Fréttablaðið - 21.02.2011, Side 18
Þjóðverjinn Thomas Schnur fékk innblástur frá
hinum einfalda en fræga plaststól „Monoblock”
þegar hann hannaði þetta húsgagn sem er sam-
bland af stól og bekk. www.thomasschnur.com
Félag trérennismiða á
Íslandi opnaði sýn-
ingu í Listasafni Erlings
Jónssonar í Grófinni í
Reykjanesbæ á laug-
ar daginn var. Sýningin
stendur til 27. febrú-
ar og er lifandi að því
leyti að rennibekkur
verður þar allan
tímann í gangi.
Heimild: www.
trerennismidid.is
„Leiktækin eru byggð á flæðinu í náttúrunni, skrið-
jöklum, vatni og rennandi hrauni, öllu sem hefur
áhrif á mótun náttúrunnar,“ útskýrir Dóra Birna
Sigurjónsdóttir, markaðsstjóri Krumma.
„Það er alltaf freistandi að klifra í hrauni en
það er ekki öruggt. Nú hefur okkur tekist að gera
hraun bæði öruggt og skemmtilegt en leiktæk-
in hafa áferð hrauns og eru jafn spennandi en for-
eldrarnir geta verið rólegir,“ segir Dóra og tekur
fram að öll leiktæki Krumma séu öryggisvottuð af
Dansk Technologisk Institute með tilliti til evrópsks
öryggisstaðals EN1176.
Leiktækin eru ætluð börnum frá sex ára aldri og
upp úr. Aðalhönnuðir að baki línunnar eru Jenný
Ruth Hrafnsdóttir, verkfræðingur og framkvæmda-
stjóri Krumma ehf., og Hrafn Ingimundarson, véla-
verkfræðingur og eigandi fyrirtækisins. Leik-
tækin eru ætluð á opin svæði svo sem tjaldstæði,
almenningsgarða og skólalóðir. Þau eru framleidd
af Krumma en formin eru fræst út í þétt frauðplast
sem síðan fær sérstaka yfirborðsmeðhöndlun til að
líkja eftir áferð hrauns.
„Þessi tæki líta ekki út fyrir að vera leiktæki og
eru ólík öllu því sem við höfum gert áður,“ segir
Dóra. „Við erum ánægð með útkomuna og sjáum
fyrir okkur að þróa línuna áfram. Við eigum inni
fullt af góðum hugmyndum.“ heida@frettabladid.is
Freistandi að klífa hraun
Leikfangaframleiðandinn Krumma ehf. kynnti nýja vörulínu í Listasafni Reykjavíkur á föstudaginn. Nýja
línan kallast Krumma Flow og sækir innblástur sinn til íslenskrar náttúru.
Einingarnar eru stórar og bjóða upp á mikla möguleika í ævintýralegum leik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hægt er að klifra fyrir horn, upp, bæði bratt og flatt. Það eru
engar fastmótaðar gönguleiðir í tækinu og því hægt að upp-
götva nýja leið í hvert skipti sem lagt er í hraunið.
Köngulóarvefur spunninn í hrauni fangar ekki flugur heldur
unglinga í vinalegt spjallumhverfi. Gaman er að klifra í vefnum,
rúlla sér eða ganga.
Í hellinum er hægt að nýta skynfærin og skapa umhverfi sem
örvar, með ljósi, skuggum, hlustun og hljóði.
VIÐ
BJÓÐUM
BETUR
10%ELDHÚSBAÐ
ÞVOTTAHÚS
FATASKÁPAR
25%
Markmið Góðverkadaga er
að bæta mannlífið með
hjálpsemi og vináttu
– að gera góðverk.
Kynntu þér málið nánar á
2 1 . - 2 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 1
BÍTIÐ
MEÐ HEIMI OG KOLLU
ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50