Fréttablaðið - 05.07.2010, Qupperneq 40
24 5. júlí 2010 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Sparisjóðsv. Kefl., áhorf.: 2.170
Keflavík FH
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–16 (7–7)
Varin skot Ómar 5 – Gunnleifur 6
Horn 7–11
Aukaspyrnur fengnar 10–5
Rangstöður 3–2
FH 4–3–3
Gunnl. Gunnleifss. 7
Guðm. Sævarsson 6
Hafþór Þrastarson 6
Tommy Nielsen 6
Hjörtur L. Valgarðss. 5
Pétur Viðarsson 5
Björn D. Sverrisson 6
Matthías Vilhjálmss. 6
Atli Guðnason 6
Ólafur Páll Snorrason 7
Atli Viðar Björnsson 5
(73. Bjarki Gunnl. -)
*Maður leiksins
KEFLAVÍK 4–5–1
Ómar Jóhannsson 7
Guðjón Á. Antoníuss. 6
Haraldur Fr. Guðm. 7
Bjarni Hólm Aðalst. 6
Alen Sutej 7
(65. Jóhann Guðm. 6)
Einar Orri Einarsson 6
Paul McShane 6
(59. Brynjar Guðm. 6)
Hólmar Örn Rúnarss. 6
Magnús Þorsteinss. 6
*Guðm. Steinarsson 7
Magnús Þ. Matthíass. 6
(88. Ómar Karl Sig. -)
1-0 Guðmundur Steinarsson (27.)
1-1 Ólafur Páll Snorrason (61.)
1-1
Erlendur Eiríksson (5)
STJARNAN 0-2 ÍBV
0-1 Tryggvi Guðmundsson (4.)
0-2 Denis Sytnik (89.)
Stjörnuvöllur, áhorf.: 718
Dómari: Magnús Þórisson (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–11 (8–5)
Varin skot Bjarni 3 – Albert 8
Horn 7–3
Aukaspyrnur fengnar 16–12
Rangstöður 4–4
Stjarnan 4–5–1 Bjarni Þ. Halldórsson 6 – Baldvin
Sturluson 7, Daníel Laxdal 6, Marel Baldvinsson
6, Jóhann Laxdal 5 – Dennis Danry 5, Þorvaldur
Árnason 4 (65. Hilmar Hilmarss. 5), Atli Jóhannsson
5 (77. Tryggvi Bjarnason -), Halldór Orri Björnsson
5, Steinþór Fr. Þorsteinsson 5 – Ellert Hreinsson 4.
ÍBV 4–3–3 Albert Sævarsson 8 – James Hurst 7,
*Eiður Aron Sigurbjörnsson 8, Rasmus Christi-
ansen 7, Matt Garner 7 – Finnur Ólafsson 7, Tony
Mawejje 5 (84. Ásgeir Aron Ásgeirsson -), Þórarinn
Ingi Valdimarsson 6 – Eyþór Helgi Birgisson 5 (65.
Denis Sytnik 7), Andri Ólafsson 7, Tryggvi Guð-
mundsson 8 (90. Yngvi M. Borgþórsson -).
KR-völlur, áhorf.: 1.059
KR Grindavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 12–12 (6–6)
Varin skot Moldsked 5 – Rúnar Dór 5
Horn 4–6
Aukaspyrnur fengnar 20–12
Rangstöður 1–2
GRINDAV. 4–4–2
Rúnar Dór Daníelss. 6
Loic Mbang Ondo 5
Auðun Helgason 6
Orri Freyr Hjaltalín 6
Jósef Kr. Jósefsson 4
Scott Ramsay 6
Matthías Friðriksson 5
Jóhann Helgason 6
Páll Guðmundsson 5
(57. Óli B. Bjarnas. 5)
Grétar Hjartarson 4
(84. Vilhjálmur Darri -)
Gilles Mbang Ondo 6
*Maður leiksins
KR 4–3–3
Lars Ivar Moldsked 7
Eggert R. Einarsson 5
Mark Rutgers 5
(32. Gunnar Örn J. 6)
Grétar S. Sigurðarson 7
Guðm. R. Gunnarss. 7
Baldur Sigurðsson 6
*Bjarni Guðjónsson 8
Viktor Bjarki Arnarss. 5
Óskar Örn Hauksson 6
Kjartan H. Finnbogas. 5
Björgólfur Takefusa 4
1-0 Bjarni Guðjónsson (13.)
