Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 14
14 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Í umræðum um dóm Hæstaréttar um gengistryggðu lánin og tilmæli eftirlitsstofnana um að miðað verði við seðlabanka- vexti á lánunum, er málinu gjarnan stillt þannig upp að það snúist um hagsmuni lánþega annars vegar og hagsmuni fjár- magnseigenda og erlendra kröfuhafa hins vegar. Þeir síðar- nefndu muni tapa, ef samningsvextirnir einir verði látnir standa. Ummæli Franeks Roswadowski, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins á Íslandi, í helgarblaði Fréttablaðsins setja málið í annað ljós. Roswadowski segir í fyrsta lagi að bankarnir muni geta tekið eitthvað af högginu á sig, verði niðurstaða Hæstaréttar sú að þeir sem tóku gengislán greiði aðeins samningsvextina. Þeir muni þó aldrei ráða við það allt og þótt kröfuhafar muni leggja eitthvað af mörkum, muni megnið af nýju hlutafé koma frá ríkinu, þ.e. skattgreiðendum. Það verði kostnað- arsamt, enda ábyrgist ríkissjóður innistæður í bönkunum. Skatta- hækkanir geti þurft að koma til. Í öðru lagi nefnir fulltrúi AGS að útlit sé fyrir það vegna Hæsta- réttardómsins á dögunum að endurskipulagning skulda heimila og fyrirtækja tefjist enn frekar en þegar sé orðið. Loks segir Roswadowski að óvissa vegna málsins tefji afnám gjaldeyrishafta; ekkert vit sé í að aflétta þeim þegar óvissa ríki í efnahagsmálum. Að því gefnu að greining Franeks Roswadowski sé rétt, er málið ekki alveg svo einfalt að málið snúist bara um hagsmuni skuld- ara annars vegar og fjármagnseigenda og útlendra kröfuhafa hins vegar. Það er líka hægt að stilla því þannig upp að annars vegar snúist það um mjög skýrt skilgreinda hagsmuni, sem þessir tveir hópar eiga, hins vegar um almennari og ekki eins rækilega skil- greinda hagsmuni, sem flest heimili og fyrirtæki í landinu eiga. Auðvitað eiga heimili og fyrirtæki, sem tóku gengistryggð lán, mjög skýra hagsmuni af því að þau breytist vegna dóms Hæsta- réttar í hagstæðustu lán sem völ er á, bæði fyrir og eftir kreppu. Og í ljósi þess að fjármálastofnanir hefðu aldrei veitt lán á slíkum kjörum, enda hefðu þær svo augljóslega tekið alltof mikla áhættu með slíkum lánveitingum, eiga þær líka skýra hagsmuni af því að samningsvextir verði ekki niðurstaðan. Með því að fara þá leið sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa lagt til, að miða við lægstu vexti Seðlabankans, er óhagræðinu af falli krónunnar í flestum tilvikum skipt á milli þessara hópa. Öll heimili og fyrirtæki á Íslandi eiga svo hagsmuni af því að kreppunni ljúki sem fyrst. Það er ekki þeirra hagur, hvorki þeirra sem tóku gengistryggð lán né þeirra sem fjármögnuðu sig einhvern veginn öðruvísi, að fjármálakerfið fái á sig högg eða að ríkissjóður neyðist til að koma því til bjargar. Hæstiréttur mun að sjálfsögðu dæma eftir réttum lögum. En það er ástæða til að mála ekki bara svarthvíta mynd af því hvaða hagsmunir eru í spilinu. Skuldavandi heimilanna Karl V. Matthíasson vímuvarnaprestur HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Þjóðarsátt er orð sem oft hefur verið notað á síðustu mánuðum og ekki að ástæðulausu. Eftir hrunið eru margir ósáttir enda hefur hallað á fjölda fólks og því er þörf á þjóðarsátt. Nú hefur Hæstiréttur kaghýtt lánafyrir- tæki með dómi sínum um gengistryggð lán. Í framhaldi af þessu hafa Fjármálaeftirlit- ið og Seðlabankinn komið með leiðbeinandi vinnulag um breytt greiðslufyrirkomulag lánanna. Og allt logar nú út af þessum „leið- beinandi“ gerningi. Ég er viss um að flestir sem tóku gengis- lánin hafi alls ekki