Fréttablaðið - 13.07.2010, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2010 3
Mannlegt mál er mjög
flókið kerfi tákna og
reglna en samt ná
ósjálfbjarga börn valdi
á móðurmáli sínu á
undraskömmum tíma.
Flest börn eru orðin
altalandi um 4-6 ára
aldur og hafa þá náð
valdi á málkerfinu í
meginatriðum, þó
þau eigi enn eftir að
tileinka sér einstaka
reglur málsins og öðl-
ast meiri orðaforða.
visindavefur.hi.is
GOLFNÁMSKEIÐ fyrir börn verða haldin á æfinga-
svæði Bása hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í Grafarholti í allt
sumar. Hvert námskeið er vikulangt og ýmist er kennt
fyrir eða eftir hádegi. Skráning á progolf.is.
„Þetta var langstærsta húsið á
smíðavellinum og var kallað Ráð-
húsið við Naglastræti. Okkur
fannst rosalega gaman að smíða
það,“ segir ein stúlknanna sex sem
eiga heiðurinn af tveggja hæða
stórhýsi með svölum sem varð til
á smíðavellinum við Háteigsskóla.
Þær höfðu aðgang að vellinum frá
níu til fjögur alla virka daga í þrjár
til fjórar vikur en segjast ekki allt-
af hafa verið allan daginn, þó svo
að verkefnið hafi verið áhugavert.
„Hjá okkur mátti smíða alls
konar kofa en á sumum smíða-
völlum urðu allir að gera eins,“
lýsa þær og telja fyrirkomulag-
ið hjá þeim alveg til fyrirmyndar.
En hver ákvað hvernig húsið ætti
að líta út? Jú það kemur í ljós að
tvær úr hópnum teiknuðu það upp
en á byggingartímanum breyttust
forsendur. „Við ætluðum að hafa
báðar hæðirnar jafn stórar en það
var svo lítið timbur eftir svo við
máttum bara setja þak á hálfa efri
hæðina svo við bjuggum til svalir
úr hinum helmingnum. Við erum
allar rosalega ánægðar með þær,“
segja þær.
Við hittum þær stöllur þegar
verið var að flytja húsið af smíða-
vellinum heim í garð þar sem mjög
vel er fylgst með því. Þær segj-
ast hafa lært mikið á því að vinna
svona saman. „Við tökum allar
ákvarðanir saman til að við verð-
um allar ánægðar í lokin. Stundum
greiðum við atkvæði og þá er það
meirihlutinn sem ræður. Þannig
verður það örugglega þegar við
förum að velja litina,“ segja þær.
Það stendur semsagt til að mála
slotið. „Við máttum byrja að mála
á smíðavellinum en við ákváðum
að gera það frekar heima því það
verður mikið verk,“ segja þær.
„Svo ætlum við líka að setja upp
gluggatjöld.“
Inni í húsið hafa stúlkurnar
smíðað bekk og tvær hillur, svo er
stigi upp á loft og þaðan er gengið
út á svalirnar. En hvernig ætla þær
að nota Ráðhúsið? „Við ætlum að
leika okkur þar með dótið okkar.“
„Já og fara þangað með nesti,“
segja þær.
Sjálfsagt verða haldnar þar
veislur eins og sæmir í ráðhúsi.
Snittur og fínerí! gun@frettabladid.i
Ráðhúsið reisulega sem
byggt var við Naglastræti
Margir flottir kofar urðu til í sumar á lóðinni við Háteigsskóla. Einn þeirra gnæfði þó yfir hina. Hann var
smíðaður af sex knáum stúlkum sem ætla að halda áfram að prýða bygginguna til að eiga þar afdrep.
Hér er verið að flytja Ráðhúsið af smíðavellinum heim í garð þar sem mjög vel er fylgst með því. Stúlkurnar heita Vala Magnús-
dóttir, Valdís Eik Ragnarsdóttir, Ragnheiður Íris Ólafsdóttir, Embla Þöll Einarsdóttir og Tinna Birna Björnsdóttir en á myndina
vantar Ástu Indíu Valdimarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Silkihúfur
Mjúki ferðafélaginn frá Sleep sheep kominn aftur
Þroskandi og falleg leikföng
fyrir flotta krakka.
www.krumma.is
Lífrænn gæðastimpill
Grunnur að
heilbrigðu lífi
Allir foreldrar vilja börnum sínum
aðeins það besta. Leggjum
grunninn að heilbrigði þeirra.
www.holle.is
Hræðslutakki fyrir börn er nýj-
ung á Facebook í Bretlandi.
Ungir notendur á Facebook í Bret-
landi geta nú tilkynnt áreiti á sam-
skiptasíðunni til barnaverndar-
stofu. Lögregluyfirvöld og ýmsir
stuðningshópar barna í Englandi,
Skotlandi og Wales hafa barist
fyrir hræðslutakka í nokkra mán-
uði þar sem börn verða færð á síðu
þar sem hægt verður að tilkynna
misnotkunina. - mmf
Geta tilkynnt áreiti strax
Ungir notendur á Facebook í Bretlandi geta nú tilkynnt áreiti strax með því að ýta á
hræðslutakkann. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES