Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2010, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 11.01.2010, Qupperneq 38
26 11. janúar 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. stöngulendi, 6. gat, 8. herma, 9. kvk. nafn, 11. fyrir hönd, 12. flatfótur, 14. kvk nafn, 16. skóli, 17. fax, 18. andi, 20. skóli, 21. staðarnafn. LÓÐRÉTT 1. tarfur, 3. guð, 4. þrot, 5. meiðsli, 7. land í Evrópu, 10. írafár, 13. angan, 15. ilma, 16. skammst., 19. tveir eins. LAUSN „Ég er rosalega stolt af henni og hún er rosalega dugleg. Hún hef- ur komið mér á óvart því hún fer svo ótroðnar slóðir. Hún er bara svo góð stelpa og svo heil í því sem hún er að gera. Þetta á eftir að verða ný íþróttagrein.“ Unnur Georgsdóttir, móðir Ingu Dungal sem hefur opnað líkamsræktarstöð þar sem boðið er upp á kennslu í súludansi. LÁRÉTT: 2. brum, 6. op, 8. apa, 9. lóa, 11. pr, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma, 17. mön, 18. önd, 20. fg, 21. oddi. LÓÐRÉTT: 1. boli, 3. ra, 4. uppgjöf, 5. mar, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15. anga, 16. möo, 19. dd. „Dagatölin rjúka út,“ segir Agnes Gunnarsdóttir hjá Íslenska gáma- félaginu. Karlarnir sem vinna hjá gáma- félaginu sátu fyrir á eggjandi dagatali í fyrra og skoruðu á kon- urnar að gera það sama. Þær slógu til fyrir jól og dagatölin áttu í upp- hafi aðeins að vera innan fyrir- tækisins – en hróður þeirra hefur borist víða. „Það er mjög léttur mórall hérna og þetta átti bara að vera innan fyrirtækisins. En þetta er búið að spyrjast út og við erum alltaf að prenta út ný og ný upplög,“ segir Agnes og bætir við að dagatölin séu ekki til sölu, heldur fáist þau gefins fyrir þá sem vilja. Meirihluti starfsmanna gáma- félagsins eru karlmenn, en þrátt fyrir það segir Agnes að lítið vandamál hafi verið að fylla alla tólf mánuði ársins af kynþokka- fullum starfsstúlkum fyrirtæk- isins. „Við erum 18 stelpur sem vinnum hérna og það var ekkert mál að fá 12 stelpur á dagatalið,“ segir hún. „Við fórum langt út fyrir þægindahring okkar, en hver og ein mátti ráða hversu langt hún færi.“ Konurnar sitja fyrir í ýmsum störfum fyrirtækisins og mark- miðið er að sýna hvaða þjónustu Íslenska gámafélagið býður upp á. Stúlkurnar bregða á leik og sem dæmi þá heldur mötuneytisdaman á tveimur melónum fyrir fram- an líffærin sem líkist ávextinum mest. Agnes segir að þótt daga- talinu sé ætlað að vera kynþokka- fullt, þá sé húmorinn ekki langt undan. „Við erum aðeins að gera grín að þessu, við tökum okkur ekki mjög alvarlega.“ atlifannar@frettabladid.is AGNES GUNNARSDÓTTIR: VIÐ TÖKUM OKKUR EKKI MJÖG ALVARLEGA Dagatal með eggjandi gámafélagsstúlkum GRIPIN GLÓÐVOLG Hugrún Ósk Bjarnadóttir fær augljóslega engan frið til að lesa Fréttablaðið í vinnunni. Gítarnámskeið Vöruhönnuðurinn Agnes Marinós- dóttir hefur hannað nýjar bleiu- töskur sem bera heitið Mammistar en áður hafði hún hannað vinsælar tölvutöskur með Íslandsmynstri. „Ég veit ekki af hverju ég ákvað að fara að hanna bleiutöskur, ætli það hafi ekki verið farið að klingja í manni og ég því ákveðið að taka stefnuna inn á barnavörumarkað- inn. Taskan nýtist þó undir margt annað en bara bleiur, ég nota mína til dæmis undir íþróttadótið og aðrir hafa notað hana undir tölv- ur. Þetta er í rauninni „alt muligt“- taska þannig að það er hægt að nota töskuna áfram eftir að barnið hættir á bleiu,“ úskýrir Agnes sem hannaði einnig nýjar ferðabuddur sem hægt er að nota undir snyrti- vörur og annað smádót. Töskurnar lætur Agnes fram- leiða fyrir sig erlendis en seg- ist vona að í framtíðinni geti hún flutt framleiðsluna heim. „Það er draumurinn að geta framleitt þetta hér á Íslandi, en því miður er það svo dýrt eins og er. Maður þarf að selja vöruna á mun hærra verði til að geta staðið undir kostnaði.