Kylfingur - 01.08.1937, Blaðsíða 3
vfi éolmmm mm
2SÍKYLFIHGUR
♦ ♦•♦♦♦*♦«...♦♦.*•»***• VVVVVV,'•**** \**s\*****»*\**»**»**»**s\**s\**s*s*s*»*\**s*s\**»**s
3. ár Reykjavík, Ágúst 1937 2. hefti
Nýja landið.
í áfangastöðuvi vér óskum þess bezt,
að enginn sé hesturinn meiddur;
og eins fari vel um hvern einasta gest,
sem inn fyrir tjaldskör er leiddur. —
Að baki er gatan svo bugðótt og þröng,
og brautinni nýju vér heilsum með söng.
Vér ryðjum og brjótum og ræktum það land,
sem Reykjavík hefur að bjóða.
Um móðurfold hnýtum vér mátulegt band,
úr menningu annara þjóða,
til uppfyldar því, sem um aldanna hjól,
var íslenzku þjóðlífi frjómagn og skjól.
Og klúbburinn okkar hann klöngrast á legg
og klettunum ryður úr vegi,
og ætlar þeim stað í þeim umbótavegg,
sem enn er á rísanda degi.
Því leikur sem göfgar mun létta hvert starf,
þar leggjum vér niðjunum milljóna arf.
V.