Samtíðin - 01.07.1965, Síða 12
8
SAMTlÐlN
fjórum). — 1 bolli hrísgrjón með liýöi,
3 bollar af vatni, 3 kjötteningar, 2 kjúkl-
ingateningar.
Teningarnir eru látnir í pottinn uin
leið og vatnið. Þegar sýður, eru hrís-
grjónin látin út i og léreftsstykki látið
yfir pottinn undir lokið. Síðan er þetta
látið sjóða við lítinn liita í hálftíma. A
meðan er eldfast mót eða fat smurt að
innan, en í það er látin smábrytjuð
skinka eða eitthvert annað kjöt, t. d. af-
gangur af steik. Því næst eru 5—6 egg
og örlílið af salli sett í skál og þeytt
saman. Þá eru 100 g af rifnum osti og
% peli af rjóma sett í og það hrært út
í. Þegar lirísgrjónin eru soðin, eru þau
látin ofan á kjötbitana og þeim jafnað
um í fatinu, en eggjajafningnum síðan
hellt yfir. Lálið i heitan ofn og bakað
þar, þangað til það liefur lyfzt og er orð-
ið gulbrúnt að ofan. Soðnar kartöflur
og hrásalat í olíu er borðað með.
EFTIRMATUR: Gráfíkjur í hlaupi
með þeyttum rjóma. — Stórar og góðar
gráfíkjur eru lagðar í bleyti daginn áð-
ur en rétturinn er búinn til. Þær eru
teknar úr leginum og dálítið af púður-
sykri eítir vild látið út í hann. Lögur-
inn er því næst mældur og látinn í ]iott
ásamt matarlími (2 stórar tsk. í pelann).
Suða er látin koma upp. Síðan er þetta
látið kólna og hrært í því við og við.
Þá eru gráfkjurnar látnar í skál, legin-
um hellt yfir þær og látið hlaupa á
köldum slað. Síðan er 1 peli af rjóma
þeyttur ásamt 2 msk. af l'lórsykri og 2
tsk. af Borden’s kaffidufti. Þella má
annaðhvort framreiða sér í skál eða setja
það ofan á gráfíkjurnar með grófsköfnu
súkkulaði ofan á.
ÞAÐ eru vinsamleg tilmæli okkar, að
þær konur, sem lesa Kvennaþætti SAM-
TÍÐARINNAR, segi öðrum frá þeim og
kynni blaðið þannig meðal vina sinna.
Nýjasta Parísargreiðslan
Prjónamynztur
1. og 2. umf. hvitt, 3. og 4. umf. svart. Fi{'
að upp með hvítu. 1. umf. 2 r. ★ bandið bak
við, 1 óprj. eins og br. 2 r. ★, endurtekið frá *
—★ 2. umf. 2 br. ★ 1 óprj. 2 br. ★, endurt.
frá ★—★. 3. umf. r. 4. umf. br. Þessar 4 unif-
endurt.