Fréttablaðið - 21.02.2011, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 21. febrúar 2011 13
AF NETINU
Málstaðurinn er „Ég”
Ég tilheyri þjóð Ólafs Ragnars. Nú
hafa tugir þúsunda þjóðarinnar
ákallað Ólaf í þeirri bæn að hann
stöðvi gildistöku nýrra Icesavelaga.
Við eigum ekki að borga fyrir mis-
heppnað peningabrall einkafyrir-
tækis er sagt. Samt hefur enginn
þessara mótmælenda fundið neitt
því til foráttu að almenningur borgi
upp í topp íslenskum viðskipta-
vinum Landsbankans, sem sumir
voru blekktir og sumir blindaðir af
græðgi. Nei, málið er að við eigum
ekki að borga fyrir svik okkar
manna gagnvart útlendingum,
þó við bætum að sjálfsögðu svik
sömu manna gagnvart okkar fólki
upp í topp. Málstaðurinn er „Ég”.
Icesave var svikamylla. Tombóla
bíræfinna stráka sem ekki hikuðu
að taka við peningum venjulegs
fólk og góðgerðafyrirtækja til eigin
brúks og vissu að þeir gætu ekki
staðið við sín orð. Þeir söfnuðu
peningum frá gömlu fólki fyrir mál-
staðinn „Ég”. Um það er aldrei rætt
á Íslandi hvaða afleiðingar svona
framferði eigi að hafa. Nú safna
Íslendingar undirskriftum fyrir
sama málstað, „Ég”, „Við Íslend-
ingar”. Ólíklegustu menn koma í
bljúgri bæn til Bessastaða knúðir
af hinum mikla málstað. Þessu til
undirbúnings kom Ólafur Ragnar
fram í sjónvarpinu. Vinalaus
spinnur forsetinn að vana vef eigin
mannkosta og málar með orðum
myndir af mikilfenglegri þjóð, sem
stundar viðskipti eins og þeir bestu
í heiminum og býr að sterkari
lýðræðishefð en nokkrir aðrir. Mér
líður illa að horfa á þetta.
[...] Þjóð sem gerir það að lífskalli
sínu að afneita kröfum án þess
að íhuga málið frá annarri hlið en
eigin buddu og fyllist í raun stolti
yfir bíræfnum strákum sem svíkja
fé af saklausum vegfarendum
hefur sjálf dæmt sig til útlegðar í
eigin landi, eigin glæpanýlendu.
Ekkert efnahagshrun gerir landið
jafn óbyggilegt og siðferði Ég-mál-
staðarins getur gert.
hjabeck.blogspot.com
Hans Jakob Beck
Í krafti fjöldans getum við allt
Og þá er maður sem sagt kominn með löggjafarvald.
Áfram hefur maður samt
þessa óþægilegu tilfinningu um
að vera á fleygiferð í einhverja
átt á stjórnlausum farkosti. Ef
við beygjum til hægri bíður
hengiflugið. Nei annars, ef við
beygjum til hægri finnum við
aftur veginn.
Eða var það vinstri?
Við sjáum ekkert út um
gluggann.
Spunaverkið Ísland
Áfram hefur maður þessa
óþægilegu tilfinningu um að
Ísland sé spunnið áfram með
dyntum og klækjum. Áfram
heldur Ólafur Ragnar Gríms-
son að spinna áfram stjórnskip-
un landsins eftir því sem honum
virðist hverju sinni að þetta eigi
að vera. Það er kannski gaman –
engin lognmolla – en samt pínu-
lítið óþægileg þessi nagandi til-
finning um að fulltrúalýðræðið
– þingræðið sem við höfum haft
hér – sé í hættu.
Fulltrúalýðræði höfum við
nefnilega meðal annars til þess
að hægt sé að taka ákvarðanir
sem við viljum sjálf ekki bein-
línis taka en vitum að þarf að
taka.
Þegar forsetinn var spurður
út í það á Bessastöðum í gær
hvernig hann réttlætti það að
synja staðfestingar lögum sem
sjötíu prósent þingmanna höfðu
samþykkt – höfðu á bak við sig
eindreginn þingvilja – þá svar-
aði hann með því að vísa til vilja
minnihluta þingsins í öðru máli,
sem var hvort vísa ætti málinu
til þjóðaratkvæðis. Það svar var
einkennilega út í hött.