1-0
Einar Örn Daníelsson (6)
STAÐAN
ÍBV 10 6 2 2 16-8 20
Keflavík 10 5 4 1 11-9 19
Breiðablik 9 5 2 2 19-12 17
Fram 9 4 4 1 15-10 16
Valur 9 4 3 2 15-13 15
FH 10 4 3 3 16-16 15
Stjarnan 10 3 4 3 20-15 13
KR 10 3 3 4 14-15 12
Fylkir 9 3 2 4 17-19 11
Selfoss 9 2 1 6 11-17 7
Grindavík 10 2 0 8 10-20 6
Haukar 9 0 4 5 9-19 4
NÆSTU LEIKIR
Selfoss - Breiðablik í kvöld kl. 19.15
Haukar - Fylkir í kvöld kl. 19.15
Fram - Valur í kvöld kl. 20.00
MARKAHÆSTU LEIKMENN
Albert Brynjar Ingason, Fylki 6 mörk
Halldór Orri Björnsson, Stjörnunni 6 mörk
PEPSI-DEILDIN
FÓTBOLTI ÍBV komst á topp Pepsi-
deildar karla með góðum 2-0 úti-
sigri á Stjörnunni í fyrsta leik 10.
umferðar í gær. Þeir Tryggvi Guð-
mundsson og Denis Sytnik skor-
uðu mark Eyjamanna í gær sem
vörðust þó lengst af í leiknum.
„Við erum einfaldlega með
gott lið,“ sagði Andri Ólafsson,
fyrirliði ÍBV, eftir leikinn. „Ég
var mjög ánægður með frammi-
stöðuna. Þetta var fyrst og fremst
góður vinnusigur hjá okkur en
samt nokkuð dýr. Við fengum of
mikið af gulum spjöldum og það
eru margir leikmenn komnir með
þrjú spjöld í sumar.“
Það var þó þessi barátta Eyja-
manna sem reyndist þeim dýrmæt
í leiknum í gær. Eftir að Tryggvi
hafði komið ÍBV yfir strax á fjórðu
mínútu náðu heimamenn fljótlega
undirtökunum í leiknum. En þó svo
að Stjarnan var talsvert meira með
boltann gekk illa að skapa færi
fyrir framan mark Eyjamanna.
Ellert Hreinsson fékk tvö bestu
færin undir lok fyrri hálfleiks en
Albert Sævarsson sá við honum í
bæði skiptin.
Í seinni hálfleik voru Stjörnu-
menn meira með boltann en Eyja-
menn beittu skyndisóknum. Eftir
eina slíka sendi Tryggvi stungu-
sendingu inn fyrir vörn Stjörn-
unnar á varamanninn Denis Sytn-
ik sem vippaði boltanum glæsilega
yfir Bjarna Þórð í marki Stjörn-
unnar. Hann gerði þar með út um
leikinn.
„Það var ferlegt að byrja ekki
leikinn almennilega og þurfa að
elta þetta mark sem við fengum á
okkur í byrjun. Þar sváfum við ein-
faldlega á verðinum,“ sagði Bjarni
Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar.
