Samtíðin - 01.07.1965, Page 35
SAMTÍÐIN
31
Þeir VITRU sögöu Nýjar bækur f
ÚLFUR RAGNARSSON: „Afar oft á
svefnleysi rót sína að rekja til persónu-
legra vandamála, sem knýja á dyr í næði
næturinnar og breyta þannig næði í ónæði.
Kvíðinn maður, sem veltir sér í rúminu
andvaka og- eirðarlaus, er ekki í heppilegu
sálarástandi til að leysa vandamál. Vanda-
mál ber að leysa með óþreyttum huga, ef
þess er nokkur kostur. En margir eru
þannig gerðir, að þeir skjóta frá sér vand-
anum á hverjum degi undir því yfirskyni,
að önn dagsins skipti meira máli, og mæta
svo vanrækslusyndum sínurn afturgengn-
um í andvökunni. Undir engum kringum-
stæðum ættu menn að leita á náðir svefn-
lyfja, nema að ráði góðra lækna og að
Öllum ráðum frágengnum. Sá
maður, sem gengur að því með dugnaði
að leysa eftir beztu getu sín innri og ytri
vandamál og velur til þess þær stundir
dagsins, þegar starfsgetan er óþvinguð af
þreytu og kvíða, þarf mjög sjaldan á lyfj-
um að halda til að skapa þá innri ró, sem
nægir til þess að svefninn komi“.
PJOTR KRAPOTKIN: „Þar, sem valdið
ríkir, er ekkert frelsi“.
HANS SCHERFIG: „Það er háttvísi við
lesendurna að skrifa ljóst“.
PUBLIUS SYRUS: „Það býr í manneðl-
mu að hata þann, sem þú hefur sært“.
PONSONBY lávarður: „Mér hefur alltaf
Verið illa við ný föt, en það er eitthvað
við vaxtarlag mitt, sem gerir það að verk-
ym, að öll fötin mín sýnast gömul, óðar
en varir“.
BERNARD SHAW: „Enginn maður
er svo óskammfeilinn, að hann vilji segja
sunnleikann um sjálfan sig“.
SAMI: „Ef þú átt við einhvern veikleika
að stríða, skaltu breyta honum í styrk-
leika“.
Árni Óla: Horft á Reykjavík. Sögukaflar. Með
myndum. 401 bls., íb. kr. 360.00.
Sigurður Herlufsen: Dáleiðsla sem lækningaað-
ferð. Fyrri og síðari hluti. Huglækningar. Seg-
'ullækningar. 168 bls., íb. kr. 190.00.
Selma Lagerlöf: Karlotta Lövenskjöld. Skáld-
saga. Arnheiður Sigurðardóttir þýddi. 259
bls., íb. kr. 260.00.
Magnea frá Kleifum: Hold og hjarta. Skáldsaga.
201 bls., íb. kr. 140.00.
Steinar Sigurjónsson: Hamingjuskipti. Hetju-
saga. 127 bls., ób. kr. 165.00, íb. kr. 225.00.
Stefán Einarsson: Austfirzk skáld og rithöfund-
ar. Austurland. Safn atistfirzkra fræða VI.
255 bls., íb. 275.00.
Jónas Jónsson: Aldir og augnablik. Blaðagrein-
ar. 171 bls., íb. kr. 250.00.
Hildur Inga: Seint fyrnast ástir. Skáldsaga. 124
bls., íb. kr. 140.00.
Steindór Steindórsson: Skrá um íslenzkar þjóð-
sögur og skyld rit. 69 bls., íb. kr. 200.00.
Kristmann Guðmundsson: Ármann og Vildís.
Skáldsaga. 207 bls., íb. kr. 245.00.
Gabor Simonyi og Vilhjálmur Einarsson: Frjáls-
íþróttir. Tækni og æfing. Með myndum. 105
bls., ób. kr. 100.00.
Draumaráðningar. Spilaspádómar. 119 bls., ób.
kr. 80.00.
August Blanche: Sögur ökumannsins. Smásögur.
Jóhann Bjarnason þýddi. 262 bls., íb. kr.
185.00.
Gunnar Dal: Raddir morgunsins. Ljóð. 121 bls.,
íb. kr. 180.00.
Halldór Kristjánsson: Sigtryggur Guðlaugsson,
prófastur og skólastjóri á Núpi. Aldarminn-
ing. Með myndum. 196 bls., ib. kr. 280.00.
Útvegrim allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk-
urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun ísafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.