Forsetinn gat þess hins vegar
að í þessu tiltekna máli hefði
verið virkjað „tvískipt löggjaf-
arvald“ sem maður hefur aldrei
heyrt um áður. Þjóðin kaus um
allt annan samning sama máls,
og ekki hefur verið kosið nýtt
þing síðan, og þar með segir
forsetinn löggjafarvaldið vera
orðið tvískipt.
Jamm. Þá er bara að reyna að
rýna út um gluggann og mynda
sér skoðun á því hvorum megin
vegurinn sé – og hvorum megin
hengiflugið.
Gluggabréfið ógurlega
Icesave-málið snýst um ábyrgð.
Og væri auðveldara viðfangs ef
þjóðin skynjaði að sjálfir hinir
gömlu eigendur Landsbankans
fengju að axla sína ábyrgð á
þessu máli.
En málið snýst samt líka um
ábyrgð þjóðarbúsins á því að
hafa látið undir höfuð leggjast
að koma á fót nægilega sterkum
innistæðutryggingasjóði til að
inna af hendi þá lágmarkstrygg-
ingargreiðslu sem bar að gera
við fall banka samkvæmt samn-
ingum undirrituðum af fulltrú-
um okkar. Það snýst líka um
það að standa við skuldbinding-
ar sem viðurkenndar hafa verið
af fulltrúum Íslendinga frá tíð
ríkisstjórnar Geirs Haarde.
Það snýst líka um áreiðanleika
í alþjóðlegum samskiptum. Og
það snýst kannski ekki síst um
hugsanlegar afleiðingar þess að
þjóðin hafni þessum samning-
um – hvort þá blasir við hengi-
flugið: að íslenska þjóðarbúið
verði dæmt til að borga allar
innistæður Icesave-samning-
anna, ekki bara lágmarkið. Og
þá erum við farin að tala um
alvöru upphæðir.
Þjóðarbúið er eins og heimili
og Icesave er eins og ískyggi-
legt gluggabréf. Við vitum að
það er bara hægt að gera tvennt
við gluggabréf: að borga eða
fara og reyna að semja. Það er
ekki hægt að halda atkvæða-
greiðslu um það í fjölskyldunni
að láta það hverfa …
Um hríð höfðum við foreldra
sem voru ansi hressir. Þeir
gáfu nokkrum af strákunum
úr barnahópnum eignir fjöl-
skyldunnar og sögðu: Þið hérna
eigið fiskinn í sjónum, og þið
hérna eigið þennan banka og þú
– Bjöggi minn – mátt eiga þenn-
an banka, við vitum að þegar þið
eigið þetta sjálfir munið þið fara
miklu betur með eignina en ef
allir ættu þetta saman, það væri
bara fé án hirðis.
Strákarnir sem fengu gefins
eignir fjölskyldunnar veðsettu
þær aftur og aftur. Til varð ein-
hver óraunveruleiki. Sumir voru
afar hrifnir og fóru jafnvel í
nálægar sóknir til að halda þar
ræður um það hvernig strák-
arnir okkar bæru af öðrum.
Við fylgdumst með þessu, hin
börnin, það voru oft veislur,
sum okkar tóku þátt, önnur
ekki, sum fengu sér pallbíla og
gljájeppa, önnur ekki.
Þetta var óraunveruleiki og
svo kom veruleikinn og þeir
beint á hausinn. Þá kom á dag-
inn að þeir höfðu tekið stór-
kostleg lán í nafni heimilisins
og heimilið var í ábyrgð. Og
það var enginn óraunveruleiki.
Var þá allt okkur að kenna?
Nei. Var allt á okkar ábyrgð og
ekki annarra? Nei. Var þetta
kannski ekkert okkar mál? Jú,
því miður; þetta var ekki síst
okkar mál.
En sem sagt. nú er maður
kominn með löggjafarvald.
Mér finnst að við ættum að fá
öll kaup fyrir það. Nógu mikil
byrði er það. Þegar maður
hefur einu sinni sannfært sig
um að hann eigi ekki að borga
eitthvað er erfitt að sannfæra
hann um annað. Nema hann viti
að hengiflugið bíður ef hann
beygir í vitlausa átt.
Hengiflugið eða vegurinn
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Áfram hefur maður þessa óþægilegu til-
finningu um að Ísland sé spunnið áfram
með dyntum og klækjum.
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
MEIRI
GLAMÚR
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta vinninga í
hverri viku.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!