„Mér fannst við þó spila ágæt-
lega og boltinn gekk þokkalega
manna á milli. Við vorum þó óþol-
inmóðir í sókninni og komumst
ekki nægilega oft á bak við bak-
verðina þeirra. Þegar það tókst
fengum við færi en þau sem við
fengum nýttum við alls ekki
nógu vel. Undir lokin setti ég svo
Tryggva [Bjarnason] fram í sókn-
ina til að eiga góðan skallamann
frammi en það gekk ekki. Það
vantaði einhvern neista í sóknar-
leikinn hjá okkur.“
Hann hrósaði einnig liði ÍBV
eftir leikinn „Þetta er flott lið og
afar vel skipulagt. Þeir eru klókir
og stemningin er þeirra megin.“
Enski varnarmaðurinn James
Hurst lék með ÍBV í gær en hann
er lánsmaður frá Portsmouth. Til
stóð að hann myndi snúa aftur til
Englands en félagið ákvað að leyfa
honum að spila lengur á Íslandi.
„Þetta var frábær sigur. Við
byrjuðum vel en þeir tóku fljót-
lega völdin eftir það. Það var því
frábært að ná seinna markinu og
klára leikinn,“ sagði Hurst.
„Mér líður vel á Íslandi og er
mjög ánægður að fá að vera leng-
ur hjá ÍBV. Ég hef verið að bæta
mig hér enda knattspyrnan góð á
Íslandi,“ bætti hann við.
eirikur@frettabladid.is
Fyrst og fremst góður vinnusigur
ÍBV vann í gær sinn fjórða sigur í síðustu fimm leikjum liðsins í Pepsi-deild karla og varð í gær fyrsta liðið í
sumar til að vinna Stjörnuna í Garðabænum. „Við erum bara með gott lið,“ sagði fyrirliðinn Andri Ólafsson.
ÖFLUG VÖRN Eiður Aron Sigurbjörnsson og James Hurst héldu þeim Halldóri Orra
Björnssyni og félögum í Stjörnunni í skefjum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÖGNUÐUR Eyjamenn fögnuðu sigrinum
í gær vel og innilega. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Björgvin og Þorsteinn á EM í frjálsum
Björgvin Víkingsson, FH, og Þorsteinn Ingvarsson,
HSÞ, tryggðu sér um helgina þátttökurétt á
Evrópumeistaramótinu sem fer fram í Barce-
lona síðar í mánuðinum. Þorsteinn bætti sinn
besta árangur í langstökki er hann stökk
7,79 metra á móti Gautaborg í Svíþjóð.
Það dugði Þorsteini til sigurs í mótinu.
Björgvin keppti í 400 metra grinda-
hlaupi á sterku móti í Sviss en hann
kom í mark á 51,77 sekúndum. Það er
hans næstbesti árangur í greininni frá
upphafi. Alls munu sjö Íslendingar keppa
í Barcelona.
FÓTBOLTI „Ég er hundsvekktur með að tapa
þessum leik,“ sagði Auðun Helgason, leik-
maður Grindavíkur, eftir að liðið tapaði 1-0
á KR-vellinum í gær. „Við spiluðum rosalega
vel fyrir utan fyrsta korterið. Mér fannst við
betri á öllum stöðum en við náðum ekki að
nýta okkur það.“
Eina mark leiksins skoraði Bjarni Guð-
jónsson á þrettándu mínútu. Grindvíkingar
áttu margar stórhættulegar sóknir og fengu
nokkur úrvalsfæri til að jafna metin. Grétar
Hjartarson fór illa að ráði sínu eftir einu mis-
tök markvarðar KR í leiknum og þá bjargaði
Guðmundur Reynir Gunnarsson á marklínu
eftir hornspyrnu.
„Þeir lifðu þetta af í dag. Við eigum á bratt-
ann að sækja en þetta var langbesta frammi-
staða Grindvíkinga í sumar. Ef við spilum
svona áfram þá þurfum við ekki að hafa nein-
ar áhyggjur. Við verðum bara að nýta færin,“
sagði Auðun.
