Fréttablaðið - 05.07.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI5. júlí 2010 — 155. tölublað — 10. árgangur
MÁNUDAGUR
skoðun 14
FASTEIGNIR.IS
5. JÚLÍ 2010
27. TBL.
Fasteignamarkaðurinn er með á skrá einbýlis-
hús við Skrúðás 11 í Garðabæ.
E inbýlishúsið er 268,8 fermetrar, á þremur pöll-um með innbyggðum 40 fermetra bílskúr neðst í Ásahverfinu. Komið er inn í flísalagða for-stofu með fataskápum. Forstofuherbergi er parket-lagt. Baðherbergi við forstofu er flísalagt í gólf og veggi og inniheldur sturtuklefa og handklæðaofn. Rennihurð er á milli forstofu og flísalagðs hols. Eld-hús er flísalagt og búið vönduðum innréttingum, eyju með graníti, stórri borðaðstöðu og með útgengi til norðurs og hellulagða verönd með skjólveggjum til
suðurs. Innaf eldhúsi er parketlagt skrifstofuher-
bergi. Á efri palli, sem bæði er gengið um stiga úr holi
og úr eldhúsi eru samliggjandi stofur, með útsýni að
Snæfellsjökli og víðar. Útgengt er á flísalagðar svalir.
Á neðri pall hússins er gengið um parketlagðan steypt-
an stiga og komið inn í parketlagt hol með útgangi á
viðarverönd. Parketlagt herbergi með fataskápum og
-herbergi er innaf. Baðherbergi er flísalagt og með
baðkari og flísalögðum sturtuklefa og innaf því er
parketlagt herbergi með fataskápum og -herbergi.
Bílskúrinn er flísalagður og með geymslulofti.
Þvottaherbergi er innst í bílskúr með innréttingum
og vaski. Húsið að utan er í góðu ásigkomulagi og
gluggar og þakkantur eru nýmálaðir.
Einbýli í góðu ástandi
Húsið er með 40 fermetra bílskúr og staðsett neðst í Ásahverfinu.
MYND/ÚR EINKASAFNI
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
Mjög falleg 96,0 m2, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða lyftuhúsi ásamt
bílastæði í bílageymslu við Álfkonuhvarf 23 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, stóra
stofu/borðstofu, eldhús með U-laga viðarinnréttingu, rúmgott barnaherbergi með
fataskáp, sér þvottahús, baðherbergi með sturtuklefa og gott hjónaherbergi. Stórar
svalir í suðvestur með mjög fallegu útsýni að Elliðavatni og til Bláfjalla. Íbúðinni fylgir sér
geymsla í kjallara, auk bílastæðis í lokuðu bílastæðishúsi. Ragnhildur og Kári, taka á móti gestum í dag á milli kl. 18 og 19.
Álfkonuhvarf 23
KJARNA - ÞVERHOLTI 2 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI: 586 8080 • FAX: 586 8081 WWW.FASTMOS.IS
Einar Páll Kjærnestedlögg. fasteignasali.einar@fastmos.is
Opið hú
s
VANTAR ALLAR GERÐIR EIGNA Á SKRÁ.
ÞAÐ ER LÍKLEGRA AÐ EIGN ÞÍN VERÐI SELD EF HÚN ER Á SÖLUSKRÁ HJÁ OKKUR.
ÞÚ BORGAR EKKERT EF VIÐ SELJUM EKKI. ÞAÐ KÖLLUM VIÐ SANHRINGD Ú
ÞAÐ ER L ÍK
www.lundur.Is Sími: 533 1616
lundur@lundur.Is
Þjónustusími eftir lokun: 891-9916 – fax: 533 1617
Karl Gun
híbýli og viðhaldMÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2010
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Opið: má-fö. 12:30-18:00, Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum, Kóp. 201,S: 517 7727-www.nora.is Nóra á facebook
allar vörur með 20%
afslætti til 9 júlí
SILFUR er hægt að hreinsa með því að bera á það
tannkrem með mjúku viskustykki og nudda vel. Síðan
er það skolað upp úr köldu vatni.
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
Híbýli og viðhald
veðrið í dag
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
STURTUBARKAR
150 cm
TILBOÐ VIKUNNAR
Tilboð
Kr. 995,-
SJÁVARÚTVEGUR „Ef menn standa í
útgerð sem þessari ár eftir ár ætti
það ekki að koma mönnum á óvart
að hægt sé að selja vöruna. Það er
að segja ef menn beita heilbrigðri
skynsemi,“ segir Kristján Lofts-
son, framkvæmdastjóri Hvals hf.,
spurður um töluvert magn hvalaaf-
urða sem selt hefur verið úr landi
á þessu ári. Náttúruverndarsamtök
efast sem fyrr um að kjöt sé komið
til Japans.
