Fréttablaðið - 21.02.2011, Page 10
10 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR
SVEIFLAR ELDI Í Seúl, höfuðborg
Suður-Kóreu, sveiflaði þessi drengur
eldi í hringi í tilefni af ári kanínunnar.
Fyrsta fulla tungl ársins var í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
Undir aldri á skemmtistað
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lokaði skemmtistað við Grensásveg í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Þar
inni voru börn undir aldri, allt niður
í 16 ára unglinga. Um 250 manns
voru inni á staðnum þegar honum var
lokað, fæstir þeirra höfðu áfengis-
kaupaaldur.
LÖGREGLUMÁL
SIGLINGAMÁL Hafist var handa í
gær við að afferma Goðafoss sem
strandaði í Oslóarfirði á fimmtu-
dag. Í gærmorgun var byrjað á
því að flytja tvo gáma frá borði
sem voru fullir af sprengiefni, en
í gærkvöldi var búið að flytja um
20 gáma í allt. Um 200 gámar voru
í fyrstu á dekki skipsins. Talið er
að það gæti tekið nokkrar vikur að
tæma Goðafoss.
Goðafoss verður dreginn af
strandstað þegar búið verður að
dæla olíunni úr skipinu og tæma
gámana. Stærra gámaskip kemur
inn fjörðinn í dag en það getur
flutt fleiri gáma heldur en það
skip sem flutti úr skipinu í gær.
Norska náttúruverndarstofnunin
gerði rannsóknir á um 1.600 fugl-
um í firðinum, þar sem í ljós kom
að um 50 af þeim höfðu komist í
samband við olíu úr skipinu, að því
er fram kemur á vef Aftenposten.
Mikill ís er þar sem Goðafoss
strandaði og hindrar það olíuna
sem lekur úr skipinu að ná í land.
Hún þykknar einnig í kuldanum,
sem gerir vinnu við hreinsun auð-
veldari. En kalt veður gerir það
líka að verkum að fuglarnir þola
síður snertingu við olíuna.
Ólafur William Hand, upp-
lýsingafulltrúi Eimskips, segir
að búið sé að ná um 40 tonnum
af olíu úr sjónum, og ómögulegt
sé að segja til um heildarmagn
fyrr en búið er að tæma skipið
að fullu. Þó sé tjón af völdum olí-
unnar mun minna en stjórnendur
fyrirtækisins þorðu að vona.
Norskir fjölmiðlar greindu
frá því í gær að til stæði að gera
breytingar á ströndinni til þess
að reyna að koma í veg fyrir að
óhöpp af þessu tagi gerist aftur.
Þá verður sprengt grjót undir
sjónum á nokkrum stöðum til að
auka dýpið og breikka siglinga-
leiðina.
Forstjóri Eimskips, Gylfi Sigfús-
son, bað Norðmenn afsökunar á
strandi skipsins á blaðamanna-
fundi í Noregi í gær. Skipstjóri
Goðafoss misreiknaði siglinga-
stefnu, sem varð til þess að skipið
festist í firðinum. Skipstjórinn
hefur siglt þennan fjörð í 25 ár.
Ekki verður hafist handa við
að meta fjárhagslegt tjón af völd-
um strandsins fyrr en búið er að
tæma það, flytja og bjarga því sem
bjargað verður. Það getur tekið
nokkra mánuði. sunna@frettabladid.is
Byrjað að afferma Goðafoss
Vel gengur að afferma Goðafoss sem er enn fastur í Oslóarfirði við Noreg. Forstjóri Eimskips hefur beðið
Norðmenn afsökunar á strandinu. Til stendur að gera breytingar á firðinum til að koma í veg fyrir slys.
STRANDAÐ VIÐ NOREG Goðafoss hefur setið fastur í Oslóarfirði síðan á fimmtudag.
Ekki er vitað hvenær hafist verður handa við að draga skipið í burtu.
NORDICPHOTOS/AFP