Fréttablaðið - 13.07.2010, Page 14
Borgartúni 24
105 Reykjavík
sími 58 58 700
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
sími 58 58 710
Hafnarborg
220 Hafnarfjörður
sími 58 58 700
Júlítilboð
Opið virka daga kl. 10—20
Laugardaga kl. 10—17
www.madurlifandi.is
Bjóddu út að borða
2 fyrir 1
af rétti dagsins
eftir kl. 16 virka daga
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
PI
PA
R\
A
R\\
A
R\
A
R\
PI
PA
RR
A
R
PI
PA
R
A
PI
PA
PI
PA
PI
PAIP
APAPPPP
P
W
A
W
A
W
A
W
A
W
A
W
A
WWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWBWBWWWWWBWWWBWBWBWBWWBBBBTBBTBTBTBTBTBT
•
AAAÍAAÍAASÍ
A
•••••
800800080800000000000808008088881011010010
8888888888888888
„Við skoðuðum hver árangurinn af
afnæmismeðferðinni væri og eins
hvort við fyndum einhverja þætti
sem segðu til um það hvort fólk
svaraði meðferðinni vel eða illa,“
segir Björn Rúnar Lúðvíksson
yfirlæknir á ónæmisfræðideild,
sem birti nýverið niðurstöður úr
fyrstu íslensku rannsókninni á
árangri afnæmismeðferðar ásamt
Davíð Gíslasyni yfirlækni, Guð-
mundi H. Jörgensen lækni, Yrsu
B. Löve lækni og Sverri Gauta
Ríkarðssyni læknanema.
„Það sem kom okkur á óvart
voru þeir þættir sem höfðu áhrif
á árangurinn af meðferðinni,“
segir Björn Rúnar og útskýrir
það: „Karlar urðu oftar einkenna-
lausir heldur en konur og ef það
var sterk ættarsaga um ofnæmi í
fjölskyldunni var fólk líklegra til
að svara meðferðinni vel. Hugs-
anlega getur það þá verið með
hreinna form af sjúkdómnum.“
Markmið afnæmismeðferðar er
að minnka áhrif ofnæmis. Að sögn
Björns Rúnars hefur afnæmis-
meðferð verið stunduð á Íslandi
frá því um miðjan áttunda áratug
síðustu aldar og er sjónum beint
að nánast öllu því tímabili í rann-
sókninni. „Við getum afnæmt gegn
flestum hlutum sem fólk andar að
sér.“
Rannsóknartímabilið náði yfir
árin 1977 til 2006. Haft var sam-
band við 169 manns vegna rann-
sóknarinnar og 76 prósent þeirra
samþykktu þátttöku en 289 manns
gengust undir meðferðina á tíma-
bilinu. Þeir svöruðu ítarlegum
spurningalista um árangurinn og
aukaverkanir og einnig var fram-
kvæmt húðpróf. Þátttakendurn-
ir í rannsókninni voru afnæmdir
gegn vallarfoxgrasi, birki, kött-
um og rykmaurum og reyndust
67 prósent verða einkennalaus
eða betri. „Við vitum að afnæm-
ing gegn frjókornum og rykmaur-
um er langáhrifaríkust. Hún virk-
ar síður gegn dýrum.“
Björn Rúnar segir fáar rann-
sóknir státa af jafn löngu rann-
sóknartímabili. „Menn hafa ekki
verið fullvissir um hversu lengi
áhrif afnæmingarinnar vara.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að
áhrifanna gætir enn eftir fimm
til tíu ár en við sýnum að tuttugu
til þrjátíu árum frá afnæmingunni
er enn þá mjög góður árangur og
jafnvel eru einkennin orðin enn
minni heldur en hjá þeim sem luku
meðferð fyrir fimm eða tíu árum,“
segir Björn Rúnar en setur þó
þann fyrirvara að almenna regl-
an sé að ofnæmiseinkenni minnki
með aldrinum.
„Engu að síður sýna niðurstöð-
ur rannsóknarinnar með óyggj-
andi hætti að meðferðin er að
skila miklum árangri,“ upplýsir
Björn Rúnar sem segir það mikil-
vægt vegna þess að 25 til 30 pró-
sent Íslendinga þjáist af einhvers
konar ofnæmi. martaf@frettabladid.is
Góð afnæmismeðferð
Niðurstöður fyrstu rannsóknarinnar á árangri afnæmismeðferðar á Íslandi hafa nú verið birtar. Niður-
stöðurnar sýna með óyggjandi hætti að afnæmismeðferð skilar miklum árangri hér á landi.
Björn Rúnar segir 25 til 30 prósent Íslendinga þjást af einhvers konar ofnæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Margir Víetnamar þjást óafvit-
andi af sykursýki og sjúkdómur-
inn breiðist hratt um Suðaustur-
Asíu.
Rannsókn ástralskra og víet-
namskra vísindamanna hefur
sýnt fram á að ellefu prósent
karlmanna og tólf prósent kvenna
í stærstu borg Víetnam, Ho Chi
Minh borg, eru óafvitandi með
sykursýki tvö. Bætist þetta við
þau fjögur prósent sem þegar hafa
verið greind. Rannsóknin var gerð
á tvö þúsund manns. Þetta kemur
fram á vef breska ríkisútvarps-
ins.
Vísindamennirnir skella skuld-
inni á breyttan lífsstíl og skyndi-
bitafæði Víetnama. „Mataræði
hefur verið að breytast gífurlega
í Víetnam á síðustu árum, sérstak-
lega í borgunum sem eru að verða
vestrænni,“ sagði Tuan Nguyen
prófessor. „Það eru skyndibita-
keðjur úti um allt.“
Mikið magn sykurs og fitu í
mataræðinu og ónóg hreyfing
getur leitt til sykursýki tvö. - mmf
Óafvitandi með sykursýki
Vísindamennirnir skella skuldinni á
breyttan lífsstíl og skyndibitafæði Víet-
nama. NORDICPHOTOS/GETTY
Margir Íslendingar þjást af frjókornaofnæmi en afnæmismeðferð getur stuðlað að
bata.
MATARÆÐI í jafnvægi er mikilvægt fyrir alla, líka græn-
metisætur. Bandarískir fræðimenn segja D-vítamín og B12
auk prótína oft vanta í mataræði grænmetisætna.