Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Mánudagur
skoðun 12
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Fasteignir.is
21. febrúar 2011
42. tölublað 11. árgangur
ÉG ER OG BRAGÐGÓÐ
JÓGÚRT SEM KEMUR Á ÓVART
Kauptu mig!
21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
IkeaHackers.net er vefsíða sem sýnir hvernig endurnýta og breyta megi klassískum IKEA húsgögnum. Á síðunni má sjá myndir sem fólk alls staðar að sendir inn.
Þórdís Þorleifsdóttir býr til kerti með áprentuðum myndum sem rjúka út eins og heitar lummurKertin sem spurðust út Þ etta gerðist eiginlega bara óvart. Ég bjó til nokkur kerti fyrir sjálfa mig fyrir jólin sem ég skreytti í jólaþema. Vinkonur mínar voru hrifnar af þessu svo ég bjó til nokkur handa þeim og svo fóru vinkonur vinkvenna minna að fá áhuga og þannig gekk þetta koll af kolli,“ segir Þórdís Þorleifsdóttir sminka sem vakið hefur mikla athygli fyrir kerti sem hún prentar helgi-myndir á og selur á facebook-síðu sinni my stuff-þórdís þorleifs.„Fram undan eru fermingar þannig að ég er aðeins farin á stúfana með að útbúa kerti sem passa í það þema, margir eru að leita að ein-hverju skemmtilegu og öðruvísi skrauti á ferm-ingarborðið. Sjálfri finnst mér mikil ró fylgja kertunum og þau verða að hálfgerðri lukt þegar þau brenna niður og pappírinn stendur eftir.“
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐANMEIRI SKEMMTUNMeiri Vísir.
FASTEIGNIR.IS
21. FEBRÚAR 2011
8. TBL.
Fasteignamarkaðurinn ehf.
er með í sölu einbýlishús á
tveimur hæðum auk 50 fer-
metra bílskúrs að Brúnastekk.
Tveggja herbergja aukaíbúð er
í kjallara hússins með leigu-
tekjur.
Húsið er mikið endurnýjað og í
góðu ástandi.Húsið stendur innst
í botnlanga í Elliðaárdalnum með
óbyggt svæði á tvo vegu. Fallegar
gönguleiðir í kring og stutt í alla
þjónustu. Ræktuð lóð með hellu-
lögðum veröndum og skjólveggjum
í kring.
Á efri hæð er gengið inn í flísa-
lagða forstofu. Hol er einnig flísa-
lagt og með nýjum fataskápum
og endurnýjuðu gestasalerni með
glugga. Eldhúsið er flísalagt með
hvítum innréttingum og góðri borð-
aðstöðu. Inn af eldhúsinu er flísa-
lögð forstofa með útgangi út á lóð-
ina og inn af forstofunni er búr með
glugga. Sjónvarpshol er flísalagt og
þaðan er útgangur út á verönd. Tvö
barnaherbergi með parketi á gólfi
eru á hæðinni og stórt parketlagt
hjónaherbergi með fataskápum.
Baðherbergi er endurnýjað, flísa-
lagt með sturtuklefa og stóru bað-
kari. Innfelld lýsing í loftum og
veggjum.
Í kjallara hússins er sjónvarps-
hol með parketi á gólfi, tvær stór-
ar geymslur og tómstundaher-
bergi m ð f b ði i
flísalagt baðherbergi með sturtu-
klefa og flísalagt þvottaherbergi.
Í kjallara er einnig tveggja her-
bergja íbúð með sér inngangi. Hún
skiptist í forstofu, stofu og eldhús,
herbergi, baðherbergi, geymslu og
þvottaherbergi. Tvöfaldur bílskúr
með rafmagni, hita og rennandi
Aukaíbúð í kjallaraFASTEIGNA-MARKAÐURINN
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Höfum til sölu um
400 fm. einbýlishús
á sjávarlóð á
Arnarnesi
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali,
einungis á skrifstofu
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
GENGIÐ AF FUNDINUM Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, gekk með bros á vör af blaðamannafundi á Bessastöðum í gær eftir að hann tilkynnti að hann myndi ekki
undirrita Icesave-lögin heldur leggja þau í dóm þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ICESAVE Þjóðaratkvæðagreiðslan
um Icesave-samninginn snýst um
hvort Íslendingar vilja semja um
málið eða fara dómstólaleiðina.
Litlar líkur eru á því að sest verði
aftur að samningaborðinu. Þetta
er mat Lárusar Blöndal, hæsta-
réttarlögmanns og fulltrúa stjórn-
arandstöðunnar í samninganefnd
Íslands um Icesave. Undir orð
Lárusar taka forsætisráðherra,
utanríkisráðherra og fjármálaráð-
herra. Algjör óvissa ríkir á ný um
Icesave-samkomulagið.
