Fréttablaðið - 05.07.2010, Síða 8
8 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
Ómissandi
Hrein íslensk náttúruafurð
ms.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
18
5
0
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Alþing-
is telur að samgönguráðuneyt-
ið hafi ekki farið að lögum þegar
það úrskurðaði í stjórnsýslukæru
Eyjólfs R. Stefánssonar tölvunar-
fræðings. Hann kærði ákvörðun
Akranesbæjar um að bjóða tölvu-
þjónustu ekki út heldur semja við
fyrirtækið Tölvuþjónustuna Sec-
urStore vorið og sumarið 2008.
Forsaga málsins er sú að bæjar-
yfirvöld ákváðu að bjóða tölvu-
þjónustu bæjarins ekki út held-
ur semja við SecurStore. Það
fyrirtæki er að hluta til í eigu Arn-
ars Gunnarssonar, sonar Gunnars
Sigurðssonar, þáverandi forseta
bæjarstjórnar.
Umboðsmaður Alþingis, Róbert
Spanó, telur að málsmeðferð ráðu-
neytisins hafi verið ábótavant.
Það lét hjá líða að óska nægilegra
upplýsinga um hæfi forseta bæj-
arstjórnar. Ekki var óskað upp-
lýsinga um hvort Gunnar hefði
haft vitneskju um kaup sonar
síns í tölvufyrirtækinu. Þau fóru
fram 30. apríl 2008 og fullyrtu
bæjaryfirvöld að Gunnar hefði
ekki tekið þátt í ákvörðunum um
málið eftir það, en endanlega var
samþykkt að ganga til samninga
við fyrirtækið 15. júní það ár.
„Ég ítreka í þessu samhengi
það sem áður er rakið, að 1. mgr.
19. gr. sveitarstjórnarlaga tekur
hvort tveggja til hæfis sveitar-
stjórnarmanns við „meðferð“ og
„afgreiðslu“ máls,“ segir í úrskurð-
inum. Yfirlýsing bæjaryfirvalda
ein og sér hafi því ekki verið nægj-
anleg til að byggja úrskurð ráðu-
neytisins á henni.
„Af gögnum málsins verður ekki
annað ráðið en að samgönguráðu-
neytið hafi látið hjá líða að óska
frekari skýringa Akraneskaup-
staðar um framangreind atriði.“
Tölvufyrirtækið Omnis kærði
samninginn við SecurStore til
kærunefndar útboðsmála, sem
taldi bæjaryfirvöld hafa brotið lög
og EES-reglur með samningnum.
Samkvæmt gögnum um opinber
innkaup var hins vegar ekki hægt
að fella samninginn úr gildi, þar
sem hann var orðinn bindandi,
þrátt fyrir að vera ólögmætur.
Umboðsmaður beinir því, í
niðurstöðu sinni, til samgöngu-
ráðuneytisins að taka mál Eyj-
ólfs til endurskoðunar, komi fram
beiðni þess efnis frá honum og
hagi þá meðferð málsins í sam-
ræmi við þau sjónarmið sem rakin
eru í álitinu.
Eyjólfur segist vera að íhuga
alvarlega að fara fram á að ráðu-
neytið geri svo.
kolbeinn@frettabladid.is
Samgönguráðuneyti
fór gegn lögunum
Úrskurður samgönguráðuneytisins í stjórnsýslukæru vegna kaupa Akranesbæj-
ar á tölvuþjónustu var ekki í samræmi við lög. Kærandinn vill að ráðuneytið
endurskoði úrskurðinn. Hæfi forseta bæjarstjórnar var dregið í efa.
EYJÓLFUR R.
STEFÁNSSON
RÓBERT SPANÓ
AKRANES Kærunefnd útboðsmála hefur úrskurðað að samningur bæjarins við
fyrirtæki sonar forseta bæjarstjórnar sé ólöglegur. Nú hefur umboðsmaður Alþingis
úrskurðað að meðferð samgönguráðuneytisins á kæru vegna málsins hafi verið á
svig við lög. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TÆKNI Skjáskot af því sem sagt er sýna næstu upp-
færslu á Windows-stýrikerfinu úr búðum bandaríska
hugbúnaðarrisanum Microsoft láku á Netið á dögun-
um. Þau fóru sem eldur um sinu um netheima í síð-
ustu viku.
Það var ítalskur bloggari sem gengur undir nafn-
inu Windowsetta, sem setti upprunalega skjáskotin á
Netið.
Um nokkrar glærur er að ræða. Það sem helst tengir
þær við nýtt stýrikerfi er tilvísun í það í horni hverrar
glæru.
Nýjasta útgáfa stýrikerfis Microsoft heitir Wind-
ows 7 og kom á markað í október í fyrra. Miðað við
það sem fram kemur á glærunum sem láku á Netið er
reiknað með næstu útgáfu eftir tvö ár. Microsoft hefur
ekki vilja staðfesta hvort glærurnar eru raunveruleg-
ar eður ei, að sögn netmiðilsins InformationWeek.
Miðað við það sem sést á glærunum fær Microsoft
að láni nokkrar af lausnum keppinautarins Apple. Ein
þeirra er netverslunin Windows App Store, sem gerir
netverjum kleift að kaupa hugbúnað með svipuðum
hætti og notendur Apple-tækja hafa getað gert í tvö
ár. Þá má reikna með auknum stuðningi við myndræna
upplifun, þar á meðal þrívídd. - jab
SKJÁSKOT AF WINDOWS 7 Tvö ár eru talin í að næsta kynslóð af
Windows-stýrikerfi Microsoft líti dagsins ljós.
