Fréttablaðið - 05.07.2010, Síða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þetta er griðastaðurinn minn.
Ég sit í stól sem hefur verið lengi í
eigu föðurfjölskyldu minnar,“ segir
Harpa Þórsdóttir, forstöðumaður
Hönnunarsafns Íslands. „Það er
hægt að liggja makindalega í þess-
um stól og ég á mjög góðar minn-
ingar úr honum sem unglingur.“
Stóllinn var á heimili foreldra
Hörpu þar til hún fór að falast eftir
honum fyrir nokkrum árum. „Þá
var hann bara kominn niður í kjall-
ara í geymslu og kötturinn okkar,
hann Depill, var búinn að klóra
hann allan í sundur,“ segir Harpa
og bætir við að foreldrar hennar
hafi undrast á því að hana skyldi
langa í stólinn.
Frændi Hörpu, Sæmundur
Skarphéðinsson smiður, fæddur
1894, átti stólinn fyrstur. Stóllinn
varð eftir á heimili móðurfólks
föður Hörpu. „Faðir minn tók hann
til sín og svo fór ég að falast eftir
honum,“ segir Harpa sem veit þó
ekki hvers lenskur stóllinn er. „Ég
veit að það var smíðaður íslensk-
ur stóll í anda Chesterfield-stól-
anna. Ég veit ekki hvort þetta er
þannig stóll en ég er mjög forvitin
að vita hvort hann er íslenskur eða
erlendur.“
Harpa segir stólinn á góðum
stað í stofunni. „Nú er hann nán-
ast stofustáss. Hann er í horni þar
sem ég sit oft og horfi út eða inn á
heimilið. Ég sit þarna löngum og er
að hugsa og velta ýmsu fyrir mér,“
útskýrir Harpa og heldur áfram:
„Það er voða vært að sitja þarna og
fylgjast með fyrir utan, hvort sem
það er snjórinn, vindurinn, regnið
eða laufin á trjánum og þegar allt
er að kvikna á vorin.“
Harpa segir góðan anda í horn-
inu. En kunna aðrir fjölskyldumeð-
limir jafn vel við sig í horni Hörpu?
„Nei en dætur mínar hoppa voða
mikið í stólnum. Það er alveg harð-
bannað því ég er svo hrædd um að
þær hoppi upp í málverk Guðrún-
ar Einarsdóttur sem er fyrir ofan
stólinn,“ segir Harpa en dætur
hennar eru fimm og átta ára. „Svo
stökkva þær og vinkonur þeirra úr
stólnum sem er mikill stökkpallur
inni í stofunni.“ martaf@frettabladid.is
Stökkpallur inni í stofu
Harpa Þórsdóttir lýsir griðastaðnum á heimili sínu sem er gamall stóll sem hefur fylgt föðurfjölskyldu
hennar lengi. Hún segir dæturnar og vinkonur þeirra oft skemmta sér við að hoppa í stólnum inni í stofu.
Harpa segir að stóllinn hafi lengi vel verið blár áður en hún bólstraði hann. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
Opið: má-fö. 12:30-18:00, Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum, Kóp. 201,
S: 517 7727-www.nora.is Nóra á facebook
allar vörur með 20%
afslætti til 9 júlí
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SILFUR er hægt að hreinsa með því að bera á það
tannkrem með mjúku viskustykki og nudda vel. Síðan
er það skolað upp úr köldu vatni.