Fréttablaðið - 21.02.2011, Síða 10

Fréttablaðið - 21.02.2011, Síða 10
10 21. febrúar 2011 MÁNUDAGUR SVEIFLAR ELDI Í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, sveiflaði þessi drengur eldi í hringi í tilefni af ári kanínunnar. Fyrsta fulla tungl ársins var í gær. NORDICPHOTOS/AFP Undir aldri á skemmtistað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað við Grensásveg í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Þar inni voru börn undir aldri, allt niður í 16 ára unglinga. Um 250 manns voru inni á staðnum þegar honum var lokað, fæstir þeirra höfðu áfengis- kaupaaldur. LÖGREGLUMÁL SIGLINGAMÁL Hafist var handa í gær við að afferma Goðafoss sem strandaði í Oslóarfirði á fimmtu- dag. Í gærmorgun var byrjað á því að flytja tvo gáma frá borði sem voru fullir af sprengiefni, en í gærkvöldi var búið að flytja um 20 gáma í allt. Um 200 gámar voru í fyrstu á dekki skipsins. Talið er að það gæti tekið nokkrar vikur að tæma Goðafoss. Goðafoss verður dreginn af strandstað þegar búið verður að dæla olíunni úr skipinu og tæma gámana. Stærra gámaskip kemur inn fjörðinn í dag en það getur flutt fleiri gáma heldur en það skip sem flutti úr skipinu í gær. Norska náttúruverndarstofnunin gerði rannsóknir á um 1.600 fugl- um í firðinum, þar sem í ljós kom að um 50 af þeim höfðu komist í samband við olíu úr skipinu, að því er fram kemur á vef Aftenposten. Mikill ís er þar sem Goðafoss strandaði og hindrar það olíuna sem lekur úr skipinu að ná í land. Hún þykknar einnig í kuldanum, sem gerir vinnu við hreinsun auð- veldari. En kalt veður gerir það líka að verkum að fuglarnir þola síður snertingu við olíuna. Ólafur William Hand, upp- lýsingafulltrúi Eimskips, segir að búið sé að ná um 40 tonnum af olíu úr sjónum, og ómögulegt sé að segja til um heildarmagn fyrr en búið er að tæma skipið að fullu. Þó sé tjón af völdum olí- unnar mun minna en stjórnendur fyrirtækisins þorðu að vona. Norskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að til stæði að gera breytingar á ströndinni til þess að reyna að koma í veg fyrir að óhöpp af þessu tagi gerist aftur. Þá verður sprengt grjót undir sjónum á nokkrum stöðum til að auka dýpið og breikka siglinga- leiðina. Forstjóri Eimskips, Gylfi Sigfús- son, bað Norðmenn afsökunar á strandi skipsins á blaðamanna- fundi í Noregi í gær. Skipstjóri Goðafoss misreiknaði siglinga- stefnu, sem varð til þess að skipið festist í firðinum. Skipstjórinn hefur siglt þennan fjörð í 25 ár. Ekki verður hafist handa við að meta fjárhagslegt tjón af völd- um strandsins fyrr en búið er að tæma það, flytja og bjarga því sem bjargað verður. Það getur tekið nokkra mánuði. sunna@frettabladid.is Byrjað að afferma Goðafoss Vel gengur að afferma Goðafoss sem er enn fastur í Oslóarfirði við Noreg. Forstjóri Eimskips hefur beðið Norðmenn afsökunar á strandinu. Til stendur að gera breytingar á firðinum til að koma í veg fyrir slys. STRANDAÐ VIÐ NOREG Goðafoss hefur setið fastur í Oslóarfirði síðan á fimmtudag. Ekki er vitað hvenær hafist verður handa við að draga skipið í burtu. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.