“ Aðspurð segist hún ætla að halda áfram að þróa vörur sínar í fram- tíðinni. „Ég veit ekki hvort ég eigi eftir að halda mig við barnavörurn- ar eitthvað áfram eða hvort ég taki skyndilega u-beygju. En enn sem komið er held ég áfram að vinna í þessu og koma með nýja liti og nýjar útfærslur á vörunum. Þess á milli mun ég vinna að öðrum verk- efnum eins og tölvuborðinu,“ segir Agnes að lokum. Hægt er að nálgast Mammistar- vörurnar meðal annars í verslun- inni Reykjavík bags og í Hagkaup- um í Smáralind og Kringlunni. - sm Bleiutöskur vekja athygli AGGYSTAR Agnes Marinósdóttir hannar töskur undir nöfnunum Aggystar og Mammistar. Töskurnar eru vatnsheldar og mjög endingargóðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Landslið Íslands í körfubolta. 2 Á Vestfjörðum. 3 Til Sjanghæ í Kína. „Bransinn hefur gerbreyst. Það var alltaf gaman að vera flúrari, en núna getur maður kallað sig listamann,“ segir húðflúrarinn Fjölnir Bragason. Húðflúr Íslendinga hafa verið að breytast síðustu misseri að sögn Fjölnis. Breytingin er svo mikil að pabbi Fjölnis, listamaðurinn og gagnrýnandinn Bragi Ásgeirsson, hefur tekið húðflúr í sátt, en honum fannst ekki mikið til þeirra koma áður. „Ég er menntaður mynd- listarmaður og leit alltaf á þetta sem list,“ segir Fjölnir. „Það var erfitt að útskýra það fyrir sumum. Til dæmis fyrir pabba mínum. Hann fussaði áður, en í dag er hann byrjaður að benda á tattú og segja „þetta er flott“. Það er góð einkunn fyrir Búra, sem gerði tattúið, og fyrir bransann í heild.“ Biðlistar eru hjá mörgum húðflúrurum og Fjölnir segir bransann sneiða hjá kreppunni. „Fólk vill fá sér eitthvað fyrir peningana sem enginn getur tekið af því. Þetta er að verða skynsamlegasta fjárfestingin,“ segir hann í léttum dúr. „Fólk er farið að fá sér alvörutattú. Heilar ermar og heil bök. Fólk er líka til í að leggja tíma, peninga og pælingar í tattúið. Þetta var tilviljanakenndara. Í dag snýst þetta um að fá sér fallegar myndir og þora. Gott tattú vekur líka góð viðbrögð.“ - afb Bragi samþykkir tattúbransann BRANSINN BREYTIST Listamað- urinn og gagnrýnandinn Bragi Ásgeirsson, pabbi Fjölnis, kann að meta ný húðflúr, en honum fannst ekki mikið til þeirra koma áður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V A LL I Félagarnir Sigurður Guðmunds- son og Guðmundur Kristinn Jóns- son úr hljómsveitinni Hjálmum eru þessa dagana að vinna að tónlist við kvikmyndina Sum- arlandið. Hún er fyrsta mynd leikstjórans Gríms Hákonar- sonar í fullri lengd en tökum á henni lauk síðasta sumar. Verið er að klippa myndina og ganga frá og er frumsýning hennar fyrirhuguð síðar á árinu. Hugleikur Dagsson sendi frá sér bókina Íslensk dægurlög fyrir jól og vakti hún mikla lukku. Í bókinni teiknaði Hugleikur myndir við fræga lagatitla og textabrot og sneri oftar en ekki út úr á sinn kostulega hátt. Hugleikur er þegar byrjaður á framhaldinu og ætlar að senda frá sér Fleiri íslensk dægurlög á árinu. Valgeir Guðjónsson skrifaði formála fyrstu bókarinnar og Hugleikur lætur sig dreyma um að Bubbi Morth ens, Herbert Guð- mundsson eða Gylfi Ægisson skrifi formála framhaldsins ... Og meira um Hugleik. Hann er einnig með bók um erlenda lagatitla og mun hún að öllum líkindum kallast Popular hits. Lítið hefur frést um hana, en heyrst hefur að lagið Don‘t Let the Sun Go Down on Me, eftir Íslandsvininn Elton John, verði á einni myndanna. Lesendur geta ímyndað sér hver efnistök myndar- innar eru. - fb, afb FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.