Fréttablaðið - 05.07.2010, Side 37
MÁNUDAGUR 5. júlí 2010 21
Farfuglaheimilin eru öllum opin. Þau bjóða gestum sínum góða gistingu á hagkvæmu verði.
Á farfuglaheimilum er heimilisleg stemning sem hentar vel fjölskyldum á leið sinni um landið.
Nánari upplýsingar um einstök farfuglaheimili er að finna á vef Farfugla www.hostel.is
Einnig er hægt að fá upplýsingar um heimilin í bæklingi sem liggur frammi á flestum
upplýsingamiðstöðvum landsins.
36 farfuglaheimili um allt land bjóða ykkur velkomin
Farfuglar ❚ Borgartúni 6 ❚ 105 Reykjavík ❚ Sími 575 6700 ❚ info@hostel.is ❚ www.hostel.is
Alls eru starfandi 36 farfuglaheimili hér á landi.
Þau bjóða upp á einstaklings- og fjölskylduherbergi
og á öllum þeirra er eldunaraðstaða fyrir gesti.
Bókaðu gistingu á farfuglaheimilum í sumar
- það næsta er aldrei langt undan.
Verið velkomin!
Farfuglaheimili eru
frábær kostur fyrir
alla fjölskylduna
Vandræðagemlingurinn Lindsay
Lohan sagði frá því á Twitter-síðu
sinni að hún hafi verið kýld af þjón-
ustustúlku í eigin afmælispartíi.
Lindsay hélt upp á 24 ára afmæli
sitt á veitingastað í Los Angeles nú á
dögum. Svo virðist sem Lindsay hafi
setið með hafnaboltaleikaranum Doug
Reinhardt og farið vel á með þeim.
Þjónustustúlkunni hefur eitthvað
mislíkað þessi vinskapur því að upp úr
þurru fór hún að leikkonunni og kýldi
hana.
Heimildir herma að þjónustustúlkan
eigi sér einhverja sögu með hafna-
boltakappanum og hún því orðið svona
afbrýðisöm.
Doug hafði engan áhuga á þessum
kjánaskap í stelpunum og færði sig frá
þeim. Við þetta hafi Lindsay
hlaupið út af staðnum.
Það er aldrei rólegt í
kringum Lindsay, það er
alveg á hreinu. - ls
VANDRÆÐAGEMLINGURINN
HELDUR ÁFRAM Minna fer
fyrir jákvæðum fréttum af
leikkonunni.
Kýld í eigin afmælispartíi
Leikkonan Kate Bosworth
er komin á fast með sænska
sjarmatröllinu Alexander Skars-
gard og samkvæmt tímaritinu
National Enquirer er stúlkan
afskaplega ánægð með nýja kær-
astann. „Kate fór með vinkon-
um sínum á Chateau Marmont
fyrir stuttu og það eina sem hún
talaði um allan tímann var nýi
kærastinn, Alexander. Hún sat
þarna með þremur vinkonum
sínum sem voru nógu almenni-
legar til að hlusta á hana án þess
að trufla, en þeim var greinilega
farið að finnast umræðuefnið
þreytulegt þegar leið á kvöldið,“
var haft eftir sjónarvotti.
Montin með
kærastann
MONTIN Kate Bosworth er ánægð með
nýja kærastann. NORDICPHOTOS/GETTY
Eiginmaður leikkonunnar Tori
Spelling, Dean McDermott, ligg-
ur illa slasaður á sjúkrahúsi
eftir torfæruslys. McDermot var
fluttur á spítala eftir að lunga
hans féll saman og mun hann
dvelja næstu daga á gjörgæslu
þar til hann hefur náð fullum
bata. McDermott lenti í öðru tor-
færuslysi fyrr á árinu og brotn-
aði þá á öxl. Mikið hefur verið
fjallað um hjónaband Spelling og
McDermotts frá því að þau létu
pússa sig saman og telja sumir að
hjónabandið sé aðeins til sýnis,
en parið er með sinn eigin raun-
veruleikaþátt þar sem fylgst er
með fjölskyldulífi þeirra.
Eiginmaðurinn
illa slasaður
SLASAÐUR Eiginmaður Tori Spelling
liggur á gjörgæslu eftir að lunga hans
féll saman.
Leikkonunni Kristen Stew-
art hefur alltaf liðið illa
í sviðsljósinu og finnst
óþægilegt að vera
umkringd af öskrandi
aðdáendum. Í nýlegu
viðtali sagðist hún einnig
hrædd um að aðdáendurn-
ir muni einhvern tímann
snúast gegn henni.
„Mér líður mjög
illa á rauða dregl-
inum. Ég horfi á
mannfjöldann og
hugsa með mér að
allt þetta fólk gæti
allt í einu ráðist á
mig og drepið mig.
Enginn öryggisvörður
gæti verndað mig gegn
öllu þessu fólki. Núna eru
þetta aðdáendur mínir,
en ég ímynda mér oft að
þeir muni snúast gegn
mér,“ sagði hin vænisjúka
leikkona.
Óttast áðdáendur
HRÆDD LEIKKONA
Kristen Stewart
segist hrædd við
aðdáendur sína.
NORDICPHOTOS/GETTY