Póst- og símatíðindi - 01.12.1977, Blaðsíða 18
4. gr.
Forseti íslands skipar póst- og símamálastjóra, sem veitir póst- og símamála-
stofnun forstöðu.
Samgönguráðherra skipar annað starfsfólk stofnunarinnar, að fengnum tillögum
póst- og símamálastjóra og starfsmannaráðs póst- og símamálastofnunar, sbr. 10. gr.
Ráðherra getur þó falið póst- og símamálastjóra að auglýsa lausar stöður og ganga
frá skipunarbréfum í stöður hjá póst- og símamálastofnun.
5. gr.
Starfsemi pósL- og símamálastofnunar greinist í meginatriðum í stjórnunarhluta
stofnunarinnar og rekstrarhluta.
Stjórnunarhluti stofnunarinnar skiptist í fjórar aðaldeildir, fjármáladeild, tækni-
deild, umsýsludeild og viðskiptadeild.
Rekstrarhluti stofnunarinnar skiptist í fjögur póst- og símaumdæmi.
Hverri aðaldeild stjórnar framkvæmdastjóri, en umdæmisstjóri hverju umdæmi-
Framkvæmdastjórar og umdæmisstjórar heyra beint undir póst- og símamálastjóra.
6. gr.
Aðaldeildir vinna að stefnumörkun í störfum stofnunarinnar, áætlanagerð, eftir-
liti, almennum fyrirmælum og öðrum heildarstefnumálum, sem varða stofnunina.
Helstu verkefni hverrar aðaldeildar eru m. a. sem rér segir:
1. Fjármáladeild: fjárhagsáætlanir stofnunarinnar, þ. m. t. allar almennar áætl-
anir vegna rekstrar og framkvæmda, reikningshald stofnunarinnar og aðalhókhald,
fjárreiður og gerð greiðsluáætlana, endurskoðun undir yfirumsjón ríkisendurskoð-
unar, rekstraryfirlit, hagkvæmnisútreikningar, innkaup, aðalbirgðavarsla og gjald-
skrármál.
2. Tæknideild: læknileg áætlanagerð varðandi sima og önnur fjarskiptamál,
uppsetning á sjálfvirkum stöðvum, sambandabúnaður, radíósambönd stofnunarinnar,
radíóeftirlit, tíðnieftirlit, fjölþjóðasamskipti um síma- og fjarskiptamál.
3. Umsýsludeild: skipulags- og hagræðingarmál, starfsmannamál, fræðslumál
stofnunarinnar, bygging og umsýsla fasteigna og almenn þjónustumál innan stofn-
unar, skipulag skjalasafna og umsjón mötuneyta.
4. Viðskiptadeild: mál sem lúta að þjónustu stofnunarinnar við notendur al-
mennt, bæði að því er varðar póstmál og símamál, skipulag póst- og símaþjónustu,
póstþjónustu og póstdreifingar, póstgíró, umferðarmáladeild, frímerkjaútgáfa og
varsla, símaskrá, almannatengsl og upplýsingaþjónusta, útgáfa reglna og fyrirmæla
um framkvæmd póst- og símaþjónustu og eftirlit með þvi, að þeim sé fylgt, kvart-
anir og skaðabótamál. Nánar skal kveðið á um starfsemi aðaldeilda í reglugerð,
sem ráðherra setur.
7. gr.
Póst- og simaumdæmin skulu annast allan rekstur stofnunarinnar hvert á sínu
svæði.
Umdæmi I nær af Skeiðarársandi í Gilsfjarðarbotn, umdæmi II þaðan að mörk-
mn Strandasýslu og Vestur-Húnavatnssýslu, umdæmi III þaðan að rnörkum Norður-
Þingeyjarsýslu og Norður-Múlasýslu, umdæmi IV þaðan á Skeiðarársand.
Umdæmisstjórar hafa hver i sinu umdæmi yfirstjórn og eftirlit með rekstri
póst- og símastöðva, verkstæða, birgðastöðva og öðrum rekstri á vegum póst- og
símamálastofnunar i umdæminu, í samræmi við rekstraráætlanir og önnur þau
fyrirmæli, er gilda um rekstur stofnunarinnar. Umdæmisstjóri skal hafa eftirlit
með fjárreiðum og birgðum hjá póst- og símaslöðvum og öðrum þeim, sem fara