Póst- og símatíðindi - 01.12.1977, Blaðsíða 19
19
nieð fjárreiður eða eignir stofnunarinnar í umdæminu. Hann skal eiga frumkvæði
að tillögugerð um framkvæmdir stofnunarinnar og bættan rekstur.
Nánar skal kveðið á um starfssvið og skyldur umdæmisstjóra og starfsskipt-
ingu innan umdæmisins í reglugerð, sem ráðherra setur.
8. gr.
Pósl- og símamálastjóri skal eigi sjaldnar en ársfjórðungslega kalla saman fund
með framkvæmdastjórum aðaldeilda og umdæmisstjórum stofnunarinnar. Á þeim
fundum skal póst- og símamálastjóri leggja fram rekstrar- og framkvæmdaáætlanir,
sbr. 9. gr., til umræðu, ásamt öðrum þeim málum, sem á dagskrá eru hverju sinni,
og skulu þar rædd meginstefnumál og verkefni stofnunarinnar. Ár hvert skal a. m. k.
einn þessara funda vera sameiginlegur með starfsmannaráði póst- og símamála-
stofnunar, sbr. 10. gr.
9. gr.
Póst- og símamálastjóri lætur gera, til fjögurra ára í senn, áætlun um fram-
kvæmdir stofnunarinnar. Skal áætlunin taka mið af 1. mgr. 3. gr. laga þessara,
byggja á raunhæfum fjárhagsforsendum og skal framkvæmdum raðað eftir for-
gangsröð.
Áætlun þessa skal endursltoða árlega, þannig að ávallt liggi fyrir áætlun til
fjögurra ára.
Áætlunin skal greina markmið stofnunarinnar á einstökum þjónustusviðum og
hafa að geyma yfirlit um æslcilegar þjónustubreytingar á áætlunartimanum. Þá
skal áætlunin innihalda rekstraráætlun í meginatriðum og fjármögnunaráætlun fyrir
sama timabil.
Póst- og símamálastofnun skal senda samgönguráðuneytinu framkvæmdaáætl-
unina eigi síðar en 31. maí á undan fyrsta ári áætlunartímabilsins. Samgönguráð-
herra leggur framkvæmdaáætlunina fyrir Alþingi og skal hún höfð til hliðsjónar
við afgreiðslu fjárlaga. Endurskoðaða áætlunin skal lögð fyrir Alþingi á sama hált,
en árleg töluleg endurreiknun skal fylgja fjárlagatillögum stofnunarinnar.
10. gr.
Komið skal á fót starfsmannaráði póst- og símamálastofnunar, skipuðu full-
trúum samtaka starfsmanna stofnunarinnar og forstöðumönnum liltekinna þátta i
stofnuninni.
Ráðherra setur reglur mn skipan og síarfssvið starfsmannaráðs, þar sem leitast
skal við að tryggja gotl samstarf og samheldni milli starfsfólksins og stjórnenda
stofnunarinnar.
11. gr.
Ráðherra ákveður í gjaldskrá gjöld þau, sem greiða ber póst- og símamála-
stofnun fyrir þjónustu þá, sem hún veitir, þ. á m. fyrir póstgiró og uppsetningu,
leigu og viðhald hvers konar f jarskiptatækja.
Stefnt verði að því við gjaldskrárgerð, að sömu gjöld gildi innan livers svæðis-
númers, og skal ákveðið í reglugerð, hvenær framkvæmd þessa ákvæðis kemst á.
Ráðherra er heimilt að ákveða, að sama gjald skuli krafið fyrir símtal við
helstu stjórnsýslustofnanir ríkisins i Reykjavík, hvaðan sem talað er af landinu.
Að því skal stefnt, að tekjur samkvæmt gjaldskrá nægi til að rekstrarjöfnuður
náist, miðað við að rekstur og fjárfestingar fari eftir meginstefnu 1. mgr. 3. gr. og
fyllsta aðhalds sé gætt.