Fréttablaðið - 11.01.2010, Síða 28

Fréttablaðið - 11.01.2010, Síða 28
BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar 16 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Síðustu andartök Tarzans Hvað ertu að gera, Elsa mín? Gera mig fallega. Ég las í „húð og fegurð“ að tómatskífur og sardínu- remúlaði endurheimti rakastig líkamans og gerðu atlögu að hrukku- myndun. Þú ert alltaf svo skeptísk- ur á allt svona, þýski kverúlantinn þinn, en þetta hafðir þú ekki hugmynd um. Kannski rétt. ...en tómat- skífurnar eru á gleraugunum þínum. Nei, sko, það er rétt hjá þér. Palli! Hvaða ástæðu hefur þú til að kaupa þér brimbretti? Það er töff. Ég verð að eignast það. Það lítur vel út uppí herbergi hjá mér. Stelpurnar elska þessa hluti. Kannski mun ég fara í nám á Hawaii. Og notað það í neyðartil- vikum. Já, einmitt, brimbrettið kemur örugglega að góðum notum þegar næsta flóðbylgja skellur á okkur. Þar hittirðu naglann á höfuðið. Iss Mamma, sjónvarps- fjarstýringin virkar ekki. Hmm... rafhlöðurnar hljóta að vera tómar, ég næ í nýjar þegar ég fer að versla. Þangað til verðið þið bara að skipta um rás með handafli. Alltaf eru það börnin sem þjást. Allt sem þú þarft... Auglýsing í Fréttablaðinu nær til yfir 91% lesenda blaðanna Yfirburðir Fréttablaðsins staðfestir! Lesa bæði Fréttablaðið og Morgunblaðið Lesa bara Morgunblaðið Lesa bara Fréttablaðið 59% 8,8% 32,2% Skörun blaðalesturs að meðaltali á dag, mán. til lau., höfuðborgarsvæðið 18-49 ára. Heimild: Blaðakannanir Capacent maí-okt. 2009. Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnisaðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup sýnir ótvírætt. Reglulega færa fjölmiðlar okkur æsileg-ar fréttir af sjúkraflutningamönnum sem taka á móti barni. Ég man sérstaklega eftir einni frá 10. áratugnum sem flutt var á annarri hvorri sjónvarpsstöðinni. Maður að nafni Snorri hafði tekið á móti barni á Snorrabraut. Það fannst fréttamanninum skemmtileg tilviljun og notaði oft í frá- sögninni. Í síðustu viku birtist frétt um sama efni á vef Sjúkrahússins og heilsu- gæslustöðvarinnar á Akranesi undir fyrir- sögninni: „Einstök upplifun að taka á móti barni“. ÞEGAR vefur Morgunblaðsins, mbl.is, tók upp fréttina var fyrirsögnin orðin að „Sjúkraflutningamenn tóku á móti barni“. Fréttirnar eru nokkurn veginn samhljóma. Þar segir: „Ekki var að sökum að spyrja þegar inn á heimil- ið var komið. Konan, Birna Skarphéð- insdóttir, stundi því upp að hún héldi að barnið væri að koma. „Þá fæðir þú bara, góða mín,“ svaraði Gísli og þóttist hvergi láta sér bregða enda þaulvanur bústörfum.“ Síðan er haft eftir honum hvað hann hafi orðið glaður þegar hann heyrði barn- ið gráta og ánægjulegt að bæði móður og barni skuli heilsast vel. REYNSLA sjúkraflutningamanns- ins er vitaskuld allrar athygli verð en mér finnst samt furðum sæta hvað móð- irin skiptir litlu máli í frásögninni. Nafnið hennar birtist þarna og hæg heimatökin að slá á þráðinn, sér í lagi fyrir starfsmenn mbl.is, sem við skulum gefa okkur að séu vanir blaðamenn. Flestar konur gera sér í hugarlund við hvers konar aðstæður þær vilja fæða börn sín og kynna sér vel mögu- leikana sem eru í boði. Þess vegna væri áhugavert að vita hvernig móðurinni fannst að fæða barnið við þær aðstæður sem örlög- in skenktu henni. Hvernig leið henni? Varð hún hrædd? Hvar var pabbinn staddur meðan á fæðingunni stóð? Eiga þau fleiri börn? Við hvernig aðstæður fæddust þau þá? MARGAR kannanir hafa leitt í ljós að íslenskir fjölmiðlar tala mun sjaldnar við konur en karla. Þess vegna kemur mér allt- af jafnmikið á óvart að fjölmiðlafólk skuli láta sér úr greipum ganga jafn gullvægt tækifæri og þarna bauðst. Og það er ekki eins og þetta sé í fyrsta skipti því fyrir fáeinum árum sagði Fréttablaðið frá því að fimm leikkonur Borgarleikhússins væru á leið í barneignarleyfi og ræddu af því tilefni við … jú, Halldór Gylfason, kollega þeirra! Fæðingarsögur geta allt í senn verið fullar spennu, hættu, fegurð, gleði og ólýsanlegri sorg – jafnvel þótt barnið reynist fullkomn- ara en allt sem fullkomið er. Ég vil heyra þær frá mæðrunum sjálfum. „Þá fæðir þú bara, góða mín“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.