Logi Ólafsson var kátur eftir leik enda sig-
urinn nauðsynlegur fyrir KR-inga sem hafa nú
náð að slíta sig frá botninum. „Við vissum að
þetta gæti orðið barningur og þetta var mjög
erfitt. Við lékum mjög erfiðan leik í Evrópu-
keppninni og gerðum okkur alveg grein fyrir
því að við vorum að mæta mjög góðu fótbolta-
liði þó að úrslitin hafi ekki verið að falla með
þeim frekar en okkur,“ sagði Logi. „Þetta var
virkilega kærkominn, erfiður og mikilvæg-
ur sigur. Grindavík er með leikmenn eins og
Grétar, Auðun, Scott Ramsey og Ondo-bræð-
urna. Þessir menn eru mjög flinkir fótbolta-
menn og eru hluti af góðu liði. Ég hef trú á því
að þeir rísi upp.“
Leikurinn í gær var opinn og skemmtileg-
ur og uppfullur af færum. Miðað við spila-
mennsku Grindavíkur stóran hluta leiksins er
í raun stórmerkilegt að liðið sé í þessari stöðu.
En fótboltinn snýst um að skora mörk og þrátt
fyrir að hafa skapað mikla hættu fóru Grind-
víkingar mjög illa með færin. KR-ingar fara
með bros á vör með þrjú stig úr þessum leik.
Markvörðurinn Lars Ivar Moldsked bjarg-
aði nokkrum sinnum vel og hefur heldur betur
fundið fjölina eftir arfadapra byrjun. Bjarni
Guðjónsson bar uppi miðjuna hjá KR-ingum
en mennirnir í kringum hann voru talsvert frá
sínu besta. - egm
Bjarni Guðjónsson tryggði KR 1-0 sigur á Grindavík í Pepsi-deild karla í gærkvöldi:
Góðir Grindvíkingar með tóma vasa
BARÁTTA Í LOFTINU Það var tekið á því í leik KR og
Grindavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Þetta var frábærlega spilaður leikur af hálfu FH því það
var bara eitt lið á vellinum allan leikinn. Við misstum
aðeins einbeitingu þegar þeir skoruðu markið en við
óðum í færum og vorum klaufar upp við mark Keflvík-
inga,” sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 1-1
jafntefli gegn Keflvíkingum í gær. FH-ingar misnotuðu
vítaspyrnu í fyrri hálfleik en heimtuðu aðra vítaspyrnu rétt
fyrir leikhlé eftir að boltinn fór í höndina á varnarmanni
Keflavík. Erlendur Eiríksson, dómari leiksins, sá ekkert
athugavert við þetta og lét leikinn halda áfram.
„Fróðir menn segja það að þetta hafi verið víti en ég
sá það ekki nógu vel. Þetta er bara partur af þessu að sjá
þegar þetta gerist.”
Heimir var mjög ánægður með sína menn eftir leikinn
í gær og segist alls ekki kvíða framhaldinu ef leikmenn
hans halda áfram að spila líkt og þeir gerðu á móti
Keflavík.
„Það sem þarf að gerast er að við þurfum að fara
að nýta færin betur og halda einbeitingunni betur,
sérstaklega í föstum leikatriðum. Ef við gerum það þá
kvíð ég ekki framhaldinu því að FH-liðið sem spilaði
í þessum leik var að mínu mati virkilega gott,”
sagði Heimir en FH-ingar verði nú að fara heim
á æfingarsvæðið og æfa sig að hitta markið
þar sem þeir fengu mörg góð
marktækifæri í leiknum án
þess þó að ná að gera sér
mat úr því.
„Miðað við hvernig leikurinn
spilaðist þá vildum við fá öll þrjú
stigin og áttum það skilið en það
er ekkert spurt að því í fótbolta. Nú
verðum við að fara og æfa okkur að skjóta á markið í
staðinn fyrir framhjá eða yfir það,” sagði Heimir.
HEIMIR GUÐJÓNSSON: ÞJÁLFARI FH ÁNÆGÐUR MEÐ SÍNA MENN ÞRÁTT FYRIR JAFNTEFLI
Það var bara eitt lið á vellinum