hermannsdóttir Carsten Tarnow og ömmubörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorleifur Pálmi Jónsson Hrafnistu, Reykjavík, andaðist þann 6. janúar sl. að heimili sínu. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 14. janúar kl. 13.00. Baldur Þorleifsson Lárus Þorleifsson Örn Sævar Þorleifsson Isabel María Þorleifsson Ásbjörn Þorleifsson Elín Pálsdóttir Helgi Þorleifsson Brigitte Michon Lovísa Þorleifsdóttir Gissur Sveinn Ingólfsson Björk Þorleifsdóttir Jón Guðnason Brynja Þorleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Anna Sigrún Snorradóttir sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eir, þriðjudaginn 22. desember, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, fimmtudaginn 14. janúar kl. 15.00. Birgir Þórhallsson Snorri Sigfús Birgisson Guðrún Sigríður Birgisdóttir Martial Nardeau Þórhallur Birgisson Kathleen Bearden og barnabörn. AFMÆLI AMANDA PEET leik- kona er 38 ára. JAMELIA söngkona er 29 ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.