Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 10
10 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR FRÉTTASKÝRING Hverjir eiga eftir að greina frá styrkveit- endum í prófkjörum 2006? Níu þingmenn í þremur flokk- um greindu í júní frá prófkjörs- baráttu sinni 2006 hér í blaðinu. Bæði um heildarkostnað og hverj- ir veittu þeim hæstu styrkina. Enn eiga fimm þingmenn eftir að nafngreina styrkveitendur sem samtals veittu þeim 10,7 milljón- ir í framlög fyrir prófkjör 2006 vegna þessarar baráttu og er þá einungis litið til styrkja sem nema hálfri milljón eða meira. Þess skal geta að Ríkisendurskoðun mæltist til þess – eftir á að frambjóðend- ur greindu frá þessum styrkjum sínum, en þegar þeir voru veittir giltu engin ákvæði sem skylduðu frambjóðendur til að segja hvaðan aurarnir komu. Af óútskýrðu 10,7 milljónunum eru 4,7 milljónir frá lögaðilum og sex frá einstaklingum. Þing- mennirnir fimm eru allir í Sjálf- stæðisflokknum og á Guðlaug- ur Þór Þórðarson bróðurhluta summunnar, 7,5 milljónir. Guðlaugur hefur skýrt leynd- ina með því að sumir styrkveit- endur hafi ekki leyft honum að birta nöfn sín. Þá hafi hann ekki náð í nokkra aðila til að fá sam- þykki þeirra. Án þess að staðhæfa að svo sé, segist hann heldur ekki birta nöfn þeirra sem kunni að vera látnir. S i g u r ð u r K á r i Kristjánsson hefur í viðtali við Frétta- blaðið neitað að gefa upp hverj- ir lögðu honum 1,5 milljónir til barátt- unnar. Hann hefur síðar sagt að styrk- ir sínir séu frá fjöl- skyldumeðlimum og fólki sem tengist honum vinaböndum. Þetta fólk kæri sig ekki um að vera hluti af styrkjaumræðunni. Pétur H. Blöndal hefur upplýst í Fréttablaðinu að 700.000 króna styrkur til sín hafi verið frá hjón- um sem vildu láta prenta fyrir hann bækling. Hann sagði fyrir nokkru að hann þyrfti að fá leyfi frá fólkinu til að nafngreina það. Pétur var á þriðjudag ekki búinn að þessu og vildi ekki veita viðtal til útskýringar. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, hefur greint blaðinu frá því að hann hafi beðið um, en ekki fengið, leyfi til að gefa upp hver veitti honum hálfa milljón í styrk. Hann hefur sjálfur hvatt flokks- menn sína til að segja frá slík- um styrkjum eftir því sem hægt er. Það sé sjálfsagt og eðlilegt að leggja allt á borðið. En Kristján Þór Júlíusson, þing- maður Norðausturkjördæmis, hefur alls ekki útskýrt hálfrar milljón- ar króna styrk fyrir þessar sömu kosningar. Ekki hefur náðst í Kristján Þór síðustu vikur þrátt fyrir fjölmargar sím- hringingar og skilaboð. Eftir því sem næst verður kom- ist hafa allir aðrir þingmenn greint frá sínum styrkjum af þessari stærðargráðu, annaðhvort hjá Rík- isendurskoðun, í Fréttablaðinu eða á Vísi. Ábendingar um annað væru vel þegnar. Þess skal getið að þær upplýsing- ar sem þingmenn hafa veitt Ríkis- endurskoðun og fjölmiðlum, um styrki og kostnað, hafa ekki verið sannreyndar. klemens@frettabladid.is Kanilsnúðar Íslenskur gæðabakstur - Tilbúinn í ofninn FR YS TI VA RA Taktu bollur með í ferðalagið! www.ora.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Landsfundur Sjálfstæðisflokksins skoraði á dögunum á forystu flokksins að hugsa sinn gang. Þeir sem hafi þegið háa styrki frá félögum eða notið fyrirgreiðslu sem ekki hafi staðið almenningi til boða eigi að sýna ábyrgð með því að víkja úr þeim embættum sem þeir voru kosnir til að gegna. Styrkþegar víki Styrkir frá nafnlausum aðilum til þingmanna Miðað við upplýsingar frá þingmönnunum sjálfum og Ríkisendurskoðun 1,5 milljónir frá einstaklingi Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá einstaklingi Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá einstaklingi Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá einstaklingi Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá einstaklingi Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá lögaðila Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá lögaðila Guðlaugur Þór Þórðarson 1 milljón frá lögaðila Sigurður Kári Kristjánsson 700.000 frá einstaklingi Pétur H. Blöndal 500.000 frá lögaðila Bjarni Benediktsson 500.000 frá lögaðila Kristján Þór Júlíusson 500.000 frá einstaklingi Sigurður Kári Kristjánsson *Ekki eru taldir með styrkir sem voru lægri en 500.000 krónur. Nær engir veitendur slíkra styrkja eru nafngreindir í þeim upplýsingum sem lagðar hafa verið fram frá þessum tíma. Fimm þingmenn þegja um styrki Fimm þingmenn hafa ekki greint frá því hverjir styrktu þá í prófkjörum fyrir þingkosningar 2007. Þeir eru allir í Sjálfstæðisflokknum. Sumir þeirra segjast ekki mega segja almenningi frá hverjir styrktu þá. EFNAHAGSMÁL Rétt rúmur helmingur Þjóðverja vill skipta evrunni út og taka þýska markið upp að nýju. Þetta eru niðurstöð- ur könnunar alþjóðlega markaðsrannsóknarfyr- irtækisins Ipsos. Einungis þrír af hverj- um tíu sem þátt tóku í könnuninni vilja halda í evruna en átján prósent eru óákveðin hvað skuli gera. Þetta er þvert á niðurstöður kannana á vegum Evr- ópusambandsins (ESB) frá í febrúar, en þá voru 66 prósent Þjóðverja fylgjandi evruaðild. Ekki kemur fram í erlendum fjölmiðlum fyrir hvern Ipsos gerði könnunina. Helsta ástæða við- snúningsins mun vera dýr fjárhagsstuðning- ur við þau evruríki sem standa illa, þar á meðal Grikkland. Þeir þátttakendur í könnun Ipsos sem vilja sjá markið á ný telja að kostnaðurinn muni falla á skattgreiðendur. Breska dagblaðið Telegraph segir þátttakendur í könnuninni sem séu komnir yfir miðjan aldur í meirihluta þeirra sem sakni þýska marksins, eða 56 prósent. Það hefur eftir Pearson lávarði, formanni breska Sjálfstæðis- flokksins sem andsnúinn er aðild Bretlands að ESB, að fólk sé nú að átta sig á því að ráðamenn efna- hagsbandalagsins hafi svikið sig. - jab Meirihluti Þjóðverja er andsnúinn evrunni og vill taka upp þýska markið á ný: Aðstoð ESB fer illa í fólk PEARSON SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON PÉTUR HARALDSSON BLÖNDAL KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON BJARNI BENE- DIKTSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.