Fréttablaðið - 11.01.2010, Page 28
BAKÞANKAR
Gerðar
Kristnýjar
16 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Síðustu
andartök
Tarzans
Hvað ertu
að gera,
Elsa mín?
Gera mig
fallega.
Ég las í „húð og fegurð“
að tómatskífur og sardínu-
remúlaði endurheimti
rakastig líkamans og
gerðu atlögu að hrukku-
myndun.
Þú ert alltaf svo skeptísk-
ur á allt svona, þýski
kverúlantinn þinn, en
þetta hafðir þú ekki
hugmynd um.
Kannski
rétt.
...en tómat-
skífurnar eru á
gleraugunum
þínum.
Nei, sko,
það er
rétt hjá
þér.
Palli! Hvaða ástæðu
hefur þú til að kaupa
þér brimbretti?
Það er
töff.
Ég verð
að eignast
það.
Það lítur
vel út uppí
herbergi hjá
mér.
Stelpurnar
elska þessa
hluti.
Kannski
mun ég
fara í nám
á Hawaii.
Og notað
það í
neyðartil-
vikum.
Já, einmitt,
brimbrettið
kemur örugglega
að góðum notum
þegar næsta
flóðbylgja
skellur á okkur.
Þar
hittirðu
naglann á
höfuðið.
Iss
Mamma,
sjónvarps-
fjarstýringin
virkar ekki.
Hmm...
rafhlöðurnar
hljóta að vera
tómar, ég
næ í nýjar
þegar ég fer
að versla.
Þangað til
verðið þið
bara að
skipta um
rás með
handafli.
Alltaf eru
það börnin
sem þjást.
Allt sem þú þarft...
Auglýsing í
Fréttablaðinu
nær til yfir
91%
lesenda
blaðanna
Yfirburðir
Fréttablaðsins
staðfestir!
Lesa bæði
Fréttablaðið og
Morgunblaðið
Lesa bara
Morgunblaðið
Lesa bara
Fréttablaðið
59% 8,8%
32,2%
Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára.
Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009.
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila
sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup
sýnir ótvírætt.
Reglulega færa fjölmiðlar okkur æsileg-ar fréttir af sjúkraflutningamönnum
sem taka á móti barni. Ég man sérstaklega
eftir einni frá 10. áratugnum sem flutt var
á annarri hvorri sjónvarpsstöðinni. Maður
að nafni Snorri hafði tekið á móti barni á
Snorrabraut. Það fannst fréttamanninum
skemmtileg tilviljun og notaði oft í frá-
sögninni. Í síðustu viku birtist frétt um
sama efni á vef Sjúkrahússins og heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akranesi undir fyrir-
sögninni: „Einstök upplifun að taka á móti
barni“.
ÞEGAR vefur Morgunblaðsins, mbl.is,
tók upp fréttina var fyrirsögnin orðin
að „Sjúkraflutningamenn tóku á móti
barni“. Fréttirnar eru nokkurn veginn
samhljóma. Þar segir: „Ekki var að
sökum að spyrja þegar inn á heimil-
ið var komið. Konan, Birna Skarphéð-
insdóttir, stundi því upp að hún héldi að
barnið væri að koma. „Þá fæðir þú
bara, góða mín,“ svaraði Gísli og
þóttist hvergi láta sér bregða enda
þaulvanur bústörfum.“ Síðan er haft
eftir honum hvað hann hafi orðið
glaður þegar hann heyrði barn-
ið gráta og ánægjulegt að bæði
móður og barni skuli heilsast vel.
REYNSLA sjúkraflutningamanns-
ins er vitaskuld allrar athygli verð
en mér finnst samt furðum sæta hvað móð-
irin skiptir litlu máli í frásögninni. Nafnið
hennar birtist þarna og hæg heimatökin að
slá á þráðinn, sér í lagi fyrir starfsmenn
mbl.is, sem við skulum gefa okkur að séu
vanir blaðamenn. Flestar konur gera sér í
hugarlund við hvers konar aðstæður þær
vilja fæða börn sín og kynna sér vel mögu-
leikana sem eru í boði. Þess vegna væri
áhugavert að vita hvernig móðurinni fannst
að fæða barnið við þær aðstæður sem örlög-
in skenktu henni. Hvernig leið henni? Varð
hún hrædd? Hvar var pabbinn staddur
meðan á fæðingunni stóð? Eiga þau fleiri
börn? Við hvernig aðstæður fæddust þau
þá?
MARGAR kannanir hafa leitt í ljós að
íslenskir fjölmiðlar tala mun sjaldnar við
konur en karla. Þess vegna kemur mér allt-
af jafnmikið á óvart að fjölmiðlafólk skuli
láta sér úr greipum ganga jafn gullvægt
tækifæri og þarna bauðst. Og það er ekki
eins og þetta sé í fyrsta skipti því fyrir
fáeinum árum sagði Fréttablaðið frá því að
fimm leikkonur Borgarleikhússins væru á
leið í barneignarleyfi og ræddu af því tilefni
við … jú, Halldór Gylfason, kollega þeirra!
Fæðingarsögur geta allt í senn verið fullar
spennu, hættu, fegurð, gleði og ólýsanlegri
sorg – jafnvel þótt barnið reynist fullkomn-
ara en allt sem fullkomið er. Ég vil heyra
þær frá mæðrunum sjálfum.
„Þá fæðir þú bara, góða mín“