hugsað sér að þurfa að greiða eins mikið og þeir hafa verið krafð- ir um. Ég er líka viss um að þeir hafi ekki heldur reiknað með að greiða jafnlítið og dómurinn kveður á um. Samt eru margir skuldarar ófúsir að hvika frá dómi Hæsta- réttar og sjá enga ástæðu til koma til móts við lánafyrirtækin eftir þá óbilgirni sem að minnsta kosti einhver þeirra hafa sýnt og á tíðum fyrirlitleg vinnubrögð sem fréttir hafa greint frá. Fram undan er löng og ströng umræða og málaferli á málaferli ofan. Ríkisstjórn- in er farin að gefa í skyn að samfélagið ráði illa við niðurstöðu dómsins og þess vegna hafi Seðlabankinn og FME brugðist svona við. Og auðvitað vekur það manni ugg ef sækja þarf meiri pening til ríkiskassans, með mikilli hættu á því að teygja velferð- arkerfisins slitni. Þess vegna spyr ég: Getum við búið til einhvers konar þjóðarsátt um skuldirnar. Geta skuldarar þessa lands fallist á það að öll lán til húsnæðiskaupa og bílakaupa verði aðeins einnar gerðar með lagasetn- ingu? Væri til dæmis hægt að lækka verð- bótalánin og hækka gengislánin á einhvers konar miðlínu sem dregin er á milli verð- tryggðu lánanna og gengislánanna eftir dóm Hæstaréttar. Þau átök og endalausu málaferli sem framundan eru um öll þessi lán geta orðið að ógn við allsherjarreglu og frið í samfé- lagi okkar. Ég hvet til þess að leitað verði sátta og samkomulags í mikilli einlægni og að Alþingi og ríkisstjórn geri sitt til þess að vinna að því í góðu samráði við þau samtök sem stofnuð hafa verið til varnar heimilum og skuldurum þessa lands. Já, mikið held ég að margir yrðu fegnir ef hægt væri að klára þetta mál með ásættanlegri og við- ráðanlegri lausn sem áreiðanlega er til. Að við gætum gert alvöru þjóðarsátt í þessu máli. Þjóðarsátt um skuldir Hvaða svigrúm? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagðist í spjalli við Árna Þórarinsson á Pressunni gera ráð fyrir að setjast aftur á þing í haust, þegar þingnefnd sem fjallar um rannsóknarskýrslu Alþingis hefur lokið störfum. „Ég vildi stíga til hliðar og veita þingnefndinni þetta svigrúm.“ Þorgerður á ekki von á að niðurstaða nefndar- innar verði áfellisdómur fyrir hana; hún hafi ekki verið í hópi þeirra sem þáðu háa styrki. En af hverju þá að víkja af þingi meðan nefndin er við störf? Hvaða svigrúm af hálfu Þorgerðar þurfti nefndin? Krugman um Ísland Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, fjallaði um kreppuna á Íslandi á dögunum. Sagði hann að þótt hrunið hér á landi ætti sér fá fordæmi, væri staða landsins góð miðað við önnur ríki. Krugman segir tvær aðalskýringar á þessu: gengis- hrun krónunnar og gjaldeyrishöft. Byrðar almennings Ólína Þorvarðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, grípur skýringu hagfræð- ingsins á lofti og skrifar: „Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur virðist ætla að takast það ótrúlega afrek, að ná þjóðinni upp úr verstu efnahagskreppu sögunnar, og það með vægari afleiðingum en nokkur þorði að vona.“ Það má reyndar minna á að gjaldeyrishöftin voru sett á í tíð ríkisstjórnar Geirs Haarde. Það skýtur líka skökku við að þingmaður Samfylkingarinnar státi sig af gengishruni; sá flokkur hefur yfirleitt haft horn í síðu gengis- sveiflna. En Ólína verður líka að hafa í huga að gengishrun er annað orð yfir kjaraskerð- ingu. Hún ætti því kannski að hrósa almenningi fyrir afreksverkin á undan ríkisstjórninni. bergsteinn@frettabladid.is Myndu aðeins fjármagnseigendur og erlendir kröfuhafar tapa á samningsvöxtum gengislána? Skýrir hagsmunir og óskýrir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.