Skjáskot af næstu útgáfu Windows-stýrikerfis Microsoft láku á Netið um helgina:
Fá ýmislegt að láni hjá Apple
Ölvun við akstur
Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvun
við akstur í umdæmi lögreglunnar
á Snæfellsnesi á tíunda tímanum á
laugardagskvöld. Ölvunaraksturinn
átti sér stað á Snæfellsnesvegi við
Miklaholtssel.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Lýsing hefur höfðað
fyrsta málið gegn viðskiptavini til
að láta reyna á leið stjórnvalda til
að gera upp gengistryggð lán miðað
við hagstæðustu seðlabankavexti.
Málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á fimmtudag.
Aðilar málsins hafa komið sér
saman um að flýta því eins og hægt
er en málið fær enga sérstaka flýti-
meðferð í héraðsdómi enda þyrfti
líkast til að breyta lögum til að það
væri hægt. Óvíst er því hvenær
niðurstaða fæst í málið.
Í málinu er tekist á um það hvort
unnt sé að breyta skilmálum láns
eftir á, eins og leið stjórnvalda
felur í sér, það er að breyta upp-
haflegum samningsvöxtum í seðla-
bankavexti.
Boðaður hefur verið sameigin-
legur fundur í viðskiptanefnd og
efnahags- og skattanefnd Alþing-
is á mánudaginn kemur þar sem
aðalumræðuefnið er tilmæli Seðla-
bankans og Fjármálaeftirlitsins um
uppgjör gengistryggðu lánanna. Á
heimasíðu Alþingis er þess getið að
gestir hafi verið boðaðir á fundinn
en ekki segir hverjir það eru. - sh
Fyrsta dómsmálið vegna tilmæla stjórnvalda um gengistryggð lán farið af stað:
Lýsing höfðar fyrsta málið
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Málið
hefur þegar verið þingfest en óvíst er
hversu langan tíma það mun taka.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAMFÉLAGSMÁL Alls 495 fjölskyld-
ur í Kópavogi fengu fjárhags-
aðstoð hjá Félagsþjónustu bæjar-
ins árið 2009. Árið 2008 var þessi
fjöldi 396.
Tilkynningum til barnaverndar
hefur einnig fjölgað milli ára, úr
641 í 762. Í ávarpi Aðalsteins Sig-
fússonar, félagsmálastjóra Kópa-
vogs, í ársskýrslu félagsþjónust-
unnar, segir að erfitt sé að segja
til um hvað valdi en skýringuna
megi þó líklega rekja til atvinnu-
leysis og fjárhagslegra erfiðleika.
Í skýrslunni kemur fram að
eftirspurn eftir félagslegri ráð-
gjöf og fjárhagsaðstoð hafi auk-
ist í kjölfar íslenska efnahags-
hrunsins. - mþl
Félagsþjónusta Kópavogs:
495 fjölskyldur
fengu aðstoð
KÓPAVOGUR Félagslegum vandamálum
hefur fjölgað töluvert. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VESTMANNAEYJAR Bæjarstjórn
Vestmannaeyja skorar á sjávar-
útvegsráðherra og ríkisstjórnina
alla að falla tafarlaust alfarið frá
boðaðri fyrningarleið. Bæjar-
stjórnin segir að þess í stað beri
að leita áfram leiða til að efla
sjávarútveg í sátt við íbúa sjávar-
byggða, starfsmenn greinarinn-
ar og landsmenn alla. „Stjórnvöld
eru að vinna gegn hagsmunum
sjávarútvegsins og þar með gegn
hagsmunum sjávarbyggða með
boðaðri fyrningarleið,“ segir í
ályktun bæjarstjórnarinnar. - þeb
Bæjarstjórn í Eyjum harðorð:
Fallið verði frá
fyrningarleið
AGS lánar Úkraínu
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins hefur mælt með því við stjórn
sjóðsins að Úkraína fái lán að
andvirði um 1.860 milljarða króna.
Lánið verður greitt út á næstu þremur
árum. Undan farin ár hafa Úkraínu-
menn glímt við hækkandi verðbólgu
og minnkandi gjaldeyristekjur sem
ógnað hefur stöðugleika í landinu.
ÚKRAÍNA
LÖGREGLUMÁL Breiðleitur maður
um tvítugt, með stutt hár og gisn-
ar tennur, braust inn í Gesthús á
Selfossi aðfaranótt laugardags að
talið er. Gesthús er sumarhúsa-
byggð á Selfossi. Vitni sá til
mannsins koma út úr húsinu og
fara í burt á reiðhjóli. Í ljós kom
að búið var að taka nokkurt magn
af áfengi sem fannst stuttu síðar
falið skammt frá húsinu.
Í kjölfarið lýsti lögreglan eftir
manninum en engar ábendingar
höfðu borist lögreglunni seinni-
partinn í gær. - mmf
Áfengi flutt úr sumarhúsum:
Lýst eftir breið-
leitum þjófi
1 Hvaða Íslendingur er stórvin-
ur Mikes Tyson?
2 Hvað heitir eini kalkúna-
bóndi Íslands?
3 Hversu miklu magni af
glingri smygluðu fjórir Rúmen-
ar til landsins?
SVÖR Á SÍÐU 30
VEISTU SVARIÐ?