Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 30
5. JÚLÍ 2010 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
SUMARMÓTIN
LÍFLEGIR OG SKEMMTILEGIR ÞÆTTIR
UM ÖLL HELSTU SUMARMÓT YNGRI
FLOKKA Í FÓTBOLTA
VEIÐIPERLUR
ÓMISSANDI ÞÁTTUR FYRIR
ALLA VEIÐIMENN
ÞAÐ ER ÓDÝRARA AÐ
SKEMMTA SÉR HEIMA
FORMÚLA 1
SILVERSTONE, HOCKENHEIM
OG BÚDAPEST
PEPSI DEILDIN
HÖRKULEIKIR Í BEINNI OG
PEPSIMÖRKIN MEÐ MAGNÚSI GYLFA
OG TÓMASI INGA
GOLF
EVRÓPUMÓTARÖÐIN
PGA MÓTARÖÐIN
HERMINATOR
STÓRSTJÖRNURNAR MÆTA Á
HERMINATOR GÓÐGERÐARMÓTIÐ Í GOLFI
● GÖMLU ÁHÖLDIN Í SUMARBÚSTAÐINN
Þó að eldhúsáhöldin séu farin að láta á sjá er engin
ástæða til að fleygja þeim. Þau eru tilvalin í sumarbú-
staðinn því þar sem ekki þarf að nota þau daglega geta
þau alveg dugað. Oft er líka mikil prýði af gömlum
áhöldum svo þau skal hengja upp á vegg. Skrúfið slá
upp á vegg og hengið áhöldin í stóra stálkróka. Gamli
handþeytarinn hennar ömmu sómir sér vel innan um
lúnar skeiðar og tætta bursta og gefur sumarbústaðn-
um heimilislegan blæ.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
● LIFUM VISTVÆNT
HEIMA
- Sparaðu rafmagnið. Með
því að slökkva ljós í tómum
herbergjum og á tölvunni í stað
þess að nota skjáhvílu geturðu
lækkað rafmagnsreikninginn.
Þá skaltu nota sparnaðarljósa-
perur í stað glópera sem menga
umhverfið.
- Sparaðu vatnið með því að
vera styttri tíma í sturtunni og
íhugaðu að skipta út stórum
sturtuhaus fyrir minni sem eyðir
þá minna vatni.
- Kauptu vistvænar vörur
og forðastu vörur sem eyða
ósónlagi jarðarinnar. Fyrst þær
skemma ósónlagið geta þær
varla verið heilnæmar til inn-
öndunar heima við heldur.
- Notaðu eins lítinn pappír og
þú kemst upp með. Hættu í ein-
nota drykkjarmálum og notaðu
ílát sem þú getur notað aftur til
að minnka pappírsrusl frá þér.
Afþakkaðu heimsenda reikninga
og fáðu þá rafræna í heima-
bankann í staðinn, og prentaðu
út minna af pappír.
- Þú skalt endurvinna eins og þú
getur. Það er auðvelt og hægt
að fá borgað fyrir sumt af því
sem þarf að henda.
● MYNSTRAÐ BAKKELSI
Heimabakaðar kökur bragðast
betur þegar sálin er lögð í
baksturinn. Falleg form gera
síðan góða köku enn betri.
Kökuform með fallegu munstri
gera mikið fyrir bakkelsið. Víða
er hægt að kaupa silíkonform
með munstri sem þægilegt er
að nota og skila munstrinu vel
í kökuna. Þeir sem eru þó fyrir
bakstur upp á gamla mátann
eru munstruð kökuform úr áli
áskorun en passa þarf að smyrja
formin vel svo kakan komi heil
upp úr forminu. Á kökuna sjálfa
er svo nóg að strá flórsykri
gegnum sigti, eða hella yfir
hana mjög þunnum glassúr
svo munstrið hverfi ekki undir
hnausþykkt krem. Mynstruð
kökuform úr áli eða stáli eru líka
gullfalleg og ættu alls ekki að
geymast ofan í skúffu.