Líklegt þykir að Bretar og Hol-
lendingar höfði mál verði Icesave-
samningurinn ekki samþykkt-
ur í þjóðaratkvæðagreiðslunni
að mati Stefáns Más Stefánsson-
ar lagaprófessors. Ekki er víst að
niðurstaða dómstóla yrði Íslend-
ingum hagstæðari en núverandi
samningur.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, synjaði lögum um
Icesave-samninginn staðfesting-
ar í gær. Hann rökstuddi ákvörð-
un sína með því að stuðningur við
þjóðaratkvæðagreiðslu hefði verið
töluverður á Alþingi, tæplega 40
þúsund undirskriftum hefði verið
safnað þar sem forsetinn var
hvattur til að synja lögunum stað-
festingar og að skoðanakannanir
hefðu bent til að meirihluti þjóð-
arinnar vildi koma að afgreiðslu
málsins.
„Þetta mál er á margan hátt erf-
itt og þetta hefur ekki verið ein-
föld ákvörðun,“ sagði forsetinn í
yfirlýsingu sinni.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra og Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra voru
bæði undrandi á ákvörðun for-
setans. Jóhanna segist óttast að
með henni hafi forsetinn tekið
verulega áhættu og að ekki verði
lengra komist í samningaviðræð-
um. Hún lýsir yfir áhyggjum af
afleiðingum ákvörðunarinnar.
„Verði samningurinn felldur
gæti það valdið seinkun á afnámi
gjaldeyrishaftanna og komið í veg
fyrir erlenda fjárfestingu, eins og
í Búðarhálsvirkjun, þar sem beðið
Kosið um samning eða dómstóla
Forseti Íslands beitti synjunarvaldi sínu í þriðja sinn í gær og vísaði nýjasta Icesave-samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnin
undrast ákvörðun forsetans. Kosið um samningaleið eða dómstólaleið. Óvíst að dómstólaleiðin skili betri niðurstöðu fyrir þjóðina.
KR og Keflavík unnu
Úrslit í bikarkeppnum karla
og kvenna fóru fram um
helgina.
sport 24 & 26
Á fljúgandi siglingu
Siglingafélagið Brokey
fagnar fjörutíu árum.
tímamót 16
hefur verið eftir lausn Icesave-
deilunnar. Þetta getur því haft
áhrif á efnahagsmálin hér,“ sagði
Jóhanna.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra tók í sama streng
og forsætisráðherra.
„Hér hefur verið þingræði og á
mann leita ýmsar stríðar hugsanir
þegar þetta gerist eftir að Alþingi
samþykkir lög með meira en
tveimur þriðju greiddra atkvæða,“
segir Steingrímur.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, fagnar því að
málið sé komið til þjóðarinnar en
hefði þó viljað að ákvörðunin hefði
verið tekin á Alþingi. Bjarni stend-
ur fyllilega við stuðning sinn við
Icesave-samninginn og segir að
hann muni gera það áfram, sama
hvernig málin þróast.
Sigurður Líndal lagaprófessor
segir ekkert athugavert við það
að forsetinn hafi vísað málinu
til þjóðarinnar. Kveðið sé á um
þjóðaratkvæðagreiðslu á þremur
stöðum í stjórnarskrá Íslands
og forsetinn hafi lagt fram rök
fyrir máli sínu. Hvort menn séu
sammála þeim eða ekki sé annað
mál.
Bloomberg-fréttastofan hefur
eftir talsmanni hollenska fjár-
málaráðuneytisins að samninga-
viðræðunum um Icesave sé lokið,
samningur sé á borðinu. Þá var
haft eftir starfsmanni breska
fjármálaráðuneytisins að þar á
bæ biðu menn frekari skýringa á
stöðunni á Íslandi.
- sv, þeb, mþl, kh / sjá síður 4, 6 og 8
STJÓRNMÁL Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráð-
herra segir einboðið að
skoða eigi hvort æskilegt
sé að halda endurtekna
kosningu til stjórnlaga-
þings samhliða kosning-
unni um Icesave.
Hvorki Bjarni Bene-
d i k tsson , for maður
Sjálfstæðisflokksins, né
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, voru tilbúnir til
að taka afstöðu til málsins í gær.
Sigmundur Davíð sagði þó hættu
á því að ólík mál flæktust saman
yrði kosið samhliða um
fleira en eitt mál.
Þór Saari, þingmaður
Hreyfingarinnar, segir
eðlilegt að málið sé skoð-
að.
Nefnd skipuð þing-
mönnum úr öllum flokk-
um er nú að störfum
við að skoða hvern-
ig bregðast skuli við
ógildingu Hæstarétt-
ar á stjórnlagaþings-
kosn i nga r na r. Stjór nvöld
hafa gefið í skyn að líklegasta
niðurstaðan sé sú að endurtaka
einfaldlega kosninguna. - mþl
Jóhanna Sigurðardóttir um þjóðaratkvæðagreiðsluna:
Mögulega kosið sam-
hliða til stjórnlagaþings
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Grundvallaratriðið
sem hlýtur að ráða
niðurstöðu forseta [...] er að
þjóðin fór með löggjafarvald í
Icesave-málinu og ekki hefur
tekist að skapa víðtæka sátt
um að Alþingi ráði nú eitt
niðurstöðu málsins.
ÚR YFIRLÝSINGU FORSETA ÍSLANDS