Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 46
30 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Við erum ennþá á staðnum,“ segir Danni Pollock, forsprakki tónlistarþróunarmiðstöðvarinn- ar (TÞM) úti á Granda. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá stóð til að loka TÞM 1. júlí ef hún næði ekki að fjármagna húsaleigu ársins. 12 milljónir kostar að leigja húsnæði TÞM úti á Granda á ári og Reykja- víkurborg greiðir helminginn af því. Landsbankinn styrkti starf- semina um hinar sex milljónirn- ar áður en bankinn féll í október árið 2008, en nú er svo komið að bæði sýslumaður og síðar héraðs- dómur hafa úrskurðað að starf- semin verði borin út í sumar. „Félagsmenn hafa byggt TÞM upp frá 2002 og heildarupphæð sem hefur verið lögð í starfsemina er í kringum 140 milljónir,“ sagði Danni í Fréttablaðinu í júní. „Um 90 milljónir eru beint frá krökk- unum sjálfum. Borgin er að reyna að spara sex milljónir með því að henda 140 milljónum.“ Danni segir fólk frá ÍTR hafa spjallað við sig og að vilji sé fyrir því að leysa málið á farsælan hátt. „Það eru jákvæðar bylgjur í okkar átt,“ segir Danni sem býst við að meira komi í ljós á næstu vikum. - afb Tækniþróunarmiðstöðin enn í gangi UNNIÐ Í MÁLINU Loka átti Tækniþróunarmiðstöðinni 1. júlí, en starfsemin er ennþá í gangi og Danni Pollock vonast til að málið leysist á næstu vikum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FERÐALÖGIN „Ég mæli með Home með Edward Sharpe and The Magnetic Zeros til að minna á að ferðafélagarnir skipta máli. Líka laginu Hvers vegna varst’ekki kyrr með Pálma og svo loks Summer Wine með Lee og Nancy til að minna mann á að passa upp á sitt á tjúttinu í fjarlægu landi.“ Margrét Erla Maack útvarpskona. Darri Ingólfsson fer með aðalhlut- verkið í kvikmyndinni Boðbera sem frumsýnd verður á miðviku- daginn kemur. Darri hefur verið búsettur í Los Angeles undanfarið ár og upplifað ýmislegt skemmti- legt á þeim tíma. Darri nam leiklist í Arts Edu- cational í London og útskrifaðist þaðan árið 2003 en dvaldi áfram í borginni eftir útskrift. „Ég held ég hafi verið hálf athyglissjúkur allt frá barnæsku og ég hef allt- af haft sterka þörf fyrir að tjá mig. Leiklistin er ágæt leið til að tjá sig, þótt það séu ekki allt- af þínar eigin skoðanir sem þú ert að tjá. Nema kannski í þessu tilfelli, það er mjög margt í Boð- bera sem endurspeglar mínar lífsskoðanir,“ segir Darri. Hann kynntist leikstjóra myndarinn- ar, Hjálmari Einarssyni, í Cann- es árið 2006 en Darri segist hafa smyglað sér á hátíðina og alla leið í veislu á vegum tímaritsins Vanity Fair. „Vinur minn hafði ætlað fara ásamt nokkrum vin- konum sínum en forfallaðist og lét mig fá passann sinn í staðinn. Við ákváðum svo að smygla okkur inn í Vanity Fair-veisluna, klædd- um okkur í okkar fínasta púss og gengum beint inn á staðinn. Þetta var sama ár og Al Gore sýndi heimildarmyndina sína á Cann- es og ég hitti hann þarna á dans- gólfinu þar sem hann dansaði við eiginkonu sína.“ Darri hefur verið búsettur í Los Angeles undanfarna mán- uði og segir hann borgina fulla af atvinnulausum leikurum, handrits- höfundum og leikstjórum. „Þetta er búið að vera mikið ævintýri en líka rosalegt hark. Ég hef þurft að vinna við ýmislegt bara til að halda mér á floti og vann um tíma sem pylsusendill.“ Darri segist hafa hitt ótrúlegasta fólk í gegnum það starf og nefnir tónlistarmann- inn Busta Rhymes í því samhengi. „Hann er orðinn feitur núna og var hálf dónalegur en ég klesst‘ann þegar við kvöddumst,“ segir Darri og hlær. „Núna vinn ég sem þjónn á veitingastað á Sunset Strip. Stað- urinn er beint á móti Marmont- hótelinu og við fáum því mikið af þekktu fólki til okkar. Jason Segel úr How I Met Your Mother er til dæmis fastakúnni hjá okkur.“ Inn- tur eftir því hvort hann fái aldrei nóg af harkinu í borg englanna svarar hann því neitandi. „Maður er alltaf að upplifa eitthvað nýtt þannig að mér finnst þetta þess virði.