Fréttablaðið - 11.01.2010, Page 31
MÁNUDAGUR 11. janúar 2010
„T
op
pu
r“
e
r s
kr
ás
et
t v
ör
um
er
ki
í
ei
gu
T
he
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
. ©
2
01
0
Th
e
C
oc
a-
C
ol
a
C
om
pa
ny
.
VIÐ
ÍSL
END
INGA
R ERUM SVO HEPPNIR
AÐ
EIGA
GREIÐ
AN AÐGANG AÐ
ÓTR
ÚLEG
A HREIN
U VATNI,
SEM
ER M
EÐ ÞVÍ
HOLLARA SEM
ÞÚ GE
TUR LÁTIÐ
OFAN Í ÞIG.
ÞEGAR
ÞÚ DREKK
UR TOPP
NÝT
UR ÞÚ
KOSTA
ÞESS AÐ DREKKA
HRE
INT ÍSLENSKT
BERGVATN
Á MEÐ
AN ÞÚ NÝTU
R ÞESS AÐ DREKKA
SPENNANDI OG
BRAGÐ
GÓÐAN DRYKK.
PÆLDU Í ÞVÍ.
HVAÐA VATN ERT ÞÚ
AÐ DREKKA?
Pantaðu
í síma
565 600
0
eða á w
ww.som
i.is
Frí heim
sending
*
TORTILLA
VEISLUBAKKI
EÐALBAKKI
LÚXUSBAKKI
DESERTBAKKI
GAMLI GÓÐI
TORTILLA OSTABAKKI
30 bitar
30 bitar
20 bitar
20 bitar
20 bitar
50 bitar
Fyrir 10 manns
Aðeins
1.900 kr.
ÁVAXTABAKKI
Fyrir 10 manns
ÁVAXTABAKKI
Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm.
*Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.
FERSKT & ÞÆGILEGT
Ævintýraferð um undraheima
vatnsins í Borgarleikhúsinu
„Yndisleg sýning fyrir börn frá sex eða átta ára aldri
og foreldra þeirra, afa og ömmur.“
María Kristjánsdóttir, eyjan.is
Miðasala er í síma 568 8000 og á borgarleikhus.is
Aukasýningar
Sunnudagana 17. og 24. janúar kl. 14.00
Leikrit ★★★★
39 þrep
Leikfélag Akureyrar
Höfundar: John Buchan, Alfred
Hitchcock og Patrick Barlow
Þýðandi: Eyvindur Karlsson
Leikstjóri: María Sigurðardóttir
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: Rannveig Eva Karlsdótt-
ir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Hljóðblöndun: Gunnar Sig-
urbjörnsson Leikarar: Atli Þór
Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson,
Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður
Vilhjálmsdóttir.
Gamanleikrit eru eitt af því fáa
sem mér leiðast nær undantekn-
ingarlaust. Eitt af því fáa í leik-
húsi sem ég nenni yfirleitt ekki að
eyða tíma mínum í. Þess skemmti-
legra er það þegar slík sýning
kemur manni á óvart með því að
standa undir orðinu gamanleik-
ur. Það gerði sýningin 39 þrep
sem frumsýnd var hjá Leikfélagi
Akureyrar síðastliðið föstudags-
kvöld.
Höfundur leikritsins, Patrick
Barlow, er Breti á sjötugsaldri
sem hefur komið víða við í leik-
húsheiminum. Hann er leikari,
leikskáld og leikhússtjóri sem
vakið hefur athygli fyrir að setja
stórar sögur í leikbúning fyrir
tvo leikara. Í 39 þrepum fá reynd-
ar fjórir leikarar að spreyta sig
á 139 hlutverkum. Leikrit hans,
39 þrep, er byggt á hinni þekktu
kvikmynd Alfred Hitchcock,
sem Hitchcock gerði árið 1935
eftir samnefndri skáldsögu John
Buchan. John Buchan skrifaði
skáldverk sitt 1915 þegar skuggi
heimsstyrjaldarinnar fyrri vofði
yfir en Hitchcock gerði spennu-
mynd sína á millistríðsárunum
Mjög góð kvöldskemmtun
þegar óttinn við síðari heimsstyrj-
öldina og nasista lá sem mara yfir
Evrópu.
Leikrit Patricks Barlows og
uppsetning Leikfélags Akureyrar
er fyrst og fremst gamanleikur –
nýstárlegur sem slíkur – þar sem
samskipti fólks eru gegnsýrð af
tortryggni og ótta, og leik- og hljóð-
mynd minna áhorfendur á ógnina
sem bíður utan sjónmáls.
Sýning Leikfélags Akureyr-
ar á 39 þrepum verður að teljast
leikstjórnarsigur leikhússtjór-
ans Maríu Sigurðardóttur. Henni
hefur tekist að skapa mjög sam-
stilltan hóp, draga fram það besta
í hverjum og einum og virkja leik-
gleði sem sést of sjaldan. Skipting
á leikmunum og nýting þeirra sem
og einfaldar tæknilausnir hennar
og samstarfsmanna hennar, eru
hluti af skemmtuninni. Leikur með
einfaldar og ofnotaðar klisjulausn-
ir úr leikhúsi og kvikmyndurm ná
að lifa, þótt oft sé teflt á tæpasta
vaðið, og verða drepfyndnar.
Björn Ingi Hilmarsson leikur
burðarhlutverk sýningarinnar og
er eini leikari sýningarinnar sem
„bara leikur eitt“ af hlutverkunum
139. Hann leikur Richard Hanney
sem John Buchan gerði ódauðlegan
í bókum sínum og síðar varð fyrir-
mynd síðari tíma sjarmöra eins og
James Bond. Björn Ingi er á svið-
inu allan tímann og skilar hlut-
verki sínu með sóma. Hann hefur
einstaka líkamstjáningu og mikinn
sviðssjarma sem margur Holly-
woodklisjugaurinn væri hreykinn
af að hafa.
Þrúður Vilhjálmsdóttir lék þrjú
hlutverk og skilaði þeim öllum
sérlega vel. Eftirminnilegust var
hún þó í hlutverki sínu sem skoska
bóndakonan Margaret. Skoski
hreimurinn hennar var óborgan-
legur og hún var skoskari en nokk-
ur Skoti þar sem hún stóð í nátt-
kjólnum og gúmmístígvélunum
og bað kanadíska morðingjann að
„fera nuna“.
Jóhann G. Jóhannsson og Atli
Þór Albertsson skiptu með sér
hlutverkunum 135. Ekki treysti
ég mér til að telja þau öll upp né
gera upp á mili þeirra, en þeir voru
óborganlegir í þessari hlutverka-
súpu og skiptu um karakter hrað-
ar en margur áhorfandinn náði að
höndla. Magnað tvíeyki á borð við
Gög og Gokke eða Fry & Laurie.
39 þrep hlaut hin virtu Olivier-
verðlaun sem besta gamanleikritið
árið 2007 og tvenn Tony-verðlaun
árið 2008.
Í meðförum Leikfélags Akur-
eyrar er 39 þrep mjög góð kvöld-
skemmtun, sem einkennist af
styrkri leikstjórn og leikgleði sem
smitar aftur á aftasta bekk. Vel
unnin sýning sem aðstandendur
geta verið stoltir af og verður án
efa í baráttusætinu um besta gam-
anleikrit ársins 2010 á Íslandi.
Sigurbjörg Árnadóttir
Niðurstaða: Sterk leikstjórn og smit-
andi leikgleði. Vel unnin sýning.
SAMSTILLTUR HÓPUR Maríu Sigurðar-
dóttur hefur tekist að draga fram það
besta í hverjum og einum leikara.