Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 05.07.2010, Blaðsíða 20
 5. JÚLÍ 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald A llt lífrænt efni, sem til fellur í garðinum, má nýta til jarðgerð- ar eða moltugerðar. Molta er ræktunarefni sem inniheldur mun meira af næringarefnum en mold, hefur eiginleika til að halda næringu vel og er því bæði áburðargjafi og jarðvegs- bætir. Laufblað sem fellur að hausti er óþekkjanlegt fáeinum mánuðum síðar. Við líkjum eftir þessu þegar við jarðgerum heima í garði. Líf- rænu úrgangsefni er blandað saman í haug og þegar réttu skilyrðin skapast í haugnum, það er nóg af raka og súrefni, tekur niðurbrots- bakteríum að fjölga og niðurbrot og hitamyndun hefst. Allt hráefnið þarf að hitna og því er mikilvægt að snúa haugnum og blanda. Æski- legt er að halda hita í haugnum, á bilinu 50-70°C í 3-4 daga. Hitinn í haugnum fellur síðan hægt, massinn breytir um lit og má þá leggja efnið í nýjan haug, til frekara niðurbrots. Allt lífrænt efni sem fellur til í eldhúsi er í raun hægt að jarðgera. Hráefni sem laðar að meindýr, til dæmis matarleifar, þarf að jarðgera í lokuðu íláti eða safntunnu (lokuð jarðgerð). Garðaúrgang má hins vegar jarðgera í opnum safnkassa eða í haug (opin jarðgerð). Ílátið þarf að þol íslenskt veðurfar og velja skal skuggsælan stað í garðinum fyrir jarðgerðina. Tveggja eða þriggja hólfa safnkassar eru mjög hent- ugir fyrir garðaúrgang svo sem greinar, lauf og gras. Gróflega má skipta hráefni í tvo flokka: grænt efni sem er köfnunar- efnisríkt (til dæmis nýslegið gras) og hins vegar brúnt efni (stoðefni til dæmis trjágreinar) sem er kolefnisríkt. Í eldhúsinu er gott að koma fyrir sérstakri fötu fyrir lífræna úr- ganginn. Þegar fatan er full er hún losuð í jarðgerðartunnuna utan- dyra. Setjið hálfa fötu af stoðefni (lauf, sag, dagblöð, hálm) á móti sorpfötunni í jarðgerðartunnuna. Þannig er efninu safnað yfir vetur- inn. Um sumarið er rétt að setja jarðgerðina í gang. Nýslegnu grasi af lóðinni er blandað saman við hráefnið og hrært vel saman við stoðefni (1/3 hluti). Timburkassi (2-3 hólfa) hentar yfirleitt vel fyrir garðaúrganginn þar sem þeir eru stórir og taka við töluverðu efni. Setjið ekki eldhús- úrgang í kassann. Hægt að færa hráefnið á milli hólfa einu sinni á ári og er það þá tilbúið til notkunar á þriðja til fjórða ári. Hægt er að láta ferlið ganga hraðar fyrir sig ef hiti næst upp í efninu (sem drepur ill- gresisfræ) og haugnum er snúið reglulega. Moltu er auðvelt er að nýta í allri ræktun. Almennt næst bestur ár- angur ef moltan er notuð í efsta jarðvegslagið. Nánari upplýsingar á www.horticum.is. Safnhaugar í heimilisgörðum ERTU AÐ FARA Í SUMARFRÍ? Pósthúsið ehf. annast dreifingu Fréttablaðsins, nánari upplýsingar á www.visir.is/dreifing Þú getur afpantað Fréttablaðið á meðan þú ert að heiman. Hafðu samband í grænt númer 800-1177 eða sendu póst á netfangið dreifing@posthusid.is ● ÓVENJULEG BLÓMAHIRSLA Sumarblómin eru komin á útsölur víða í blómabúðum og tilvalið að ná sér í falleg blóm í garðinn enda mikið eftir af sumrinu. Þau þarf svo ekki endilega að gróðursetja í beð heldur getur verið gaman að stilla út í garðinn fallegum blómapottum eða gróðursetja blómin í postulínsvasa sem venjulega væru inni í stofu. Hér hefur einhver hugmyndaríkur dregið gamla kommóðu út í garð, málað hana í hressandi og sumarlegum lit og gróðursett blómin i skúffurnar. Ofan á kommóðuna eru svo settir vasar og gamall kassi undan mandarínum undir blómin. Skemmtileg og sumarleg hugmynd ef til stendur að henda gamalli hirslu af heimilinu. Helga Ragnarsdóttir íbúi í Vogum á Vatnsleysuströnd ástundar vistvænan lífsstíl, bæði innan veggja heimilisins og í garðinum. „Ég held að þetta sé uppeldið. For- eldrar mínir hafa alltaf verið með garð. Vistvæn garðyrkja var ekki til þá en það sem þau voru að gera var í þá áttina,“ segir Helga Ragn- arsdóttir flugfreyja sem stundar vistvæna garðyrkju. „Við notuð- um það lífræna sem til féll.“ Helga er alin upp í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem hún býr enn þann dag í dag. Hún flutti fyrir tveimur árum í hús við sjó- inn þar sem hún horfir yfir til Keflavíkur og er að byrja að rækta nýja garðinn. „Við tyrfðum lóðina í fyrra. Svo erum við að planta núna. Þetta er spennandi verk- efni,“ upplýsir Helga sem segir skjólið helst til lítið. „Við þurfum að byrja á því að koma okkur upp svolitlu skjóli. Við gerum það með matjurtagarðinum. Þar erum við með kartöflur, blaðsalat, matlauk, jarðarber, rabarbara, gulrætur og hnúðkál.“ Helga segist ástunda vist- vænan lífsstíl sem byrjaði inni á heimilinu en fluttist svo út í garð. „Ómeðvitað er ég að stunda vist- væna garðyrkju. Hún er orðin svo inngreipt í mig að ég er ekk- ert að spá í það lengur,“ segir Helga. „Við umhirðu í garðinum eru flest verk vistvæn. Grasflat- ir eru slegnar vikulega og gras látið liggja eða sett í göturnar í kartöflugarðinum. Allt illgresi er upprætt um leið og það birtist en á það er ekkert eitur notað,“ útskýrir hún. Helga segir að það skemmti- legasta við vistvæna garðyrkju sé samvinnan við nágrannana. „Samnýting á verkfærum og tækjum er auðveld og ódýr leið. Það er líka gaman að hjálpast að og eiga skemmtilegar stund- ir saman við garðverkin. Svo má líka deila ráðum og hugmyndum.“ - mmf Samstarf við nágrannana veitir almenna ánægju Helga segir að gott sé að byrja smátt við vistvæna garðyrkju. Í matjurtagarðinum eru meðal annars ræktaðar kartöflur, blaðsalat og hnúðkál. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fyrir neðan garð Helgu er kúmenræktun þar sem gömul kona í kaupstaðnum fær að tína kúmen og því má ekki slá grasið þar. Breitt yfir matjurtaræktunina svo flugur komist ekki að henni. Þá þarf ekki að eitra. GARÐYRKJA & UMHVERFIÐ BALDUR GUNNARSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.