Samkvæmt útflutningstölum
Hagstofu Íslands hafa 372 tonn
af kjöti og rengi af þeim 125 lang-
reyðum sem Hvalur hf. veiddi í
fyrra verið send á Japansmarkað
á þessu ári. Árið 2008 voru rúm
áttatíu tonn af afurðum af sjö lang-
reyðum sem veiddust haustið 2006
seld utan. Verðmæti afurðanna er
tæpar 800 milljónir króna.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, full-
yrðir að ekkert hvalkjöt sé komið
til Japans héðan frá Íslandi. Hann
vitnar þar í opinberar tölur frá
því í maí. „Af þeim 1.500 tonnum
af afurðum sem Kristján verkaði
2009 eru enn rúmlega 1.100 tonn í
frysti hér á landi. Það sýnir hversu
tregur japanski markaðurinn er.“
Kristján vildi ekki tjá sig sér-
staklega um útflutningstölurnar,
en ítrekaði fyrri ummæli sín. „Það
er ekkert því til fyrirstöðu að selja
hvalkjöt á Japansmarkað.“
Frá því að atvinnuhvalveiðar hóf-
ust að nýju árið 2006 hefur Hval-
ur hf. veitt 139 langreyðar ef veiði
þessa árs er talin með og hrefnu-
veiðimenn 225 dýr. - shá / sjá síðu 12
Hvalkjöt verið selt
fyrir 800 milljónir
Á fimmta hundrað tonna af hvalaafurðum hafa verið seld úr landi frá því að
hvalveiðar hófust á ný. Náttúruverndarsamtök efa að kjötið sé komið til Japans.
Hátíðin Villa Reykjavík
Erlend listagallerí sækja
höfuðborgina heim.
tímamót 18
Stundar vistvænan lífsstíl
Helga Ragnarsdóttir í Vogum á
Vatnsleysuströnd ræktar fjölda
matjurta í garðinum sínum.
híbýli og viðhald 2
ELDGOS Afleysingar á áhrifasvæði eldgossins í Eyja-
fjallajökli hefjast í dag. Tveir menn á vegum Bún-
aðarsambands Suðurlands, Bændasamtaka Íslands
og Félags kúabænda á Suðurlandi munu ferðast
milli bæja á svæðinu og leysa bændur af í tvo til sjö
daga í senn og ganga í þau verk sem til falla.
„Hugsunin er sú að bændur geti komist í frí,“
segir Sveinn Sigmundsson, framkvæmdastjóri Bún-
aðarsambands Suðurlands. „Það er búið að vera
mikið álag á fólki og svo er náttúrulega ennþá ryk
á svæðinu. Þess vegna er líklega kærkomið fyrir
bændur að komast í burtu.“
Sveinn segir að afleysingaþjónustan sé meðal
annars fjármögnuð með styrktarfé sem norskir
bændur í systursamtökum Búnaðarsambandsins
hafi aflað.
Afleysingaþjónustan hefur mælst vel fyrir hjá
bændum. Byrjað verður á bæjunum Hrútafelli
og Þorvaldseyri. „Okkur finnst þetta frábært,“
segir Guðný Valberg bóndi á Þorvaldseyri. Guðný
og maður hennar, Ólafur Eggertsson, verða
áfram á Þorvaldseyri en segja afleysingaþjónust-
una kærkomna hjálp. „Við ætlum samt að sinna
bústörfunum áfram.“ - mmf
Afleysingar fyrir þreytta bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli:
Kærkomið að komast af gossvæðinu
VÆTA EYSTRA Í dag verður víðast
hæg austlæg eða breytileg átt. Rign-
ing eða súld A-til en annars skýjað
með köflum og stöku skúrir. Hiti
10-18 stig, hlýjast NA-lands.
VEÐUR 4
14
16
14
13
12
Harkar í Hollywood
Darri Ingólfsson fer með
eitt af aðalhlutverkunum í
myndinni Boðbera.
fólk 30
ÍBV á toppinn
Eyjamenn tylltu sér í gær á
topp Pepsi-deildar karla.
sport 24
EFNAHAGSMÁL Íslenska skattkerfið
er skilvirkt og sambærilegt við
kerfið á hinum Norðurlöndun-
um, að því er fram kemur í niður-
stöðum skýrslu
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins
(AGS).
„Ég held að
skattkerfið fái
þarna tiltölu-
lega jákvæða
umfjöllun.
Það voru göt á
kerfinu fyrir
hrun og ljóst
að það var
mjög vanbúið. Nú er búið að taka
á því. Þeir sem hafa gagnrýnt
skattkerfið fá ekki liðsstyrk í
skýrslunni,“ segir Steingrímur
Sigfús son fjármálaráðherra um
efni skýrslunnar. Hann stefnir
á að gera hana opinbera á næstu
dögum. - jab / sjá síðu 6
AGS segir skattkerfið skilvirkt:
Búið að staga í
stærstu götin
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
VIÐ REYKJAVÍKURTJÖRN Rangstæðin við Tjörnina eru hluti af umhverfisverkefni bandarísku
listakonunnar Natalie Jeremijenko sem sett var upp á Listahátíð á síðasta ári. Verkefnið snerist um að hafa áhrif á
umhverfi sitt. Ef til vill hafa borgarbúar áhrif á sitt umhverfi með því að gauka brauðmola að fuglunum á
Tjörninni. FRÉTTTABLAÐIÐ/PJETUR
KOLUMBÍA Tollgæslan á flugvellin-
um í Bógóta í Kolumbíu lagði um
helgina hald á eftir-
líkingu af heims-
meistarabikarnum.
Að sögn CNN var
styttan gerð úr ell-
efu kílóum af kóka-
íni. Gripnum var
lýst sem gulllitaðri
eftirlíkingu í lélegu
ástandi. Styttunni
sem er 36 senti-
metra há var pakk-
að ásamt nokkrum
fótboltabúningum
í sendingu sem fara átti til
Madrídar á Spáni. Eiturlyfja-
bikarinn falsaði vó ellefu kíló
sem fyrr segir. Fyrirmyndin,
sem ítalski listamaðurinn Silvio
Gazzaniga hannaði, vegur hins
vegar rúm sex kíló. - gar
Tollverðir í Kólumbíu:
Tóku HM-bikar
úr kókaíni