“ - sm DARRI INGÓLFSSON: KLESST‘ANN Á BUSTA RHYMES Harkar í Hollywood innan um atvinnulausa leikara HARK Í HOLLYWOOD Darri Ingólfsson fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Boðbera sem frumsýnd verður á miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LÁRÉTT 2. kjaft, 6. hljóm, 8. nögl, 9. fúsk, 11. á fæti, 12. fýla, 14. krapi, 16. tveir eins, 17. traust, 18. kk nafn, 20. utan, 21. mergð. LÓÐRÉTT 1. drykkur, 3. kúgun, 4. planta, 5. gaul, 7. afsökun, 10. eldsneyti, 13. flík, 15. knippi, 16. átti heima, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. gogg, 6. óm, 8. kló, 9. kák, 11. il, 12. óloft, 14. slabb, 16. bb, 17. trú, 18. jón, 20. án, 21. ótal. LÓÐRÉTT: 1. kókó, 3. ok, 4. glitbrá, 5. gól, 7. málsbót, 10. kol, 13. fat, 15. búnt, 16. bjó, 19. na. Íslenska kvikmyndadúóið Árni & Kinski eru staddir hér á landi til að taka upp auglýsingu fyrir bandarísku útgáfuna af Gulu síð- unum. Stefán Árni og Siggi Kinski eru báðir búsettir í Bandaríkj- unum með fjölskyldum sínum en segjast nýta hvert tækifæri til að koma og taka upp auglýsingar hér heima. „Við mælum gjarna með því við kúnnana okkar að taka upp á Íslandi. Fyrir nokkrum árum var það frekar erfitt því allt var svo dýrt en nú er öldin önnur. Það eina sem var næstum búið að setja strik í reikninginn var Eyjafjallajökull og eldgosið en Kanarnir voru frek- ar smeykir við það,“ segir Árni og bætir við að þeir séu vonandi búnir að róa sig. „Ég meina, það er alltaf verið að taka upp á Hawa- ii sem er líka eldfjallaeyja og því ástæðulaust að vera hræddur við litlu eyjuna okkar.“ Fyrirtækið Yellow Pages er að halda innreið sína á netmarkað- inn og verður auglýsingin ein- föld í sniðum og tekin upp í stúdío næstkomandi föstudag. Fyrirtæk- ið True North kemur að tökunum og verða tveir íslenskir leikarar í aðalhlutverkum. Ekki er ennþá búið að festa niður hverjir eiga að leika í auglýsingunni en ljóst er að þeir eiga eftir að verða nokk- uð þekkt andlit í Bandaríkjunum enda Yellow Pages mikið notað og vel þekkt fyrirbæri, „Ég og konan mín ákváðum að koma með dætur okkar og eyða smá tíma hér á landi. Við reynum að koma hingað á sumrin en við erum bæði mikið í hugleiðslu og Ísland kjörið í þess konar iðkun,“ segir Árni og mælir hiklaust með hugleiðslu. Kvikmyndateymið Árni & Kinski hefur meðal annars gert auglýsingu fyrir Mercedes Benz- bílana og tónlistarmyndbönd við Sigurósarlögin, Gobbledigood, Glósóla og Hoppípolla og mynd- band fyrir hljómsveitina Travis. - áp Taka upp auglýsingu fyrir Yellow Pages hér á landi ÁRNI & KINSKI Kvikmyndateymið sem dregur bandaríska kúnna til að taka upp auglýsingar á Íslandi. ERTU AÐ FARA Í SUMARFRÍ? Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman. Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst á netfangið dreifing@posthusid.is Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins, nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing Íslendingar í Kaupmannahöfn eru að gera það gott þessa dagana. Hárgreiðslumaðurinn Kristinn Óli Hrólfsson opnaði fyrir stuttu hárgreiðslustofuna Mugshot við Nýhöfn. Stofan hefur vakið mikla athygli þar í landi enda nokkuð óhefðbundin að því leytinu að viðskiptavinirnir sitja meðal annars við hringborð þar sem allir geta spjallað saman. Danska dagblaðið Københavneravisen fjallaði um opnun stofunnar á forsíðu sinni í lok júní. Aðrir Íslendingar sem hafa verið að gera það gott í Kóngsins Köben eru þær Dóra Takefusa og Dóra Dúna Sighvatsdóttir, sem reka skemmtistaðinn Jolene, og Friðrik Weisshappel sem rekur einnig nokkur kaffihús þar í borg. Hinn íslenski Sigurður Helguson rekur einnig vinsælan bar í miðborg Kaupmannahafnar, Café Blasen, en þangað venja margir Íslendingar komu sína og hefur útvarpsmaðurinn Andri Freyr gjarnan þeytt skífum fyrir mannskapinn um helgar. Kvikmyndagerðarmaðurinn og trymbillinn Frosti Jón Runólfsson er kominn heim eftir að hafa dvalið bæði á Filippseyjum og í Dan- mörku undanfarna mánuði. Frosti vinnur nú hörðum höndum að því að leggja lokahönd á að klippa mynd sína sem hlotið hefur titilinn „Hudas Hudas”, sem þýðist „Júdas Júdas”. Það sást til leikkonunnar Ísgerðar Elfu Gunnarsdóttur á Dýrafjarðar- dögum um helgina. Hátíðin þótti heppnast vel en þetta er í sjötta sinn sem hún er haldin hátíðleg. Ýmislegt var hægt að gera sér til dundurs á hátíðinni, þess á meðal var markaðsstemning á víkingasvæðinu á sunnudaginn auk þess sem tvær leik- sýningar einleikja- hátíðarinnar Act alone fóru fram í Félagsheimili Þingeyjar. - sm FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ svör við spurningum á bls. 8 1 Jón Ólafsson. 2 Jón Magnús Jónsson. 3 26 kílóum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.